Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 46
NTV í samstarf
við leiðandi
tæknifyrirtæki
Mikil og vaxandi tækifæri tengd tæknináminu
hjá NTV og skólinn kominn í samstarf við CCP.
NTV skóliNN (Nýi tölvu- og við-
skiptaskólinn) hóf starfsemi sína
í október 1996 og er því að hefja
sitt 20. starfsár. skólinn stendur
nú á ákveðnum tímamótum þar
sem stofnendur hafa falið sér yngri
stjórnendum að leiða áframhaldandi
uppbyggingu hans og bjóða upp á
metnaðarfullt og starfsmiðað nám.
stefna hans er að vera í takt við
tæknilegar nýjungar og gang mála í
atvinnulífinu hverju sinni, með stöð-
ugri þróun námsframboðs, kennslu-
efnis, kennslutilhögunar og nýjunga.
Í samstarfi við CCP
Nýir eigendur leggja ríka áherslu á
beint samstarf við leiðandi fyrirtæki
á markaðnum og sem dæmi um
það hefur skólinn nú gert samstarfs-
samning við CCP. skólinn er í örum
vexti og á síðasta ári fóru á sjötta
hundrað nemendur í gegnum skól-
ann. Fjölmennustu námsbrautirnar,
utan tækninámsins, eru bókara-
og skrifstofubrautirnar, grafík og
margmiðlun og almenn tölvufærni.
Tækninámið er þó það nám sem
vaxið hefur hvað mest.
Finnbjörn Þorvaldsson, brautar-
stjóri tæknibrauta NTV, segir mikil
og vaxandi tækifæri tengd tækni-
náminu þar sem vöntun á starfsfólki
sé mikil. segir hann námið hagnýtt
og með samstarfsaðilum sé unnið
að því að laga námið að þörfum
atvinnulífsins.
„Tækninámið skiptist í forritunar-
nám og kerfisstjórnunarnám og hafa
þessar tvær brautir skilað hvað flest-
um nemendum starfstækifærum
eftir 1-2 anna nám,“ segir hann.
Finnbjörn segir fólk á öllum aldri
stunda nám við skólann, sumir séu
að hefja sinn starfsferil meðan
aðrir sækist eftir nýjum tækifærum
og jafnvel að skipta algjörlega um
starfsvettvang. Mikið hefur verið
rætt um nauðsyn þess að efla og
auka stöðu kvenna innan tækni-
geirans og skólinn er stoltur af því
að á haustönn voru í fyrsta skipti í
sögu hans voru fleiri konur en karlar
skráðar á byrjunarnámskeið í kerfis-
stjóranámi. „Þetta er vonandi vísir
að því að kynjahlutföll í tæknigeir-
anum séu að jafnast betur út.“
Sérstaða NTV
n Verkefnamiðað nám
n litlir námshópar
n Nemendur vinna náið með kenn-
urum
n Raunhæf verkefni
n Einstaklingsmiðuð þjónusta
Náms- og starfsráðgjafi starfar við
skólann sem býður nemendum
aðstoð í námi og við námsval. Til
að auka líkur hjá þeim nemendum
sem leita eftir nýju starfi að námi
loknu fá nemendur einnig ráðgjöf
varðandi umsóknarferli, ferilskrá og
ráðningarviðtöl.
skólinn er einnig viðurkenndur
fræðsluaðili af mennta– og menn-
ingarmálaráðuneytinu og er alþjóð-
leg prófamiðstöð.
Opið er fyrir skráningar í nám á
heimasíðu skólans www.ntv.is
Unnið í samstarfi
við NTV
Finnbjörn Þorvaldsson, brautarstjóri tæknibrauta NTV, segir mikil og vax-
andi tækifæri tengd tæknináminu sem skólinn býður upp á. Ljósmynd/Hari
Ummæli
nemanda:
Aðalheiður Ísold Hoffmann
Nýráðin hjá CCP
lauk kerfisstjórnunarnámi
haust 2015
„Ég valdi NTV eftir að hafa
kynnt mér aðra valkosti og
skólinn hafði gott orðspor. Var
virkilega ánægð með námið,
kennararnir hvetjandi og frá-
bærir og alltaf gaman að koma
í skólann. Ég fékk einnig hvatn-
ingu frá kennurum til að sækja
um starfið og sé ekki eftir því.“
Of gaman til að fara í frímínútur
Nám við Hússtjórnarskólann í Reykjavík að hefjast og enn eru nokkur laus pláss á þessari önn.
VoRöNN HússTjóRNaRskólaNs
í Reykjavík hefst í þessari viku og
Margrét Dórothea sigfúsdóttir
skólastýra er full tilhlökkunar. Nem-
endur skólans munu á einni önn
læra að elda, prjóna, sauma, þrífa
og allt milli himins og jarðar.
stærstur hluti nemenda er ungar
konur en einstaka karlmaður slæðist
þangað inn.
„Nemendurnir eru fólk sem langar
að læra að elda, prjóna, geta saumað
á sig flíkur og geta rekið heimili,“
segir Margrét sem hefur stýrt skól-
anum í 18 ár. Flestir nemendur koma
beint eftir stúdentspróf og eru á
aldrinum 18 til 26 ára. aðspurð segir
hún að ungt fólk í dag virðist kunna
minna til verka inn á heimilinu en
áður og því sé full þörf á því námi
sem skólinn bíður upp á.
„sumir hafa varla séð straujárn,“
segir hún kímin á svip. Hvernig á að
strauja og hugsa um föt er eitt af því
sem kennt er við skólann, en námið
er fjölbreytt og skemmtilegt.
„Mér finnst skemmtilegast að kom-
ast í eldhúsið að kenna og miðla.
Það er líka svo gaman að vera með
þessu unga fólki,“ segir Margrét. Hún
kennir hvernig á að elda frá grunni
og hvernig á að útbúa hefðbundinn
íslenskan heimilismat, til dæmis
hvernig á að steikja fisk, búa til fiski-
bollur, steikja hrygg og annað í þeim
dúr. auk þess sem ráðist er í slátur-
gerð og sultugerð.
Nemendahópnum er skipt í tvo
Unnið í samstarfi við
Hússtjórnarskólann í
Reykjavík
hluta og annar hópurinn er í eld-
húsinu en hinn fer í handavinnu
og er þar í útsaumi, fatasaumi og
ræstingu. „Við kennum í einni lotu
á daginn og oftast finnst öllum svo
gaman að vinna að frímínútum er
gjarnan sleppt.“
Á miðri önn skipta hóparnir aftur.
Prjón og útsaumur er á dagskrá alla
önnina fyrir báða hópana auk þess
sem ýmislegt annað er kennt, til
dæmis næringarfræði og vörufræði.
„Við kennum ýmislegt smálegt sem
auðveldar manni lífið, til dæmis
hvernig hægt er að láta flíkur og
húsgögn endast með réttri umhirðu,
hvernig á að ná fitublettum úr
fötum, hvernig á að umgangast
þvottavélarnar svo það komi ekki
fýla af fötunum og hvernig á að
nota þurrkara svo dæmi séu nefnd.
Þrif eru eitt af því sem við kennum
mjög vel og það kemur mörgum til
dæmis á óvart að gömlu vaskarnir í
skólanum líta allir út eins og þeir séu
nýir,“ segir Margrét.
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík
tekur inn 24 nemendur á hverri önn,
en í fyrra varð undantekning á þegar
nemendurnir voru 26. „aðsóknin
var svo mikil.“ Tæknilegir örðugleikar
urðu hinsvegar til þess að aðeins 18
nemendur eru skráðir á þessa önn.
„Mér barst ekki allur tölvupósturinn
því einhverra hluta vegna varð hus-
stjornarskolinn@husstjornarskolinn.
is óvirkur og fjölmargar fyrirspurnir
týndust. Ég vil því endilega hvetja þá
sem hafa áhuga að hafa samband
því enn eru laus nokkur pláss á þess-
ari önn,“ segir Margrét.
stór hluti nemenda kýs að dvelja
á heimavist skólans á meðan önnin
stendur yfir, en oftast eru það
nemendur sem búa utan höfuð-
borgarsvæðisins. „krakkar sem búa
í úthverfunum velja líka að vera
á heimavistinni, enda er það svo
gaman. Þar myndast mikil vinátta og
allir sitja saman í klessu á kvöldin og
prjóna saman yfir sjónvarpinu. Þetta
eru fullorðnar stelpur og aldrei neitt
vesen á þeim.
Þegar önninni lýkur þá eru oftast
felld tár, faðmast og teknar myndir
til að minnast góðra stunda.“
Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskólans í
Reykjavík, segir námið í skólanum fjölbreytt og skemmtilegt og
mikil vinátta myndist meðal nemenda. Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir
46 | fréttatíminn | HElgiN 8. jaNúaR-10. jaNúaR 2016
auglýsingardeild fréttatímans
s. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Námskeið