Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 08.01.2016, Síða 30

Fréttatíminn - 08.01.2016, Síða 30
skutlaði hann mér á hótelið og sagðist þurfa að fara í ferðalag, eitthvað tengt vinnunni. Það var síðasti dagurinn minn í borginni og svo við kvöddumst eins og við myndum aldrei hittast aftur. Ég sneri aftur á hótelið og fann að ég var drullu svekktur. Hann hafði sagt mér að ég ætti fimm systkini, þrjá bræður og eina systur og eina ættleidda systur og mig langaði einlæglega að hitta þau öll.“ Döðlur og mjólkurglas Næsta dag fór ég með leiðsögu- manninum í ferð í kringum borgina og þegar ég kom aftur á hótelið lágu skilaboð frá hr. Squalli að hann væri væntanlegur klukkan 18 að sækja mig. Hann kom og til- kynnti mér að hann ætlaði að koma mér á óvart. Við fórum upp í bíl og keyrðum um borgina þar til við enduðum á að keyra í hverfi í nýja borgarhlutanum og inn um hlið. Þá sagði hann loksins, „Jæja núna erum við komnir heim og fjölskyld- an er inni að bíða eftir þér.“ Á móti mér kom eiginkona hans, hún faðm- aði mig og bauð mig velkominn á heimili sitt.“ Alexander segir atburðarásina hafa verið óraunverulega og spenn- andi. „Já, og það var dálítið sérkenni- legt að við settumst niður og þau buðu mér upp á döðlur og mjólk. Það þykir mjög fínt að bjóða upp á döðlur og mjólk í Marokkó. Þegar ég kom inn á heimilið þá blasti við mér mynd af sjálfum mér. Myndin sem mamma hafði sent honum þegar ég var tveggja ára hékk þarna upp á vegg. Það var aug- ljóst að þau höfðu öll vitað af mér. Eftir stuttan tíma leið mér eins og ég hefði alltaf þekkt þau. Ég fann ekki fyrir því að ég væri eitthvað feiminn, ég settist við hlið bróður míns og það var eins og við hefðum alltaf verið bræður.“ Konurnar í Sqalli fjölskyldunni „Elín hafði sjálf ímyndað sér að kon- urnar væru faldar bak við slæður og að þær væru undirgefnar körlun- um. Ég bjóst við að þær væru allar í búrku og óttaðist ef ég ætti eftir að koma inn á heimilið þeirra þá væri ætlast til þess að ég væri svona eða hinsegin.“ Fjölskyldan kom Alexander því verulega á óvart. Hann upplifði mikið kvennaríki á heimili föður síns og sagði fjölskylduna tala mikið og hátt. Oft hélt hann að þau vera að rífast þegar skipst var á skoðunum. Alexander á sjö ára gamla systur sem eiginkona föður hans ættleiddi, sem var þvert á vilja fjölskyldunnar í byrjun. Og ef fjöl- skyldan þurfti að taka sameigin- lega ákvörðun þá var það reyndar alltaf móðirin á heimilinu sem átti síðasta orðið. Elínu leist vel á fyrir- komulagið og létti þegar hún sá á myndum að systirin er með svip- aðan fatasmekk og hún sjálf. „Það er auðvitað menningar- munur og margt ólíkt með okkur. Ég fletti í gegnum fjölskyldualbúm þeirra og sá meðal annars ljós- myndir úr skírnarveislu bróðurson- ar míns. Á myndunum úr veislunni staldra ég við mynd af kind sem hafði verið skorin á háls. Bara dauð kind þarna mitt í öllu saman. Það er þá siður þeirra að fórna kind í tilefni af skírnarveislu. Pabbi og konan hans biðja fimm sinnum á dag en ég sá aldrei systkini mín biðja. Þau halda ekki upp á jól og páska, en í staðinn halda þau Ramadan.“ Svona verð ég eftir 20 ár „Við pabbi eru rosalega líkir en ég er ekki viss um að ég líkist systk- inum mínum. Ég settist hjá pabba við matarborðið og skyndilega sprungu þau öll úr hlátri. Ég skildi ekkert hvað væri í gangi en þá tóku þau öll eftir því að við borðum við alveg eins. Við hökkuðum í okkur vínber sem er uppáhalds ávöxturinn okkar beggja. Í raun er ég líkastur honum af systkinum mínum, við erum í raun ótrúlega líkir. Þeim þótti það líka merki- legt. Bæði pabbi og bræður minnir lærðu rafmagnsverkfræði en ég byrjaði í rafmagninu og ætlaði mér að leggja það fyrir mig án þess að af því yrði. Konan hans bað mig um að lýsa sjálfum mér og henni fannst sem ég væri að lýsa pabba. Við erum báðir þrjóskir og ákveðn- ir, sanngjarnir og eitthvað svona. Mér fannst fyndið að horfa á pabba minn og ímynda mér hvernig ég ætti eftir að líta út eftir tuttugu ár. Elsti bróðir minn, sem býr í Brussel, var með okkur á þessum fjölskyldufundi á Skype.“ Óvænt viðkoma í Brussel „Eftir heimsóknina var ákveðið að ég framlengdi dvöl mína um fimm daga og ég flutti af Rihadinu og heim til pabba. Ekki nóg með það heldur fékk ég flugmiðanum mínum breytt og flaug í gegnum Brussel til að hitta bróður minn. Hann býr með konu frá Marakesh. Þau starfa bæði sem forritarar og gera út frá Brussel en stefna á að flytja aftur til Marokkó. Bróðir minn tók á móti mér á flugvellinum en þá var ég orðin svo kvalinn í maganum og hélt kannski að það væri eftir allar átveislurnar, en það var alltaf tilefni til þess að setjast niður og borða. Ég hringdi í Elínu og lýsti verkjunum fyrir henni. Hún kveikti strax á því að þetta væri botnlanginn og bróðir minn tók mig á spítala í Brussel þar sem ég var keyrður rakleitt inn á skurðarborð. Botnlanginn var tekinn sem lengdi dvöl mína um nokkra daga aftur. Ég fékk Havarti er einn þekktasti ostur Dana en hér á landi hófst framleiðsla á honum árið 1987. Ostinum var upphaflega gefið nafnið Jöklaostur en því var breytt. Havarti varð til um miðja 19. öld hjá hinni frægu dönsku ostagerðarkonu, Hanne Nielsen. Havarti er mildur, ljúfur og eilítið smjörkenndur ostur sem verður skarpari með aldrinum og er með vott af heslihnetubragði. Frábær ostur með fordrykknum eða á desertbakka með mjúkum döðlum og eplum. HAVARTI FJÖLHÆFUR www.odalsostar.is tækifæri til þess að kynnast bróður mínum og konunni hans við svona skrýtnar aðstæður þar sem ég var veikur og upp á þau kominn, það var bónus á sinn hátt.“ Fjórði hver múslimi Einn fjórði hluti íbúa Brussel er múslimar og 210 þúsund þeirra koma frá Marokkó. Miklir fólks- flutningar hafa verið til Belgíu frá löndunum í kringum Miðjarðarhaf- ið síðan 1960 þegar Evrópa sóttist eftir vinnuafli og aðlagaði vinnulög- gjöfina að betra aðstreymi verka- fólks. Námsfólk frá frönskumæl- andi löndum og fyrrum nýlendum Belga og Frakka hafa alla tíð sótt menntun sína til Frakklands og Belgíu. Sumt af þessu fólki, náms- menn og farandverkamenn, búa enn í Brussel og afkomendur þeirra í annan eða þriðja lið eru orðnir Belgar, hvernig sem það er túlkað. Gagnrýni hefur verið í kjölfar árásanna í París í nóvember, að hið franska og belgíska samfélag sé reyndar bara blandað að orðinu til og þegnar af arabískum uppruna eigi ekki auðveldan aðgang að sam- félaginu og búi meira og minna í afmörkuðum hverfum borgarinnar. Eftir stutt kynni kvaddi Alex- ander bróður sinn á flugvellinum í Brussel. „Við vorum báðir að fljúga í ólíkar áttir, hann til Sádi Arabíu að forrita og ég heim til fjölskyldu minnar á Íslandi, með Djellaba og marokkóskt sælgæti í koffortinu. Sælgætið var ekkert sérstaklega vinsælt hjá fjölskyldunni í Selja- hverfinu en Djellaba-kuflinn vakti hinsvegar mikla lukku. Næsta ferð til Marokkó verður farin í páskafrí- inu en þá hyggst öll fjölskyldan skella sér saman. Og þessa dagana er mikið rabbað á Skype milli Selja- hverfis og Fez. 1. Fjölskyldan saman komin. Frá vinstri: Nadine, eiginkona Houssaini, Houssaini, faðir Alexanders, Alexander og Soukaina, systir Alexanders. Á gólfinu sitja Hicham og Omar, bræður Alexanders og lítill bróðursonur. 2. Alexander tveggja ára. Myndina sendi móðir Alexanders til föður hans, Houssaini Squalli ásamt litlum hárlokki úr drengnum. Þegar Alexander kom að hitta föður sinn var myndin innrömmuð uppi á vegg á heimili föður hans. 3. Alexander í borginni Fez í Marokkó þar sem hann hitti föður sinn í fyrsta sinn. 4. Feðgarnir á sínum fyrsta fundi í Fez. Stundin var tilfinningaþrungin fyrir þá báða. 1 2 3 4 30 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.