Fréttatíminn - 08.01.2016, Síða 44
Er kominn tími til að gera eitthvað?
Námskeið sem opna þér nýjar leiðir
Hringsjá náms- og starfsendurhæfing býður úrval
af öðruvísi og spennandi námskeiðum sem hafa
hjálpað mörgum að komast aftur eða í fyrsta sinn
af stað til meiri virkni, meiri lífsgæða og fleiri val-
kosta í námi eða starfi.
Námskeiðin eru sniðin fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri
sem hafa verið frá vinnumarkaði eða námi vegna slysa,
veikinda, félagslegra erfiðleika eða annarra áfalla. Nám-
skeiðin geta líka hentað þeim sem hafa litla grunnmenntun
eða hafa átt erfitt með að tileinka sér hefðbundið nám.
Auk námskeiða býður Hringsjá líka fullt nám í 3 annir.
Minnistækni Kennd er tækni til þess að efla og bæta minnið.
Hentar þeim sem eiga við gleymsku eða skert
minni að stríða.
Sjálfstyrking Styrkir nemendur í að tjá sig, sýna öruggari fram-
komu og almennt vera til!
Tölvur I Tölvunotkun fyrir byrjendur. Unnið á eigin hraða
með aðstoð.
Tölvur II Tölvunotkun fyrir lengra komna. Markmiðið er að
efla færni í notkun gagnlegra forrita og vefsíðna.
TÁT
Bjargráð og færni í að takast betur á við daglegt líf
og hindranir sem upp koma.
Tök á tilverunni
Í Fókus
Eykur skilning á ADHD (athyglisbresti / ofvirkni) og
hvernig hægt er að ná betri tökum á ADHD.
Að ná fram því besta með ADHD
Fjölskyldan
og ég
Með aukinni þekkingu tileinka þátttakendur sér
leiðir til að verða betri fjölskyldumeðlimir, makar og
uppalendur.
ÚFF
Farið yfir ástæður frestunar, einkenni og afleið-
ingar. Fyrir þá sem vilja hætta að fresta og fara að
ná árangri í lífinu.
Úr frestun í framkvæmd
Frekari upplýsingar og skráning hjá
Hringsjá í síma 510-9380 eða á hringsja.is
Sigur að
hafa trú á
sjálfum sér
Elísabet Esther Sigurðardóttir glímdi við
félagsfælni en sigraðist á erfiðleikum sínum
í námi sínu hjá Hringsjá.
Unnið í samstarfi
við Hringsjá.
Þegar elísabet esther sigurðar-
dóttir hóf nám við Hringsjá var hún
svo félagsfælin að hún gat ekki farið
út í búð að versla og forðaðist að
horfast í augu við fólk. í náminu við
Hringsjá lærði hún að sigrast á erfið-
leikum og stóð sig í fyrsta sinn vel
í námi. Við útskriftina í desember
síðastliðinn stóð hún upp og hélt
ræðu, en það var eitthvað sem hún
hélt að hún gæti aldrei nokkurn
tímann gert. Hún stefnir á háskóla-
nám og að láta drauma sína rætast
því loksins hefur hún trú á sjálfri sér.
„Ég hefði ekki trúað þessu ef ég
hefði verið í fortíðinni og séð sjálfa
mig í dag,“ segir elísabet esther
sigurðardóttir, sem útskrifaðist
úr námi hjá Hringsjá í desember
síðastliðinn og segir það hafa ger-
breytt lífi sínu.
„systir mín, sem sótti skólann,
sagði mér að þetta væri krafta-
verkastaður, sem hjálpar fólki sem
á við vandamál að stríða og hvatti
mig til að skrá mig þar til náms,“
segir elísabet, sem þjáðist af félags-
fælni, þunglyndi og miklum kvíða
og lýsir því að hún hafi verið mikið
inni í sér.
Þær jákvæðu breytingar sem hún
varð vitni að hjá systur sinni urðu
til þess að hún lét til leiðast. „Ég
fór inn full efasemda með höfuðið
niður og vissi nákvæmlega hvernig
gólfið leit út, fannst ég ekki skipta
neinu máli og samfélagið hefði
engin not fyrir mig. Mér var hins-
vegar tekið opnum örmum og sagt
að ég gæti fengið gott sjálfstraust
og trúað á sjálfa mig. í fyrstu gat ég
varla lyft höfði og fannst óþægilegt
að vera í stofu með ókunnugum.
en í þessi góða umhverfi aðlagaðist
ég fljótt og mér fór að ganga vel.
Ég ákvað strax að taka öllu sem var
boðið upp á og áður en ég vissi af
fór ég að brosa og þykja vænt um
sjálfa mig.“
Hringsjá býður upp á einstak-
lingsmiðað nám fyrir þá sem vegna
sjúkdóma, slysa eða annara áfalla
þurfa á endurhæfingu að halda til
að takast á við nám eða stunda
vinnu. Námið hentar einnig þeim
sem hafa litla grunnmenntun og
sértæka námserfiðleika. „Þetta er
rosalega einstaklingsmiðað nám og
kennararnir mæta manni þar sem
maður er staddur. Þar sem ég er
með athyglisbrest var mér til dæmis
kennt að útiloka hljóð sem trufla og
mér gefið fullt af góðum ráðum. Þar
að auki er ég með alvarlega talna-
blindu og gat aldrei lært stærðfræði
en stærðfræðikennarinn minn í
Hringsjá kenndi mér að nota liti og
gera smá „gay pride sjóv“ úr stærð-
fræðiblaðinu. Það opnaði nýjan
heim fyrir mér og allt í einu gat ég
lært stærðfærði.“
Uppgötvun elísabetar á að hún
gæti lært og gengið vel í námi
kynnti heldur betur undir áhugann.
„Ég stefni á háskólanám í viðskipta-
fræði en stóri draumurinn er að
eiga mitt eigið fyrirtæki.“
elísabet var þó ekki með öllu
ómenntuð því hún var með grunn-
skólamenntun, auk þess sem hún
sótti grunnmenntun hjá Mími og
hafði lært til leikskólaliða. „Ég var
alltaf að klóra mig áfram í námi,
sem gekk brösuglega því nám var
mér erfitt. í Hringsjá hef ég hins-
vegar aldrei staðið mig jafnvel í
námi, eftir að hafa fengið þar góða
leiðsögn og betri verkfæri.“
Námið í Hringsjá var þrjár annir og
lauk með útskrift í desember síðast-
liðnum. „Ég hélt ræðu við útskrift-
ina,“ segir elísabet kokhraust. „Ég
sem var svo félagsfælin að ég þorði
ekki út í búð að versla.“
í ræðunni talaði hún um hversu
dásamlegur staður Hringsjá væri
og fólkið sem þar starfar tekur
brosandi á móti öllum. „Kennar-
arnir eru yndislegasta fólk sem ég
hef kynnst og afar færir á sínu sviði.
Það er svo gaman að sjá ekki fyrst
gólfið heldur horfa framan í fólk og
brosa. stærsti sigurinn er að hafa
trú á sjálfum sér.“
Eftir að hafa lokið námið við Hringsjá er Elísabet Esther Sig-
urðardóttir sannfærð um að hún geti hvað sem er. Hún á ekki
nógu mörg orð til að lýsa hversu dásamlegan skóla hún telur
Hringsjá vera. Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir
44 | fréttatíminn | HelgiN 8. jaNúar-10. jaNúar 2016
auglýsingardeild fréttatímans
s. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Námskeið