Fréttatíminn - 08.01.2016, Page 48
PÓSTSENDUM FRÍTT HVERT Á LAND SEM ER
Fákafeni 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Skoðaðu úrvalið í netverslun
www.curvy.is eða komdu við
í verslun okkar að Fákafen 9
Fallegur fatnaður í stærðum 14-28
Hvernig var
Tarantino?
Margir hafa beðið spenntir eftir nýjustu kvikmynd Quentins Tarantino, The
Hateful Eight. Myndin verður
frumsýnd í dag, föstudag, en
viðmælendur Fréttatímans sem
mættu á forsýningar milli jóla og
nýárs eru sammála um að hér sé
um að ræða enn eina snilldina úr
smiðju leikstjórans.
„Ég er búinn að sjá
myndina tvisvar
og hún var betri í
annað sinn. Þessi
mynd er dásam-
leg og Tarantino
eins og við þekkjum
hann best. Hún er hæg og löng en
leikur sér skemmtilega með upp-
byggingu, karakterarnir eru stór-
kostlegir, samtölin algjör snilld,
húmorinn dökkur og leikararnir
frábærir. Þetta er hugsanlega
grimmasta myndin hans sem er
athyglisvert í ljósi þess að myndin
gerist öll í einum kofa.“
Tómas Valgeirsson, stofnandi og um-
sjónarmaður Bíóvefsins.
„Myndin er frek-
ar löng en hún
verður aldrei
langdregin því
hún er svo rosa-
lega vel leikin.
Svo er gaman að
fylgjast með búningunum sem eru
mjög áberandi og skemmtilegir.
Ég var eiginlega hrifnust af kar-
akterunum og búningunum.“
Álfhildur Ösp reynisdóTTir, nemi í
lífeindafræði í HÍ, sem mætti á forsýningu
myndarinnar og fékk fyrstu verðlaun fyrir
flottasta búninginn.
„Frábær ádeila á
samskipti kynja
og kynþátta í
Bandaríkjunum í
dag, a la Reservo-
ir Dogs.“
guðbrandur loki
rúnarsson kvikmyndafíkill.
„Það er svo margt
gott við þessa
mynd. Hún
kom ekkert
sérstaklega
á óvart en það
sem aðgreinir
hana frá öðrum Tar-
antino myndum er þessi leikhús-
uppbygging. Hún er eins og virki-
lega þétt leikhúsupplifun, en samt
er hún engan veginn hefðbundin
og alls ekki fyrir viðkvæma. Tón-
listin er líka alveg geggjuð.“
Jóhann leplaT ÁgúsTsson, sér um
Facebook-hópinn Kvikmyndaáhugamenn.
„Hún er mjög
skemmtileg.
Svolítið lengi af
stað en eftir á
sá ég hvað það
er mikilvægt
fyrir þróun kar-
akteranna. Hún hélt athygli allan
tímann þó svo að sagan gerist öll
inni í sama húsinu.“
marín leVý ÁrnadóTTir, nemi og
kvikmyndaáhugakona.
„Hún er truflandi
góð og situr lengi
í manni. Ég sá
hana fyrir áramót
og er enn að melta
hana. Nýtingin
á sviðsmyndinni er
svakalega góð en næstum allar
tökur fara fram í einu herbergi á
meðan aðrar Tarantino myndir fara
út um allt. Tarantino fléttar oftast
saman mörgum sögum en í þessari
mynd er ein mjög djúp saga.“
sigga Clausen, gagnrýnir á Bíóvefnum.
„Ég vinn sem
málari og er frekar
mikil brussa svo
bolirnir mínir eru
frekar vel útslettir.
Ég er með helling af
bolum í gangi í einu
og þeir eru nýttir
þar til þeir eru að
detta í sundur. Ég
er bara svo nýtinn.“
„Ég var einu
sinni með strák úr
Listaháskólanum í
vinnu hjá mér sem
var svo hrifinn af
bolnum mínum að
hann sendi hann á
myndlistarsýningu
í Ástralíu. Hann
bara bað um að fá
hann lánaðan. Ég
veit ekki nákvæm-
lega hvaða hlut-
verk bolurinn hafði
þar en hann tók
allavega þátt í sýn-
ingunni. Þetta var
bara einn af mínum bolum en þeir eru
margir orðnir vel útslettir og flottir. Ég
hef annars aldrei haft of mikla áhyggjur
af útlitinu, svona almennt, allavega ekki
þegar ég er í vinnugírnum.“
Bolurinn sem
fór til Ástralíu
Þorbergur
helgason málari.
Meiri snjór ...
Síðustu tvö ár snerust flestar
verðlaunamyndir um fólk sem
ekki komst niður úr geimnum, en
nú virðist snjórinn vera í hverri
einustu bíómynd og þáttaröð. Ef
þið hafið ekki þegar fengið nóg af
vetrinum hljóta þessar bíómyndir
og þættir að ýta ykkur yfir brúnina.
Í Ófærð lokast íbúar þorps á Íslandi
inni í þorpinu vegna óveðurs, en í
morðþáttunum Fargo er hinsvegar
alltaf bara slabb. Nýjasta mynd
Quentin Tarantino, The Hateful
Eight, bætir um betur og lokar stór-
hættulegar persónur inni í einu
húsi, svolítið eins og að vera stadd-
ur í jólaboði ef fólk er strax farið að
sakna þeirra. The Revenant er þó
líklega það óveðursefni sem kald-
asta blóðið er í, þar sem Leonardo
diCaprio þarf ekki bara að berjast
við kalsár, heldur risabirni líka.
Svo má líka nefna fjallgöngu-
garpana í heimildarmyndinni
Meru, en þeir eru jafnvel þrjósk-
ari við að gefast upp á klifrinu en
bresku ferðamennirnir sem Lands-
björg þurfti að bjarga á dögunum.
280cm
98cm
Bláu húsin Faxafeni S. 588 4499 Opið mán.-fös. 11-18 lau. 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur
Útsalan
er hafin
40-60%
afsláttur!
dimmalimmreykjavik.isDimmalim Reykjavik.is
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Útsalan
er hafin
40-60% afsláttur
DIMMALIMM
DimmalimmReykjavik.is
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Útsalan
er hafin
40-60% afsláttur
DIMMALIMM
48 |
fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016