Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 08.01.2016, Page 51

Fréttatíminn - 08.01.2016, Page 51
fréttatíminn | Gott að GanGa: Um hverfið og dingla hjá nágrönnum sem eru ekki búnir að taka niður jólaseríurnar. Það á ekki að leyfa fólki að komast upp með hvað sem er. Gott að dansa: Útgáfufyrirtækið Sweaty Records gaf út sína fyrstu safnplötu á netinu í vikunni, og verður útgáfu hennar fagnað á Paloma í kvöld, föstudag. Til upphitunar má nálgast safnplötuna ókeypis á vefslóðinni sweaty-records.bandcamp. com. Sweaty Records útgáfupartí, Paloma, föstudagurinn 8. janúar klukkan 21. Gott að skíða: Veturinn varir ekki að eilífu svo það er tilvalið að nýta hann í að fara á skíði. Bláfjöll eru opin frá klukkan 10-17 um helgina. Gott að kaupa: Fatamerkin Kalda, Helicopter og GK Reykjavík verða með lagersölu á laugardaginn á Kex Hostel á laugardaginn milli 12 og 17, ekki missa af tækifæri til að sanka að þér flíkum og líta svo út fyrir að eiga efni á íslenskri hönnun allt árið! Gott að brenna: Þrettánda- brennum var frestað til helgarinnar vegna veðurs á þrettándanum, tilvalið að brenna eitthvað af jólaskrautinu sem þú tókst niður hjá nágrannanum. Gott að Gera einu sinni: Gjörningahópurinn CGFC heldur leiksýningu byggða á Skugga-Sveini eftir Matthías Jochumson í Kaktus á Akur- eyri á laugardaginn. Sýningin ber nafnið “”I thought it was brilliant, a fantastic performance!” - Henrik Vibskov’’ og er sýningin einstakur viðburður sem hægt er að monta sig af að hafa náð að sjá þegar menn mæta til vinnu á mánudag. Gott að bjóða siG fram: Slástu í hóp forsetaframbjóðenda um helgina, það er eintóm skemmtun: Fullt af viðtölum við fjölmiðla og ef þú vinnur er ótrúlega stutt í Álftaneslaugina frá Bessastöðum. Gott um helgina Mikil ánægja með myndagátuna Lesendur Fréttatímans voru greinilega hæstánægðir með myndagátuna þetta árið því mikill fjöldi lausna barst til blaðs- ins. Dregið var úr réttum lausnum og hinn heppni vinningshafi er björk Garðars- dóttir. Hlýtur hún að launum gjafabréf á máltíð á veitingastaðnum Apótekið fyrir tíu þúsund krónur. Haft verður samband við vinningshafann. Lausn myndagátunnar var: „Mikil umræða varðandi hælisleitendur og flóttafólk einkenndi árið.“ Hægt er að skoða lausn myndagátunnar á vef Frétta- tímans. Slóðin er http://www.frettatiminn. is/lausn-myndagatu-frettatimans/. Fréttatíminn þakkar lesendum fyrir þátttökuna. Reykjavíkurborg - skrifstofa eigna og atvinnuþróunar ı Ráðhúsi Reykjavíkur - Tjarnargötu 11 ı www.reykjavik.is/sea ı s. 411 11 11 Reykjavíkurborg óskar eftir umsóknum áhugasamra aðila um rekstur á sýningu í Perlunni sem fjallar á metnaðarfullan hátt um náttúru Íslands. Gert er ráð fyrir því að náttúrusýning skapi nýjan og áhugaverðan áfangastað í Öskjuhlíð sem dragi til sín fjölda innlendra og erlendra gesta. Húsnæði Reykjavíkurborgar í Perlunni er til ráðstöfunar í verkefnið. Annars vegar meginbygging og hins vegar einn af sex hitaveitutönkum Orkuveitu Reykjavíkur. Leigusamningur um meginbyggingu verður ótímabundinn með uppsagnar- ákvæðum en leigusamningur um hitaveitutank verður í samræmi við leigusamning Reykjavíkurborgar við Orkuveitu Reykjavíkur sem rennur út 1. nóvember 2023 en framlengist þá að óbreyttu um fimm ár. Áhugasamir aðilar skulu senda tölvupóst til innkaupadeildar Reykjavíkur, utbod@reykjavik.is til að fá nánari upplýsingar um verkefnið. Umsóknum um þátttöku skal skilað á netfangið utbod@reykjavik.is eigi síðar en 22. febrúar 2016. Náttúra Íslands í Perlunni Rekstur sýningar og þjónusta R E Y K J A V Í K U R B O R G

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.