Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 58
Sagan á bak við þetta pecanhnetuvínar- brauð er að bakstur í íslenskum bakaríum er að leggjast af. Reyndar ekki strangt til tekið. Það er enn bakað í bakaríum en þau eru orðin fá bakaríin sem hnoða sitt eigið deig eða hræra það. Í langflestum bak- aríum á Íslandi kemur vöruflutningabíll frá Garra með tilbúið brauð og bakkelsi sem er skellt í ofninn og síðan selt frammi í búð. Flest vínarbrauð, kleinuhringir og kruðerí sem seld eru á Íslandi eru hrærð og mótuð í risafabrikkum víða í Evrópu. Þetta pacanvínarbrauð er líkast til ættað frá Vandermoortele, risaverskmiðju í Belgíu sem framleiðir allt sem bakarinn þarf til að líta út eins og bakari án þess að vera það. Sagan á bak við belgíska vínarbrauðið Hollustan hefst á gottimatinn.is Kjúlli með silkimjúkri fyllingu Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildur@frettatiminn.is Ó líkt flestum Íslandsvinum hefur Vematsu aldrei komið til Íslands. Vematsu er frá Osaka í Japan og hefur unnið sér til frægðar á Twitter. Fyrir rúmum þremur árum fór hann að birtast í fréttaveitunni hjá Íslendingum. Valtýr Örn Kjartans- son, nemandi við Mennta- skólann í Reykjavík, var fyrsti Íslendingurinn sem Vematsu fylgdi á Twitter. „Ég var ekki virkur á Twitter en ég man eftir að hafa skoðað síðuna hans. Út frá því fór hann að fylgja öðru fólki á vinalistanum mínum. Hann reynir sitt besta til að skrifa íslensku sem er mjög fyndið. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en seinna að ég hefði verið fyrsti Íslendingurinn sem hann fylgdi og þykir mér það mikill heiður.“ Fréttir bárust að allir þeir sem fylgdu honum á Twitter fengju til baka mynd af sér í formi „Vem- anon“ karakters eftir Vematsu sjálfan. Í dag er Vematsu búinn að teikna yfir 700 Íslendinga. Mennt- skælingurinn Sara Þöll Finn- bogadóttir, besta vinkona Vematsu á Íslandi, segir hann feimin og mikil leynd bak við hann. „Við erum í góðum samskiptum, ég veit hvað hann heitir og fæst við en hann vill ekki gefa það upp opinberlega. Hann er feiminn og vill ekki sýna á sér andlitið en Kalli, vinur okkar, fór og heimsótti hann í sumar. Í byrjun seinasta árs sendi hann til okkar bunka af myndum eftir sig svolítið eins og fótbolta- eða Pokémon kort. Það vildu allir fá eintak. Við vorum nokkur sem send- um til hans afmælis- gjöf í febrúar og hann var himinlifandi. Eftir það hefur hann sent til okkar kortin sín sem við seljum á 89 krónur stykkið. Við erum búin að safna 20.000 krónum á tveimur árum sem nemur 225 seldum kortum. Reglulega gefur hann út nýjar kortaseríur en sú síðasta var í þrívíddarteiknuð. Margir eru farnir að safna Vematsu kortum. Í jólakortinu, sem hann sendi okkur núna, segist hann vilja koma til Ís- lands og við vonumst til að hann komi á þessu ári.“ Karl Ólafur Hallbjörnsson blaða- maður er eini Íslendingurinn sem hefur hitt Vematsu í persónu. „Það var langþráður draumur að ferðast til Japan og ég ákvað í heims- reisu minni að heimsæka þennan hulduvin minn eða vinkonu. Lengi vel vissi ég ekki kyn Vematsu. Hann samþykkti að hitta mig og var spenntur fyrir því. Hann kom mér að óvörum með grímu og hár- kollu til að stríða mér sem allra mest. Svo kom á daginn að hann er giftur karlmaður og kynnti mig fyrir eiginkonu sinni og nánasta vinahópi. Þeim þótti mjög gaman að mér, ljóshærðum, bláeygðum og hávöxnum frá Íslandi. Í dag get ég stoltur kallað hann einn af mínum betri vinum. Frábær maður, gest- ristinn, hreinskilinn og skemmti- legur.“ Vematsu, dularfulli Íslandsvinurinn @vematsu er orðinn þekktur á meðal ungu kynslóðarinnar á Twitter. Hann hefur teiknað yfir 700 myndir af Íslendingum en aðeins örfáir þekkja manninn. Vemanon kort eftir Vematsu á 89 krónur. Karl Ólafur. Þetta verður sturlun „Þetta þýðir að ég mun fá góð- an tíma til að fara djúpt í mína starfsgrein í stóru og metnaðar- fullu húsi. Maður er alltaf dálítið tættur þegar maður er að vinna í lausamennsku en nú mun ég sem listamaður geta sett hlutina í betri fókus,“ segir leikskáldið og þýðandinn Salka Guðmundsdóttir sem í vikunni var valin til að starfa sem leikskáld Borgarleikhússins á næsta leikári. Alls sóttu 39 manns um starfið en áður hafa Auður Jónsdóttir, Jón Gnarr, Kristín Marja Baldursdóttir og Tyrfingur Tyrfingsson verið staðarleikskáld. Alltaf verið með Bretlandsblæti „Ég hef verið að skrifa og líka þýða mjög mikið síðustu árin en fyrsta verkið mitt, Súldarsker, var einmitt frumsýnt fyrir fimm árum. Ég hef mest verið að vinna með sjálfstæðum leikhópum síðustu ár,“ segir Salka sem lærði leiklist- arfræði í Wales og skapandi skrif í Glasgow. „Ég hef alltaf verið með einhverskonar Bretalandsblæti og langaði þess vegna að prófa að búa þar. Svo vissi ég að það væri frekar framsækinn skóli í Wales þannig að ég dreif mig þangað og svo langaði mig að prófa að búa í Glasgow og var mjög hrifin af borginni,“ segir Salka. Upptekin af litlum samfélögum „Það sem ég er helst upptekin af eru lítil samfélög í hvaða mynd sem þau birtast. Og því hvað við- mið geta orðið brengluð í litlum hópum og litlum samfélögum, hvað það er hægt að skrumskæla tilveruna og hvernig eitthvað getur orðið viðtekinn sannleikur. Í Old Bessastaðir erum við að fjalla um það hvernig það er hægt að láta næstum hvað sem er falla að sín- um eigin hugmyndum og reglum,“ segir Salka en Old Bessastaðir er hennar nýjasta verk og verður frumsýnt í Tjarnarbíói í febrúar. Aðspurð segir Salka áhorfendur mega búast við áhugaverðu verki þar sem þrjár konur muni brillera. „Þetta verður sturlun.“ -hh Meðal verka Sölku Guðmundsdóttur má nefna Súldarsker, Hættuför í Huliðsdal og Old Bessastaði sem verður sýnt í Tjarnarbíó í febrúar. Hún þýddi líka Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, eftir Edward Albee sem fer á svið í næstu viku. „Við erum á förum, annaðhvort hættum við eða flytjum,“ segir verslunarkonan Erla Wigelund sem hefur selt kvenmannsföt í Laugarnesinu í meira en hálfa öld. „Við erum með rosalega fína útsölu, mjög góðar vörur á 30- 50% afslætti. Við erum með mjög fínar úlpur en erum náttúrulega þekktar fyrir dönsku buxurnar, þær hafa alltaf mokast út hjá okkur. Okkar vörur koma mest frá Danmörku og Þýskalandi en við höfum aldrei selt neitt breskt drasl,“ segir Erla sem á eftir að sakna sinna mörgu fastakúnna. „Við höfum alltaf verið með mikið af fastakúnnum, sérstaklega utan af landi því við erum með svo góða þjónustu. Við höfum alltaf sent föt út á land sem fólk getur mátað heima hjá sér og bara borgað svo í heimabankanum.“ -hh Verðlistinn flytur eftir 51 ár Erla Wigelund segist aldrei hafa selt neitt breskt drasl. Björk Guðmundsdóttir. Aðeins ein kona verið aðalnúmerið Síðastliðinn mánudag tilkynnti Coachella, ein vinsælasta tón- listarhátíð í heimi, dagskrána fyrir hátíðina í apríl. LCD Soundsystem og Clavin Harris verða aðalnúm- erin á hátíðinni. Í 17 ára sögu Coachella hefur aðeins ein kona verið aðalnúmerið á hátíðinni og var það Björk Guðmundsdóttir árin 2002 og 2007. Aðrir listamenn sem koma fram: A$AP Rocky, Sia Ice cube, Disclosure, Ellie Gould- ing og Major Lazor. - sgk 58 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.