Fréttatíminn - 08.01.2016, Side 64
4 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016
Heilsa
„Ég forðast sem mest unnar
vörur og kjöt. Ég kaupi aldrei kjöt
nema ég virkilega þurfi þess. Ég ætl-
aði að verða græn-
metisæta en
gafst upp – það
var of erfitt,“
segir Kjartan
oddason, 25
ára hönnuður hjá
Maurum.
Kjartan borðar mikið af fiski, græn-
meti og ávöxtum. „og rauðrófum.
Það var einu sinni tilboð á rauð-
rófum í Krónunni og ég lifði á þeim
í viku.“
Hvernig er hefðbundinn morgun-
matur hjá þér?
„Ætli það sé ekki oftast skyr.“
Kjartan stundar ekki neina mark-
vissa líkamsrækt en hann gengur
hins vegar til og frá vinnu. Í frítíma
sínum finnst honum gaman að vera
með vinum og dunda sér við tæki
og tækni.
Hvað gerir þú til að slaka á?
„Ég hlusta á tónlist. eða breyti öllu
nálægt mér. Ég umturna íbúðinni
minni einu sinni eða tvisvar í viku.
Það eru ekki ýkjur. Ég hef alltaf verið
svona. ef ég er órólegur þá fer ég og
breyti öllu. Það er alltaf betri mögu-
leiki sem maður verður að finna.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir
áður en þú ferð að sofa?
„Það er örugglega facebook-
rúnturinn. sem er mjög slæmt. Ég
var einmitt að ræða það um daginn
hvað maður þyrfti að fara að hætta
þessu.“
Lifði á rauðrófum í viku
Kjartan Oddason – 25 ára
ára
25
Tilboðsverð kr. 109.990,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta
Fullt verð kr. 137.489,-
Vitamix TNC er
stórkostlegur.
Mylur alla ávexti,
grænmeti, klaka og
nánast hvað sem er.
Býr til heita súpu og ís.
Til í órum litum,
svörtum, hvítum
rauðum og stáli.
Besti vinurinn í
eldhúsinu
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Kjartan Oddason gengur
til og frá vinnu og passar
vel upp á mataræði sitt.
Ragnheiður Helgadóttir – 30 ára
„Ég reyni að fara milli tvisvar og
þrisvar í viku í reebok fitness, það
fer eftir vinnu og annríki í náminu,“
segir ragnheiður
Helgadóttir, 30
ára nemi í tóm-
stundafræði.
Borðarðu hvað
sem er eða
hugsarðu um það
sem þú lætur ofan í þig?
„Ég hef aldrei þurft að hugsa mikið
um hvað ég læt ofan í mig en ég
reyni að halda skyndibitanum í lág-
marki.“
Hvernig er hefðbundinn morgun-
matur hjá þér?
„ab-mjólk með múslí eða hafra-
grautur.“
Hvað gerir þú til að slaka á?
„set góða tónlist í eyrun,
þannig næ ég fullkominni
slökun.“
Lumar þú á einu heilsuráði
sem hefur gagnast þér vel
í gegnum tíðina?
„Ég hef tamið mér það
hugarfar að hugsa vel um
sjálfa mig, bæði andlega
Mestu skiptir að vera ánægður með sjálfan sig
og líkamlega. Öll hreyfing er góð.
en það sem skiptir mestu máli er að
vera ánægður með sjálfan sig, því
þú skapar þína eigin hamingju.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir
áður en þú ferð að sofa?
„Bursta tennurnar.“
Hefur heilsurækt þín breyst með
árunum? Ef svo er, hvernig?
„já, ég er duglegri að hreyfa mig en
ég var.“
Hefurðu sett þér einhver markmið
varðandi heilsuna á nýju ári?
„Ég ætla að halda áfram að fara í
ræktina í fasta tíma tvisvar í viku til
þess að fá smá hreyfingu. en fyrst
og fremst rækta sjálfa mig og njóta
lífsins.“
Ragnheiður Helgadóttir
hefur aldrei þurft að
hugsa mikið um hvað hún
borðar, en reynir að halda
skyndibita í lágmarki.
Ljósmynd/Hari
Æfi meira eftir að
ég hætti á sjónum
Heilsuvenjur Ragnars Kristjáns Jóhannssonar – 35 ára
„Ég Hef reynt að hafa þá venju
síðustu árin að fara alla vega fimm
sinn- um á viku í ræktina.
Ég æfi í reebok
fitness, oftast
er ég bara að
lyfta og tek létt
„cardio“. svo
spila ég fótbolta
tvisvar sinnum í
viku,“ segir ragnar
Kristján jóhannsson, sjómaður og
sölumaður hjá gÁP.
ragnar var lengi háseti og neta-
maður á frystitogurum en starfar
nú í hjólabúð. sem starfsmaður í
hjólabúð hefur hann ekki farið var-
hluta af hjólaæðinu sem gengið
hefur yfir landsmenn. eða hluta
þeirra að minnsta kosti. „Ég hjóla á
sumrin. Maður fylgir flæðinu,“ segir
hann.
Borðarðu hvað sem er eða hugs-
arðu um það sem þú lætur ofan
í þig?
„Maður reynir nú að hafa þetta
kjúkling, fisk, sætar kartöflur og skyr
en maður leyfir sér alveg ef mann
langar í eitthvað.“
Hvernig er hefðbundinn morgun-
matur hjá þér?
„Ég borða skyr eða hafragraut.“
Hvað gerir þú til að slaka á?
„eins og þetta hefur verið gefst
nú ekki mikill tími til þess. Ég er í
fjarnámi í stýrimannaskólanum og
sest oftast niður fyrir framan skóla-
bækurnar. en svo reynir maður líka
að hitta vinina.“
Lumar þú á einu heilsuráði sem
hefur gagnast þér vel í gegnum
tíðina?
„Það er að ætla sér ekki of mikið.
Margir ætla sér allt í einu en svo
gerist ekkert. Þetta snýst ekki alltaf
bara um janúar.
Hefur heilsurækt þín breyst með
árunum?
„já, fyrir 10-15 árum gerði ég voða
lítið. Þá var ég bara á sjónum og
þetta kom af sjálfu sér. Maður
finnur alveg fyrir því núna að þurfa
að halda líkamanum liðugum. Ég
spilaði körfubolta og fótbolta þegar
ég var yngri, alveg þangað til ég fór
á sjóinn 17 ára.“
Hefurðu sett þér einhver markmið
varðandi heilsuna á nýju ári?
„Bara það sama og verið hefur.
Halda áfram að hreyfa sig, passa
mataræðið og njóta þess að vera
til.“
ára
30
ára
35
Ragnar Kristján mætir í
ræktina fimm sinnum í
viku og spilar þar að auki
fótbolta tvisvar í viku.
Ljósmynd/Hari