Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 08.01.2016, Síða 68

Fréttatíminn - 08.01.2016, Síða 68
8 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016 Heilsa Heilsuvenjur Erlu Traustadóttur – 50 ára „Það er stutt síðan ég uppgötvaði hvað það er ótrúlega gaman að hlaupa. Mér finnst líka gaman að hjóla, spila golf eða ganga með hundinn. Mér leiðast líkams- ræktarstöðvar, en er til í flest sem hægt er að stunda utandyra,“ segir erla Traustadóttir, vinnusál- fræðingur og maraþonhlaupari. erla er fimmtug og kveðst reyna að hreyfa sig eitthvað á hverjum degi. Hún hjólar eða gengur yfirleitt til og frá vinnu og mætir á hlaupaæfingar hjá laugaskokki þrisvar í viku. „Það er heilagur tími,“ segir hún. Borðar þú hvað sem er eða hugsar þú um það sem þú lætur ofan í þig? „Ég á rosalega erfitt með að neita mér um góðan mat og er mikill sælkeri. Ég trúi því að meðalhófið sé best, en reyni auðvitað að velja eitthvað hollt og gott.“ Hvernig er hefðbundinn morgun- matur hjá þér? „Það er ýmist chia-hafragrautur með ávöxtum eða gamla góða Cheeriosið. ef ég er í stuði er einnig skálað í grænum djús og dagurinn er fullkominn.“ Hvað gerir þú til að slaka á? „Sumarbústaður tengdaforeldra minna í Skorradal býr yfir töfra- mætti og næst hvergi betri slökun en þar. Þess á milli er það freyðibað og góð bók.“ Lumar þú á einu heilsuráði sem hefur gagnast þér vel í gegnum tíðina? „einfaldasta leiðin til að auka hreyf- ingu er að nýta tímann til og frá vinnu. Í kaupbæti mætir maður vel vakandi og glaður í vinnu og nær að veðra burt krefjandi vinnudag áður en maður kemur heim.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? „renni yfir það helsta á netinu og les góða bók.“ Hefur þú sett þér einhver mark- mið varðandi heilsuna á nýju ári? „já markmið eru nauðsynleg til að ná einhverjum árangri. Síðasta ár var undirlagt af maraþonundirbún- ingi, sem var óendanlega skemmti- legur tími en einnig mjög krefjandi. lítill tími gafst til að sinna öðrum hugðarefnum, eða fjölskyldu og vinum. Því verður árið 2016 til- einkað aukinni samveru með þeim sem standa mér næst og auðga líf mitt á hverjum degi. Undirmarkmið er svo að sjálfsögðu að koma þeim öllum með mér út að hlaupa og hef ég góðar vonir um að það takist fyrir árslok.“ ára 50 Æfingarnar heilagur tími Líf án streitu - lærðu að njóta lífsins Námskeiðið er fyrir þá sem vilja njóta lífsins, lifa lífinu aðeins hægar og huga að andlegri og líkamlegri líðan. Dvölin gefur einnig einstakt tækifæri til að taka upp nýjar og skynsamlegar leiðir hvað varðar hreyfingu, næringu og svefn. Innifalið: Ljúffengur og hollur matur, skipulögð dagskrá, hugleiðsla og jóga, aðgangur að sundlaugum, baðhúsi og líkamsrækt. Einnig nudd og val um ýmsar meðferðir. Verð á mann: 130.000 kr. (123.500 í tvíbýli) 7 daga heilsudvöl 7. - 14. febrúar Nánari upplýsingar í síma 483 0300 og á heilsustofnun.is - berum ábyrgð á eigin heilsu Meðgönguþjálfun og þjálfun eftir fæðingu Nánari upplýsingar er hægt að finna á www.fullfrisk.com. Skráningar og fyrirspurnir í síma 661-8020 eða dagmar@fullfrisk.com. í Sporthúsinu Ný námskeið hefjast 11.01.16 Einnig er hægt að finna okkur á Facebook Erla Traustadóttir vinnusálfræðingur æfði sund í gamla daga en nú eiga hlaupin hug hennar allan. Ljósmynd/Hari

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.