Fréttatíminn - 15.01.2016, Page 38
Gísli Gíslason, lögfræðingur og rafbílainnflytjandi,
er staddur í lyftunni hans Spessa ljósmyndara í
gömlu Kassagerðinni á Laugarnesi. Á ferðalaginu
upp fjórar hæðir hússins segir Gísli frá sínum 100
kílómetra hæðum og gjaldþrota lægðum í lífinu.
„Ef ég á að vera hreinskilinn, þá var tíminn sem
mér leið hvað verst í lífinu þegar ég var útskurðaður
gjaldþrota árið 2002. Það voru áætlaðir háir skattar
á mig sem mér tókst ekki að leiðrétta fyrr en seinna.
Það var erfitt á meðan á því stóð en eftir á að hyggja
lærði ég mikið af því og þetta var alls ekki svo
slæmt, enda fékk ég búið mitt fljótlega aftur,“ segir
Gísli og lýsir í kjölfarið sínum hæstu hæðum.
„Ég er búinn að vera með sömu konunni í 35
ár og við eigum saman fimm börn, það er minn
stöðugi hápunktur. Annað sem stendur upp úr er
þegar ég fékk miða út í geiminn frá Richard Bran-
son. Ég er númer 258 í röðinni að fara upp í geim
með Virgin Galactic. Ég vonast til þess að komast
að seinnipartinn á næsta ári. Við ferðumst 100 kíló-
metra á 70 sekúndum upp í þyngdarleysi og fáum
að sjá jörðina að ofan. Það verður bókstaflega minn
hápunktur.“ | sgk
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
„ Í fyrstu er um hreinræktaða
barna bók að ræða, þar sem
Auður blandar saman eigin
minningum og þeirri æsku
sem Halldór lýsti sjálfur í
verkum sínum ... bókin [er]
ekki bara inngangur að bók-
menntasögu landsins, heldur
einnig að sögu 20. aldar, og
geri aðrar barnabækur betur.“
V a l u r G u n n a r s s o n / D V
Frá gjaldþroti til tunglsins
Gísli í geimgallanum sínum
Lyftan #2
Spessi
Það mátti lesa af forsíðum allra
dagblaða í okkar heimshluta
hverslags fyrirbrigði David
Bowie var. Hann var ekki aðeins
poppstjarna heldur poppguð.
Og áhrif hans voru ekki aðeins
bundin við tónlist heldur hafði
hann áhrif á aðrar listir og á
hugmyndir okkar um einstak-
linginn í samfélaginu. Bowie
reyndi á mörk í list sinni og pers-
ónulegu lífi og víkkaði út ramm-
ana fyrir okkur hin. Þegar hann
dó lögðu öll stórblöð í okkar
heimshluta góðan part af for-
síðu sinni undir virðingavott við
þennan meistara og áhrifavald —
öll nema Fréttablaðið.
Stærri en flest
38 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar–17. janúar 2016