Fréttatíminn - 15.01.2016, Blaðsíða 40
Ómar Jabali fylgdi
flóttamönnum frá flótta-
mannabúðum Lesbos til
München. Hann lýsir þeim
hindrunum sem Evrópu
leggur fyrir flóttamenn og
hvernig ólík öfl misnota sér
aðstæður þeirra.
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
Íslenski kvikmyndatökumaðurinn
Ómar Jabali hélt til Lesbos á Grikk-
landi í september 2015 með það
markmið að segja sögur þeirra
flóttamanna sem ekki hafa hlotið
náð fyrir augum fjölmiðla. Flótta-
mannastraumurinn frá ströndum
Tyrklands og Norður-Afríku til Evr-
ópu fór yfir eina milljón á síðasta
ári. Flestir eru á flótta undan stríðs-
ástandi í Sýrlandi, Írak og Afganist-
an.
Ómar er kvikmyndatökumaður
sem skjalfesti þá atburði sem hann
varð vitni að á þeim mánuði sem
hann fylgdi flóttamönnum í gegnum
álfuna. Hann segir það mikilvægasta
í þessu, og jafnframt það sem týn-
ist yfirleitt í fréttaflutningi, sé fólkið
sjálft.
Þetta er fólk sem er tilbúið til þess
að ferðast í gegnum átta lönd í leit
að friði. Það siglir yfir höf á gúmmí-
bátum og ferðast fótgangandi yfir
landamæri með ekkert nema fötin
á bakinu og þá peningana sem það
önglaði saman með því að selja eigur
sínar.
Evrópa tekur breytingum
Þegar Ómar lagði af stað var áætl-
unin að finna fjölskyldu til þess að
fylgja eftir í gegnum Evrópu. Hann
ætlaði sér að lifa og hrærast með
fjölskyldunni. Ómar segir miklar
breytingar hafa átt sér stað í Evr-
ópu á þeim tíma sem hann kom og
flóttamannapólitíkin orðin flókin.
Landamæraeftirlit var hert og æ
fleiri þjóðir teknar að bregðast við
auknum flóttamannastraumi. Þetta
var orðin stórhættuleg leið smygl-
ara með f lóttamenn í skottinu.
Þessar hindranir gerðu Ómari erfitt
að fylgja einni sögu en hann týndi
HVERNIG KEMST 330.000
MANNA ÞJÓÐ Á EM?
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
LEYNIVOPN.IS
ER ÞAÐ
VATNIÐ?
„
“
Græða á örlögum bjargarlauss fólks
Flóttamenn koma að ströndum Lesbos.
Myndir | Ómar
Með þriggja daga gamalt skotsár.
þremur fjölskyldum á leiðinni vegna
skorts á aðgengi. Ómar greinir frá:
„Mikið af fólkinu á flótta á ein-
hverja peninga, þetta er menntað
fólk sem seldi eigur sínar til þess að
komast burt úr hryllingnum. Fátæk-
asta fólkið og þeir sem eiga ekki neitt
eru þeir sem sitja eftir. Vegferðin er
dýr og það eru mörg ólík öfl sem
reyna að hagnast á því. Stjórnvöld
hafa þróað leiðir til þess að láta
strauminn raska sem minnst dag-
legu lífi sinna borgara. Flóttamanna-
búðir eru lokaðar af, bílastæðahús
notuð sem geymsla fyrir flóttafólk og
aðrar sorglegar, en stundum nauð-
synlegar, leiðir.“
Smyglarar á landamærum
Á ströndum Norður-Afríku og Tyrk-
lands er starfsemi smyglara metin
upp á milljarða evra. Malik al-Behar
er einn vinsælasti smyglari á Izm-
ir í Tyrklandi er kallaður „kóng-
ur strandarinnar“. Hann greindi
frá í viðtali í New Republic fyrir
skemmstu að hann hefði þénaði yfir
tvær milljónir evra á síðustu tveimur
árum. Hann fær yfir 1500 símtöl á
dag frá fólki sem óskar eftir því að
komast til eyjunnar Lesbos á Grikk-
landi. Malik er þekktur fyrir lága
slysatíðni og því vinsæll. Hann rukk-
ar 1000-1500 evrur fyrir 20 mínútna
sjóferð. Í stóru bátana, öruggasta
ferðamátann sem ströndin býður
upp á segir Ómar að kosti 2500 evr-
ur á mann. Sögurnar af smyglurum
voru af ómannúðlegum toga.
„Á vegi mínum varð fjölskylda sem
40 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar–17. janúar 2016