Fréttatíminn - 15.01.2016, Side 56
Ég þarf ekki að eiga hús til að líða vel
Hrútur Teitsson er einn
fjölmagra fullorðinna sem
enn búa í foreldrahúsum
Með hækkandi leiguverði og
minnkandi framboði á húsnæði
sem hentar ungu fólki í startholum
lífsins fjölgar þeim sem dvelja í
hreiðrinu fram eftir aldri. Talið
er að nærri helmingur ungs fólks
á aldrinum 18-30 ára í Evrópu búi
enn í foreldrahúsum. Ísland er þar
ekki undanskilið. Eru þetta ósjálf-
stæðir eilífðarunglingar eða er
þetta bara það sem koma skal ef
leigumarkaðurinn breytist ekki?
Hrútur Teitsson er 26 ára gamall
og býr með föður sínum, Teiti,
og konu hans, Rattana, í Garði á
Suðurnesjum. Hann leigði áður
sjálfur á Egilsstöðum en ákvað að
flytja í foreldrahús á meðan hann
klárar stúdentspróf í Keili á Ásbrú.
„Ég var að spá í að flytja upp á Keili
og sótti um stúdentaíbúð þar en svo
heyrði pabbi bara í mér og krafðist
þess eiginlega að ég byggi frekar
hjá sér.“
Hrútur segir enga togstreitu milli
feðganna í sambúðinni, en segir
mikinn mun á því að búa í foreldra-
húsum sem barn og nú. „Núna upp-
lifi ég pabba frekar sem fullorðinn
einstakling sem ég bý með. Við
erum reyndar ósammála um flest
sem viðkemur lífsgildum og pólitík,
en sem sambýlingar reynist okkur
auðvelt að búa í sátt og samlyndi.”
Aðspurður hvort honum finnist
pressa á sér að eignast húsnæði
segir hann svo ekki vera. „Mér hef-
ur aldrei fundist mikilvægt að eiga
mitt eigið heimili. Ég þarf ekki að
eiga hús sjálfur til að líða vel, það
er bara gott að hafa stað að gista á.
Fyrir mér er heimili fyrst og fremst
bara náttstaður.“ | sgþ
SAMSUNG WF70
7 KG. 1400 SN. KR. 79.900,-
SAMSUNG WW80
8 KG. 1400 SN. KR. 99.900,-
SAMSUNG WF80
8 KG. 1400 SN. KR. 89.900,-
TM
TM
TM
SÍÐUmúla 9 · SÍmi 530 2900lágmúla 8 · SÍmi 530 2800 · ormsson.is
FYRIR HEIMILIN Í LANDINUVið seljum
eingöngu
með kolala
usum móto
r
með 10 ára
ábyrgð
ecobubble þvottavélar
HVaÐ ER ECO BUBBlE?
leysir upp þvottaduft undir þrýstingi og myndar kvoðu,
svo duftið leysist upp á um það bil 15 mín, í stað 30-40 ella.
Myndir | Rut Sigurðardóttir
56 | fréttatíminn | Helgin 15. janúar–17. janúar 2016