Læknablaðið - 01.01.2016, Side 4
4 LÆKNAblaðið 2015/101
F R Æ Ð I G R E I N A R
1. tölublað 2016
7
Ingibjörg Jóna
Guðmundsdóttir
Hvernig getum
við bætt meðferð
sjúklinga með
brátt hjartadrep?
Á strjálbýlu landi eins
og Íslandi þarf að meta
áhrif fjarlægða og flutn-
ingstíma á meðferð og
minnka tafir á greiningu,
lyfjagjöf og hjartainn-
gripum.
11
Þórir S. Sigmundsson, Daníel Arnarson, Arnar Rafnsson, Viðar Magnússon,
Gunnar Þór Gunnarsson, Gestur Þorgeirsson
Flutningstími og gæði meðferðar hjá sjúklingum með
ST-hækkunar-hjartadrep á landsbyggðinni
– fáir ná í kransæðavíkkun innan 120 mínútna
Íhuga ætti segaleysandi meðferð hjá öllum sjúklingum með STEMI utan höfuð-
borgarsvæðisins ef frábendingar eru ekki til staðar. Skerpa þarf á leiðbeiningum á
suðursvæði þar sem blóðþynningarlyf eru gefin marktækt sjaldnar en á norðursvæði.
Símsent hjartalínurit og beint samband við hjartalækni myndi auðvelda greiningu og
flýta meðferð. Samræmd skráning í STEMI-gagnagrunn á landsvísu myndi auðvelda
gæðaeftirlit verulega.
19
Lára Ósk Eggertsdóttir Claessen, Einar Stefán Björnsson,
Óttar Már Bergmann, Sigurður Ólafsson
Lifrarígræðslur á Íslandi: afturskyggn rannsókn
á ábendingum og árangri
Athugunin sýnir að lifrarígræðslu er í vaxandi mæli beitt hér á landi við meðferð
lifrarsjúkdóma á lokastigi. Aukninguna má líklega rekja til vaxandi nýgengis skorpu-
lifrar en aðrir þættir kunna einnig að hafa áhrif. Árangur lifrarígræðslu hjá íslenskum
sjúklingum er góður. Líklegt er að vegna vaxandi nýgengis lifrarsjúkdóma muni þörfin
fyrir lifrarígræðslu halda áfram að aukast hér á landi.
27
Anna Mjöll Matthíasdóttir, Þórólfur Guðnason, Matthías Halldórsson,
Ásgeir Haraldsson, Karl G. Kristinsson
Breytt viðhorf til sýklalyfjaávísana hjá íslenskum
heimilis- og heilsugæslulæknum
Sýklalyfjanotkun er ein helsta orsök sýklalyfjaónæmis hjá bakteríum og er mikilvægt
að draga úr ónauðsynlegri notkun eins og hægt er. Sýklalyfjanotkun, og þá sér-
staklega notkun breiðvirkra sýklalyfja, er mikil hér á landi. Markmið rannsóknarinnar
var að kanna sýklalyfjaávísanir árið 2014 og bera saman við kannanir Embættis land-
læknis 1991 og 1995.
9
Gunnlaugur
Sigurjónsson
Heilsugæsla
í vanda
Sérhver Íslendingur
þarf að hafa eigin heim-
ilislækni. Þá fyrst mun
heilsugæslan geta gegnt
hlutverki sínu sem fyrsti
viðkomustaðurinn þegar
leita þarf til heilbrigðis-
kerfisins.
L E I Ð A R A R