Læknablaðið - 01.01.2016, Síða 12
12 LÆKNAblaðið 2016/102
víkkunar og hvort viðkomandi undirgekkst aðra þræðingu, opna
hjartaaðgerð eða lagðist inn á gjörgæslu, auk legutíma, alvarlegra
fylgikvilla (svo sem heilablóðfalls og alvarlegra blæðinga sem
þörfnuðust blóðgjafar) og dánartíðni innan 30 daga. Úr sjúkraskrá
í héraði voru skráðar niðurstöður fyrsta hjartalínurits auk helstu
tímasetninga, svo sem upphafs einkenna, FSH, fyrsta hjartalínu-
rits og lyfjagjafar með áherslu á blóðflöguhemjandi, blóðþynnandi
og segaleysandi lyf. Frá Neyðarlínu fengust upplýsingar um flutn-
ingstíma og flutningsmáta og fjölda koma á heilbrigðisstofnanir
aðrar en Landspítala Hringbraut. Út frá þessum upplýsingum var
heildarflutningstími (tími frá FSH að komu á Landspítala Hring-
braut) reiknaður, auk tafa sem urðu á meðferð sjúklinga sem farið
var með fyrst á Landspítala í Fossvogi í stað þess að flytja þá beint
á þræðingarstofu á Hringbraut. Við úrvinnslu gagna var landinu
skipt upp í tvo hluta; norðursvæði og Vestmannaeyjar sem er upp-
tökusvæði sjúkraflugvélar, og suðursvæði (sjá mynd 1).
Allar upplýsingar voru skráðar inn í Microsoft Excel og SPSS
Statistics fyrir Windows frá IBM, útgáfa 22. Tölfræðileg úrvinnsla
og myndræn framsetning var unnin í báðum forritum. Viður-
kenndar tölfræðiaðferðir voru notaðar; t-test til að athuga mun á
samfelldum breytum og chi-square og Fisher próf á mismunandi
hópum. Líkindastuðull (p-gildi) <0,05 var talinn gefa til kynna
marktækan mun milli hópa.
Rannsóknin var unnin með leyfi Persónuverndar og Vísinda-
siðanefndar. Leyfi til gagnaöflunar fékkst hjá lækningaforstjórum
allra heilbrigðisstofnana sem höfðu haft sjúklinga með STEMI til
meðferðar hjá sér.
Niðurstöður
Samtals fengu 112 sjúklingar greininguna STEMI á Landspítala
eftir fyrstu samskipti við heilbrigðisstarfsmann utan höfuð-
borgarsvæðisins. Þar af voru 83 (74%) karlar og 29 (26%) konur.
Meðalaldur var 62,7 ár (39-87 ára) en konur voru marktækt eldri
en karlar (67 ára á móti 61 árs; p=0,018). Árlegt nýgengi STEMI á
landsbyggðinni var 47 tilfelli á hverja 100.000 íbúa (sjá mynd 1).
Alls fengu 105 sjúklingar (94%) brjóstverk og áttu fyrstu samskipti
við heilbrigðisstarfsmann að miðgildi 81 mínútu síðar (dreifing:
38-249 mínútur). Tíminn frá FSH þar til fyrsta hjartalínurit var
tekið var að miðgildi 12 mínútur (dreifing: 8-29 mínútur). Sjá
frekari upplýsingar í töflu I.
Áttatíu og sex sjúklingar (76,8%) fengu greininguna STEMI
strax í héraði út frá breytingum á hjartalínuriti, í sjö (6,3%) til-
vikum voru engin teikn um STEMI í upphaflegu hjartalínuriti, í
10 (8,9%) tilvikum var erfitt að túlka rit og í 9 (8,0%) tilvikum var
rit ekki tekið eða fannst ekki (sjá mynd 2).
Á suðursvæði voru 54 af 56 sjúklingum fluttir með sjúkrabíl
og tveir voru fluttir með þyrlu. Á norðursvæði voru 53 af 56
sjúklingum fluttir með sjúkraflugi, tveir voru fluttir með sjúkrabíl
og einn var fluttur með þyrlu.
Sjúklingar með teikn um STEMI í héraði
Af þeim 86 sjúklingum sem álitnir voru með STEMI í héraði
fengu allir nema einn acetýlsalisýlsýru, 47 (54,7%) fengu klópí-
dógrel, 42 (48,8%) enoxaparín, 10 (11,6%) heparín og 22 (25,6%)
beta-hemla (sjá töflu II). Marktækt fleiri sjúklingar á norðursvæði
fengu klópídógrel, enoxaparín og heparín heldur en sjúklingar á
suðursvæði (sjá mynd 3).
Á norðursvæði fengu 97% sjúklinga segaleysandi meðferð
sem ekki höfðu frábendingu fyrir slíkri meðferð. Segaleysandi
lyf var gefið að miðgildi 57 mínútum (dreifing: 10-236 mínútur)
R A N N S Ó K N
Tafla I. Upplýsingar um sjúklinga greinda með STEMI á Landspítala eftir land-
svæðum. Fjöldi einstaklinga (%). Miðgildistími er uppgefinn í mínútum.
Norðursvæði
n=56
Suðursvæði
n=56
p-gildi
Meðalaldur (dreifing) 62 (39-87) 63 (45-86) 0,76
Konur 13 (23) 16 (29) 0,67
Einkenni að FSH (miðgildistími) 90 74 0,27
FSH að hjartalínuriti (miðgildistími) 10 12 0,35
Framveggsdrep 24 (43) 25 (45) 1,0
Endurlífgun* 9 (16) 4 (7) 0,24
Ytri öndunaraðstoð (CPAP) 3 (5) 5 (9) 0,72
Barkaþræðing 2 (4) 2 (4) 1,0
Systólískur BÞ ≤ 90 mmHg** 0 2 0,24
Systólískur BÞ > 160 mmHg** 3 8 0,12
Hjartsláttartíðni ≤ 50 slög/mín** 3 2 1,0
Hjartsláttartíðni > 110 slög/mín** 3 4 0,71
*Fyrir komu á Landspítala Hringbraut. **Við komu á Landspítala. BÞ= Blóðþrýstingur.
Mynd 1. Skipting landsins í norðursvæði að viðbættum Vestmannaeyjum (blátt) sem
er upptökusvæði sjúkraflugvélar og suðursvæði (rautt) þaðan sem sjúklingar eru yfir-
leitt fluttir með sjúkrabíl á Landspítala. Hringirnir sýna fjölda sjúklinga með STEMI
í hverjum landshluta fyrir sig á tveggja ára tímabili (2011-2012) og stöplaritið sýnir
nýgengi STEMI á hverja 100.000 íbúa eftir landshlutum.