Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.01.2016, Side 50

Læknablaðið - 01.01.2016, Side 50
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Einar Guðmundsson geðlæknir eingud@me.com Nýlega var undirritaður að gramsa í gömlum pappírum og rakst þá á hand- skrifaða ræðu aftan á gulnuðum reikn- ingsblöðum. Ræðan var flutt við vígslu heilsugæslu á Fáskrúðsfirði í febrúar 1983. Mér kom í hug að ef til vill ætti ræðan erindi í Læknablaðið, vitandi um almennan áhuga kollega á að varðveita söguna. Auk þess var nýlega ágæt umfjöllun um Franska spítalann í Læknablaðinu, en saga lækninga í Fáskrúðsfjarðarhéraði er um margt óvenjuleg og þar hafa skipst á skin og skúrir. Fyrst nokkur orð um aðdragandann: Ég var læknir á Fáskrúðsfirði árin 1982-1983. Heilsugæslustarfið heillaði og taldi ég mig sæmilega undir starfið búinn, nýkominn með lækningaleyfi og hafði starfað við heilsugæslu á Suðurnesjum, Patreksfirði, Hafnarfirði og Skövde í Svíþjóð. Margt eftirminnilegt átti sér stað í starfinu en það er stjórnunarlegi þátturinn og þau átök sem framundan voru sem hér eru í brennidepli. Á þessum árum var ekki búið að stofna Heilbrigðisstofun Austur- lands og réði læknir staðarins því málum heilsugæslunnar að flestu leyti. Fyrir utan útibúið á Stöðvarfirði var ástandið í héraðinu vægast sagt slæmt, læknisbústaður og heilsugæsla í niður- níðslu. Heilsugæslan var enn í gamla læknisbústaðnum sem er frá 1905. Mér líkaði ástandið illa og byrjaði strax að reyna að bæta úr. Var mér misjafnlega tekið með þá málaleitan. Fáskrúðs- fjörður var talsvert pólitískur bær og mikil óánægja sumra sveitarstjórnarmanna í garð læknastéttarinnar, ástand læknisbú- staðarins var sagt lélegri umgengni lækna að kenna og var hann almennt talinn í alveg nógu góðu ástandi fyrir þá. Auk þess var töluverð reiði út af viðskiptum tengdum apótekinu, sem heyrði þá enn undir lækninn. Fáskrúðsfjörður hafði búið við þá sérstöðu að hafa einungis haft tvo lækna frá upphafi, í rúmlega 70 ár, fyrst Georg Georgsson og síðar Harald Sigurðsson, frá 1940 fram yfir 1970. Hann mun hafa komið frá námi sem flóttamaður með Petsamó-skipinu fræga í upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar og orðið eftir á Fáskrúðsfirði og starfað þar alla sína læknistíð. Þessi blómatími lifði í hugum bæjarbúa og var mikil óánægja með hvað læknar höfðu stoppað stutt árin áður en ég kom. Ástandið var svo slæmt að þegar ég hóf störf 1. apríl 1982 var ég fjórði læknirinn það árið auk þess sem héraðið var í raun læknislaust allan mars, en var sinnt frá Djúpavogi. Einn góður kollegi hafði nýlega misst það út úr sér að hann væri bara þarna á vertíð, sem var eins og að kasta olíu á eldinn. Varðandi ástand heilsugæslunnar sjálfrar var svarið að ný stöð væri í bygg- ingu og að þá myndu öll vandamál leys- ast. Ég komst hins vegar ekkert áfram með bæjarstjórn varðandi læknisbústaðinn. Lagði hún aftur á móti töluverða vinnu í að leita leiða til að lækka laun læknisins, sem hún virtist sjá ofsjónum yfir. Fyrir bæjarstjórnarkosningar vorið 1982 brá ég á það ráð að ljósmynda ástandið innandyra með Polaroid-vél sem fram- kallaði myndir jafnóðum. Gekk ég síðan Minningar og minjar frá Fáskrúðsfjarðarlæknishéraði Mynd af Georg Georgssyni héraðslækni í sínu vopnabúri á Fáskrúðsfirði í byrjun síðustu aldar. Ljós- myndari óþekktur. Myndir úr eigu Alberts Eiríks- sonar. 50 LÆKNAblaðið 2016/102

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.