Læknablaðið - 01.10.2016, Qupperneq 3
Málverk Guðnýjar Kristmannsdóttur (f. 1965) sem er á
forsíðu blaðsins er í raun flennistórt, eða yfir þrír metrar
á breidd og tveir á hæð. Andspænis því stendur maður
frammi fyrir óreiðu ýktrar pensilskriftar, blæbrigðaríkrar
áferðar og glannalegrar litagleði. Séð úr mikilli fjarlægð
eða samþjappað á ljósmynd
kemur einhvers konar vera í ljós.
Heiti verksins vísar til þeirrar veru:
Peacock, Self-Portrait with Strap
on Dildo. Málverkið sem er frá 2014
samanstendur af olíulit og blandaðri
tækni og uppistaðan er viðarflekar.
Guðný hleður verk sín gjarnan kyn-
ferðislegri skírskotun þar sem leik-
ur, húmor og sköpunargleði ráða
för. Hún hrífst af hugmyndum súr-
realistanna sem höfnuðu ásköpuð-
um gildum hins borgaralega sam-
félags og leituðu óheftrar tengingar
við undirmeðvitundina þar sem
draumar, vonir og þrár fengju útrás í frjálsum leik. Hún
hefur sagt að margar hugmyndir kvikni í draumi, hún taki
þeim iðulega fagnandi og reyni að miðla í verkum sínum.
Myndefnið sprettur úr náttúrunni í bland við kunnuglegar
vísanir sem tengjast munúð og erótík. Páfuglinn er kunnur
af fjaðraskrauti sínu sem hefur hlutverki að gegna í æxl-
unarferli tegundarinnar, en karlfuglinn skartar því og reyn-
ir að hrífa með því kvenfugla. Guðný karlgerir sjálfsmynd
sína ekki aðeins með þeirri vísun heldur ennfremur með
því að bæta áföstum gervilim við heildarmyndina. Þannig
snýr hún upp á staðlaðar ímyndir kynjanna með óvenju-
legum og nokkuð gamansömum hætti. Í öðrum verkum
sínum vísar hún einnig til
dýra, til dæmis kanína og
fiðrilda, sem oft eru notuð
sem kynferðislegar tákn-
myndir. Guðný sýnir þessi
klisjukenndu viðfangsefni á
persónulegan hátt í verkum
sínum. Hún ummyndar
þau og afmyndar með fjöl-
breyttu handbragði sem fer
á milli óreiðu og nákvæmni.
Hið munúðarfulla og
náttúrulega er jafnframt
framandgert með vísun í
hið óhugnanlega og mann-
gerða án þess þó að í þeirri framsetningu felist dómur um
rétt eða rangt, gott eða slæmt. Guðný fagnar nautninni
sam falin er í frjóvgunarferlinu, hvort heldur það á við í
erótískum leikjum og kynlífi mannfólksins eða sköpunar-
gleði listamanna.
Markús Þór Andrésson
LÆKNAblaðið 2016/102 419
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
í leyfi
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
12.900,- m. vsk.
Lausasala
1290,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu. Blað þetta má eigi
afrita með neinum hætti, hvorki að hluta
né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð-
ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir)
í eftirtalda gagnagrunna: Medline
(National Library of Medicine), Science
Citation Index (SciSearch), Journal Cita-
tion Reports/Science Edition, Scopus
og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S
NÝTT
Ný meðferð við langvinnri lungnateppu
—byggt á sterkum rótum SPIRIVA1–5
IS
S
pl
-1
5-
01
-0
3
A
ug
us
t 2
01
5
• SPIOLTO RESPIMAT er SPIRIVA RESPIMAT eflt með STRIVERDI RESPIMAT6
• Virka efnið kemst langt niður í lungu sjúklinganna7–9
• Skammtur gefinn óháð innöndunarflæði10
SPIRIVA®
(tíótrópíum)
STRIVERDI®
(olodaterol)
SPIOLTO® RESPIMAT ®
(tíótrópíum/olodaterol)
TÍÓTRÓPÍUM OG OLODATEROL
SPIOLTO RESPIMAT— nýr möguleiki
Ábending: Berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferð til að lina einkenni langvinnrar lungnateppu (LLT).
Heimildir: 1. Keating GM. Drugs 2014;74(15):1801–1816. 2. Bateman ED, et al. Respir Med 2010;104:1460–1472.
3. Bateman E, et al. Int J Chron Obstruct Pulmon Dis 2010;5:197–208. 4. Wise RA, et al. N Engl J Med 2013;369(16):1491–1501.
5. Tashkin DP, et al. N Engl J Med 2008;359(15):1543–1554. 6. Buhl R, et al. Eur Respir J 2015;45(4):969–979.
7. SPIOLTO RESPIMAT - Samantekt á eigilenkum lyfs. 8. Ciciliani AM, et al. Respiratory Drug Delivery 2014;2:453–456.
9. Pitcairn G, et al. J Aerosol Med 2005;18(3):264–272. 10. Lyseng-Williamson KA, Keating GM. Drugs Ther Perspect 2015;31(2):39–44.
Heiðurs-
málþing
Málþing var haldið í Hringsal
Landspítala um miðjan sept-
ember. Samstarfsmenn og læri-
sveinar Guðmundar Þorgeirs-
sonar prófessors í lyflæknisfræði
komu þá saman til að heiðra
hann við starfslok, votta honum aðdáun og samfagna. Kári Stefánsson, Mark Anderson, Magnús Karl
Magnússon og Einar S. Björnsson leiddu dagskrána með ávörpum og fóru í gegnum feril Guðmundar.
Davíð O. Arnar og Karl Andersen stýrðu samkomunni. Guðmundur hefur alið upp öfluga sveit lyflækna
á spítalanum og stýrt fjölmörgum rannsóknum stórum og smáum. Læknablaðið á honum margt gott upp
að inna og sendir kveðju á þessum tímamótum. -VS