Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 44
460 LÆKNAblaðið 2016/102 starfsfólks batna með byltingarkenndum hætti og vísindastarfið eflast. Við ætlum að byggja hjúkrunarheimili til að bæta þjón- ustu við elstu borgarana og til að auðvelda útskrift sjúklinga af Landspítala. 3. Við viljum efla sérfræðilæknaþjónustu í hinu opinbera heilbrigðiskerfi og skapa heilbrigðisstarfsfólki starfsað- stæður sem standast samanburð við Norðurlöndin. Við viljum líka að sérfræðilæknar verði í fullu starfi á sjúkrahúsunum því það er hagkvæmara og bætir heilbrigðisþjónustuna og öryggi sjúklinga. Landspítalinn er sjúkrahús allrar þjóðarinnar. Þar er flóknasta þjónustan veitt öllum landsmönnum en sérfræðingarnir þar eiga líka að liðsinna heilbrigðisstofnunum um land allt því stundum er betra að þjónustan sé í boði þar sem fólkið býr. Öfl- ugir ríkisreknir spítalar eru lykillinn að besta heilbrigðiskerfi í heimi. Sjálfstæðisflokkur 1. Hlutfall af þjóðartekjum er tæplega besti mælikvarðinn á hver heilbrigðisútgjöld þurfi að vera. Þörf fólks á heil- brigðisþjónustu minnkar ekki í efnahagsáföllum, ekki frekar en hún eykst í góðæri. Sjálfstæðisflokkurinn jók heilbrigðisútgjöld um 16% á kjörtímabilinu, 38 milljarða króna, sem er gríðarleg breyting frá fyrra kjörtímabili og þannig hófumst við handa við endurreisn heilbrigðiskerfisins. — Á þessu kjörtímabili komum við ríkisfjármálunum í það lag að innistæða væri til frekari upp- byggingar á hinu næsta. Það tókst og þess vegna er uppbygging heilbrigðiskerfisins höfuðatriði kosningabaráttu okkar nú. 2. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt kapp á framkvæmda-áætlun um uppbyggingu Landspítalans og jafnframt tryggt fjármögnun hans. Á þessum tíma er viðbúið að talsvert álag verði á einstakar deildir spítalans, en við því verður brugðist á hverjum tíma. Mikilvægt er að stytta legutíma sjúklinga meðal annars með bættari mönnun sérfræðinga á Landspítala, áfram- haldandi uppbyggingu hjúkrunarrýma, öflugri heimahjúkrun og fjölgun endurhæfingarrýma. Þá verður að halda áfram að styrkja heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað sjúklinga í heilbrigðiskerf- inu og létta þannig álagi af LSH. 3. Þetta er langtímaverkefni sem snertir ekki einungis heil-brigðiskerfið. Við viljum efla þekkingargreinar og auka fjölbreytni í atvinnulífi, ekki aðeins til þess að bæta verðmæta- sköpun og nýtt mannauðinn betur, heldur til þess að gera Ísland betra til þess að búa og starfa í. Byggja á undir faglegan metnað og sjálfstæði, góðan starfsanda og tryggja bestu mögulegu starfs- aðstæður. Markmiðið er að tryggja samkeppnishæfni íslenskrar heilbrigðisþjónustu um starfsfólk. Viðreisn 1. Fyrirsjáanlegt er að útgjöld munu aukast. Styrkja þarf heilsugæslu og öldrunarþjónustu vegna þess að nú færast stórir árgangar á efri ár. Það er mjög erfitt að miða við fast hlutfall þjóðartekna þegar ákveðin eru útgjöld til málaflokka. Eðlilegt hlutfall í heilbrigð- ismálum ræðst af aldursskiptingu, dreifingu fólks um landið, breytilegum þjóðartekjum og mörgum fleiri þáttum. Ávallt þarf að gæta þess að nýta fjármagn sem best útfrá hagsmunum al- mennings. Eðlileg nálgun er að setja markmið um árangur sem heilbrigðiskerfið á að ná, til dæmis um styttingu biðlista og gæði þjónustunnar, og rétt almennings alls staðar á landinu til heil- brigðisþjónustu. Útgjöldin eru þá niðurstaða en ekki markmið. 2. Stefna Viðreisnar er að uppbyggingu Landspítala við Hringbraut verði flýtt og lokið eigi síðar en árið 2022. 3. Með uppbyggingu Landspítala skapast mun betri aðstaða en nú og tækifæri til betra skipulags sem gerir spítalann að eftirsókarverðari vinnustað. Mikilvægt er að bæta þjónustuna út um land, t.d. með samvinnu sjúkrahúsa og fjárveitingum til þess að bæta sérfræðiþjónustuna í öllum landshlutum. Vinstrihreyfing in – grænt framboð 1. Vinstri græn vilja að árið 2020 verði heildarútgjöld til heil-brigðismála 10,6% af vergri landsframleiðslu sem er sama hlutfall og hjá Dönum árið 2015. Vinstri græn munu leggja það til að fyrsta verkefni nýrrar rík- isstjórnar verði að móta aðgerðaráætlun til næstu sex ára um það hvernig þessum markmiðum verður náð og sú aðgerðaráætlun liggi fyrir innan þriggja mánaða. Við þetta má bæta að innbyrðis skiptingu opinberra fjárveitinga þarf að breyta sbr. svör við 3. spurningu. 2. Vinstri græn telja það forgangsmál að byggja upp nýjan Landspítala við Hringbraut eins fljótt og kostur er. Hreyf- ingin hefur lagt fram tillögur um byggingasjóð Landspítala sem verði fjármagnaður með tímabundnum auðlegðarskatti og myndi tryggja öruggt fjármagn til að ljúka byggingu nýs meðferðar- kjarna og búa hann tækjum og öðrum búnaði. 3. Miðað við mannfjölda og fjölda læknismenntaðra á Ís-landi ætti ekki að vera almennur skortur á læknum. Hins vegar hefur fjölgun lækna fyrst og fremst orðið á einkastofum úti í bæ sem skýrist m.a. af því kerfi sem hefur verið byggt upp í kringum Sjúkratryggingar Íslands þar sem æ fleiri aðgerðir og læknisverk hafa færst frá sjúkrahúsum á einkastofur sérgreina- lækna. Þessi þróun hefur verið gagnrýnd af ýmsum sérfræðing- um, m.a. landlækni, en hún hefur grafið undan sjúkrahúsunum sem hafa mætt niðurskurði allt frá 2003. Svarið hlýtur að vera að efla annars vegar sérgreinalækningar inni á sjúkrahúsunum og taka upp valfrjálst tilvísanakerfi samhliða styrkingu heilsugæsl- unnar þannig að heilsugæslan fari raunverulega að virka sem fyrsti valkostur. Að lokum má benda á að bygging nýs Landspít- ala með viðunandi vinnuaðstæðum fyrir lækna er auðvitað forsenda þess að hægt verði að bæta mönnunina á spítalanum. S T J Ó R N M Á L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.