Læknablaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 48
464 LÆKNAblaðið 2016/102
Það er orðin alllöng hefð fyrir því að
ritstjórnir og starfsfólk norrænu lækna-
blaðanna haldi með sér árlega fundi. Þetta
árið var röðin komin að Læknablaðinu að
gegna starfi gestgjafa og í byrjun septem-
ber komu hingað um tveir tugir gesta frá
norrænu systurblöðunum fjórum í Noregi,
Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku til skrafs
og ráðagerða.
Fundurinn var að þessu sinni haldinn
á Hótel Marina í gamla slippnum við
Reykjavíkurhöfn og tókst afar vel. Gestirn-
ir komu að kvöldi fimmtudagsins 1. sept-
ember, daginn eftir var fundardagurinn en
svo fór hluti gestanna í skoðunarferð um
Suðurland um helgina.
Fundir þessir eru oftast með því sniði
að fyrir hádegi gefa löndin skýrslu um
starfsemina á árinu og svo er rætt um
rekstrarhorfur blaðanna, stöðuna á auglýs-
ingamarkaði, nýjungar í útgáfunni, ekki
síst netútgáfu blaðanna, og síðast en ekki
síst samskipti ritstjórnanna við eigendur
og útgefendur blaðanna, samtök lækna á
Norðurlöndunum. Eftir hádegi er svo efnt
til málþings þar sem gestgjafarnir leggja
til frummælendur um það sem þeir telja
mikilvægt að miðla til gesta sinna.
Völd og heilbrigði
Læknablaðið bauð að þessu sinni upp á
tvö erindi. Í því fyrra fjallaði Birgir Jak-
obsson landlæknir um stöðuna í íslensku
heilbrigðiskerfi og bar það saman við það
sænska sem hann hefur kynnst vel í störf-
um sínum í Svíþjóð, síðast sem forstjóri
Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi.
Kjarni þess erindis var byggður á skýrslu
sem alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið Mc-
Kinsey gerði fyrir velferðarráðuneytið.
Hitt erindið vakti ekki síður eftirtekt
gesta jafnt sem heimamanna. Það flutti
Torfi Magnússon taugalæknir og var það
að verulegu leyti samhljóða ritstjórnar-
grein sem hann skrifaði fyrir Læknablaðið
í vor og birtist í 5. tölublaði þessa árs. Í
þeirri grein fjallar Torfi um völd og valda-
fíkn.
Ekki verður farið í saumana á erindi
Torfa hér en það fór ekki milli mála að
það snart ýmsa kunnuglega strengi í
hugum áheyrenda, í það minnsta þeirra
sem eitthvað hafa fylgst með gangi mála í
íslenskum stjórnmálum undanfarnar vik-
ur og mánuði. Torfi tók dæmi af tveimur
mönnum sem ótvírætt hafa orðið fyrir því
Norrænar læknablaðaritstjórnir
þinguðu í Reykjavík
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson
Hér eru samankomnir fulltrúar 5 norrænna læknablaða: Läkartidningen, Ugeskrift for læger, Tidsskrift for Den norske legeforening, Læknablaðsins og Lääkärilehti. Einmuna blíða
og gróðurhúsaáhrif léku við fundargesti á bryggjusporðinum á Ægisgarði í Reykjavíkurhöfn. Myndir: Sigdís Þóra Sigþórsdóttir.