Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.2016, Page 48

Læknablaðið - 01.10.2016, Page 48
464 LÆKNAblaðið 2016/102 Það er orðin alllöng hefð fyrir því að ritstjórnir og starfsfólk norrænu lækna- blaðanna haldi með sér árlega fundi. Þetta árið var röðin komin að Læknablaðinu að gegna starfi gestgjafa og í byrjun septem- ber komu hingað um tveir tugir gesta frá norrænu systurblöðunum fjórum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku til skrafs og ráðagerða. Fundurinn var að þessu sinni haldinn á Hótel Marina í gamla slippnum við Reykjavíkurhöfn og tókst afar vel. Gestirn- ir komu að kvöldi fimmtudagsins 1. sept- ember, daginn eftir var fundardagurinn en svo fór hluti gestanna í skoðunarferð um Suðurland um helgina. Fundir þessir eru oftast með því sniði að fyrir hádegi gefa löndin skýrslu um starfsemina á árinu og svo er rætt um rekstrarhorfur blaðanna, stöðuna á auglýs- ingamarkaði, nýjungar í útgáfunni, ekki síst netútgáfu blaðanna, og síðast en ekki síst samskipti ritstjórnanna við eigendur og útgefendur blaðanna, samtök lækna á Norðurlöndunum. Eftir hádegi er svo efnt til málþings þar sem gestgjafarnir leggja til frummælendur um það sem þeir telja mikilvægt að miðla til gesta sinna. Völd og heilbrigði Læknablaðið bauð að þessu sinni upp á tvö erindi. Í því fyrra fjallaði Birgir Jak- obsson landlæknir um stöðuna í íslensku heilbrigðiskerfi og bar það saman við það sænska sem hann hefur kynnst vel í störf- um sínum í Svíþjóð, síðast sem forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi. Kjarni þess erindis var byggður á skýrslu sem alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið Mc- Kinsey gerði fyrir velferðarráðuneytið. Hitt erindið vakti ekki síður eftirtekt gesta jafnt sem heimamanna. Það flutti Torfi Magnússon taugalæknir og var það að verulegu leyti samhljóða ritstjórnar- grein sem hann skrifaði fyrir Læknablaðið í vor og birtist í 5. tölublaði þessa árs. Í þeirri grein fjallar Torfi um völd og valda- fíkn. Ekki verður farið í saumana á erindi Torfa hér en það fór ekki milli mála að það snart ýmsa kunnuglega strengi í hugum áheyrenda, í það minnsta þeirra sem eitthvað hafa fylgst með gangi mála í íslenskum stjórnmálum undanfarnar vik- ur og mánuði. Torfi tók dæmi af tveimur mönnum sem ótvírætt hafa orðið fyrir því Norrænar læknablaðaritstjórnir þinguðu í Reykjavík ■ ■ ■ Þröstur Haraldsson Hér eru samankomnir fulltrúar 5 norrænna læknablaða: Läkartidningen, Ugeskrift for læger, Tidsskrift for Den norske legeforening, Læknablaðsins og Lääkärilehti. Einmuna blíða og gróðurhúsaáhrif léku við fundargesti á bryggjusporðinum á Ægisgarði í Reykjavíkurhöfn. Myndir: Sigdís Þóra Sigþórsdóttir.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.