Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2016, Síða 6

Læknablaðið - 01.10.2016, Síða 6
sildenafil 50 mg og 100 mg sildenafil 50 mg og 100 mg Notkunarsvið: Ristruflanir hjá karlmönnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Samhliðanotkun efna sem gefa frá sér köfnunarefnisoxíð (s.s. amýlnítrít) og hvers konar nítrata. Karlmönnum sem ráðið er frá því að stunda kynlíf skal ekki gefa lyfið. Sjúklingar sem tapað hafa sjón á öðru auga vegna framlægs sjóntaugarkvilla vegna blóðþurrðar án slagæðabólgu eiga ekki að nota lyfið. Sjúklingar með alvarlega skerta lifrarstarfsemi, lágþrýsting, sjúklingar sem nýlega hafa fengið heilablóðfall eða kransæðastíflu eða hafa þekktan arfgengan hrörnunarsjúkdóm í sjónhimnu mega ekki nota lyfið. Skammtar: Ráðlagður skammtur er 50 mg sem tekinn er eftir þörfum um það bil 1 klst. fyrir samfarir. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 100 mg eða minnka hann í 25 mg. Hámarksskammtur er 100 mg. Hámarksskammtatíðni er einu sinni á sólarhring. Skert nýrnastarfssemi: Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi er mælt með notkun 25 mg skammts. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 50 mg eða 100 mg. Skert lifrarstarfsemi: Mælt er með notkun 25 mg skammts. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 50 mg eða 100 mg. Lyfið er ekki ætlað einstaklingum yngri en 18 ára. Önnur lyf: Mælt er með að gefa sjúklingum sem eru samtímis meðhöndlaðir með CYP3A4 hemlum, öðrum en ritonaviri, 25 mg upphafsskammt. Ritonavir á ekki að nota samtímis sildenafili. Til að draga úr líkum á réttstöðuþrýstingsfalli eiga sjúklingar sem nota alfa-blokka að vera í stöðugu ástandi áður en meðferð með sildenafili hefst. Einnig ætti að hugleiða að hefja meðferð með 25 mg skammti af sildenafili. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er LYFIS ehf. Sími: 534-3500, netfang: lyfis@lyfis.is. Lyfið er lyfseðilsskylt (R) og er ekki með almenna greiðsluþátttöku. Hámarksverð: Sjá verð í lyfjaverðskrá. SmPC: Janúar 2015. 50 mg með deilistriki 9 mm 100 mg 12 mm töflur í pakka 24 NÝJUSTU FRÉTTIR Nú er hver tafla af sildenafili enn ódýrari Sildenafil LYFIS markaðssett í 24 stk. pakkningu

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.