Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2016, Síða 7

Læknablaðið - 01.10.2016, Síða 7
LÆKNAblaðið 2016/102 423 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Streita er almennt hugtak yfir upplifun og líffræðileg viðbrögð við álagi. Víðtækar breytingar í blóðflæði og efnaskiptum undirbúa líkamann fyrir átök og álag. Þeir sem lærðu læknisfræðina á seinni hluta síðustu aldar vissu þetta og að heilinn stýrði framleiðslu streituhormóna í nýrnahettum og um áhrif þeirra á vöðva og hjarta til eflingar í bardaganum við ógnina. Rætt var um jákvæða streitu, þegar streitan nýttist til að flýja, og neikvæða streitu ef hún varð langvinn og skemmandi. Það hafði nefnilega komið í ljós við rannsóknir að streitan gat verið skaðleg fyrir hjarta og æðakerfi og andlega líðan.1 Á nýrri öld hefur þekkingin aukist með betri greiningartækni og rannsóknum á heilastarfseminni. Sýn okkar á starfsemi heilans er að breytast og hin miklu áhrif streitunnar á hann sem líffæri koma í ljós. Viðbrögð við streitunni virðast mun flóknari en talið var. Um er að ræða fjölþætt samspil heila, taugakerfisins alls og margra hórmonakerfa sem móta ekki bara viðbrögð, heldur lífefnafræðilegt jafnvægi og mannleg samskipti. Og rannsóknir á utangenaerfðum sýna stýringu á hegðun og jafnvel hugsun og áhrifum streitu á erfðaefnið. Faraldsfræðilegar rannsóknir mæla aukningu í streitutengdu heilsutapi, til dæmis kransæðasjúkdómum og þunglyndi, og athuganir á lýðheilsu hafa sýnt mikla kostnaðaraukningu í veikindafjarveru vegna sálfélags- legra álagsþátta.2,3 Talið er að allt að einn af hverjum fjórum finni fyrir streitu í starfi. Sjúkleg streita er flokkuð með geðrænum sjúkdómum þrátt fyr- ir að einnig sé um að ræða líkamleg einkenni. Í nákvæmari undir- flokkun er sjúkleg streita látin fylgja sjúkdómum sem koma í kjöl- far áfalla. Áður voru notuð hugtök sem kulnun (Burnout) og skörun er við aðra sjúkdóma, svo sem síþreytu og vefjagigt. Sjúkdómsgreining sjúklegrar streitu byggir enn sem komið er eingöngu á klínískum einkennum. Vegna aukins kostnaðar þar í landi vildu sænsk heilbrigðisyfirvöld efla greiningartækni sem leiddi til þess að gerð voru nákvæmari greiningarskilmerki fyrir sjúklega streitu sem notuð hafa verið síðan 2005 í Svíþjóð. Greiningin byggir á flokkun evrópska sjúkdómsflokkunarkerf- isins (ICD) en skilgreinir að einkennin þurfi að hafa staðið í að minnsta kosti tvær vikur, að til staðar hafi verið streituvaldar í að minnsta kosti 6 mánuði og bætt hefur verið við nákvæmari lýs- ingum á einkennum. Þeim má lýsa á eftirfarandi hátt: Hamlandi ofurþreyta með minnkuðu frumkvæði, skorti á úthaldi eða óeðli- lega mikilli þörf fyrir hvíld. Vitrænar truflanir með minnistrufl- unum og skertri einbeitingu eru mjög áberandi. Lækkað álagsþol. Tilfinningalegt ójafnvægi eða pirringur. Svefntruflanir. Truflandi líkamleg einkenni eins og stoðkerfisverkir, hjartsláttaróþægindi, meltingartruflanir, svimi og viðkvæmni fyrir hávaða og áreiti. Sjúkdómsgangur er oft langdreginn og sjúkleg streita greinist á ólíkum stigum. Aðdragandinn getur verið nokkur ár með breyti- legum styrk einkenna og að lokum skyndilegri versnun þegar alvarlegustu stigum er náð með mikilli vanlíðan og skerðingu á vinnufærni. Engin sértæk meðferð er til. Stuðningur og fræðsla eru mikil- vægir þættir líkt og við endurhæfingu eftir hjartaáfall. Allt er gert til að efla heilastarfsemina á nýjan leik og endurheimta fyrri getu. Oft eru notuð geðlyf til að bæta svefn og gegn sjúklegri depurð og kvíða eða geðsveiflum sem í sumum tilfellum geta komið fram. Yfirleitt er árangur af geðlyfjameðferð nokkuð góður og einkenni um depurð og kvíði dvína á nokkrum mánuðum. Eftir standa ein- kenni um skert minni, einbeitingu og álagsþol sem trufla starfs- getu og lífsgæði verulega. Meðferðin sem beitt er gegn þessum einkennum eru stuðningur, fræðsla og vel skipulögð þjálfun sem tímasett er af nákvæmni og miklu máli skiptir að gerð sé endur- hæfingaráætlun til langs tíma til að skapa öryggiskennd og svig- rúm fyrir hæfilega blöndu þjálfunar og hvíldar. Virkni má ekki auka of hratt. Komið hefur í ljós að regluleg hreyfing hefur mik- il og góð áhrif á bataferlið og margar rannsóknir sýna að dagleg hreyfing í tæpa klukkustund hefur umtalsverð og mikilvæg áhrif á heilastarfsemina ekki síður en á vöðvastyrk og þol. Árangur er góður hjá flestum. Þó er mikilvægt að hafa í huga að meðferð getur tekur langan tíma og að um þriðjungur er enn með einkenni eftir allt að tvö ár. Horfur er þeim mun betri því fyrr sem meðferð hefst.4 Nýjar rannsóknir á heilanum og áhrifum streitu á hann mun breyta sýn okkar á samspil sálar og líkama og auka þekkingu til að lækna streitutengda lífsstílssjúkdóma og efla aðgerðir til heilsu- eflingar og forvarna. Heimildir 1. Brotman DJ, Golden SH, Wittstein IS. The caridovascular toll of stress. Lancet 2007; 370: 1089-100. 2. Levi L. Occupational stress: Spice of life or kiss of death? Am Psychol 1990; 45: 1142-5. 3. Nixon A, Mazzola J, Bauer J, Krueger J, Spector P. Can work make you sick? A meta-analysis of the relationship between job stressors and physical symptoms. Work Stress 2011; 25: 1-22. 4. Glise K, Ahlborg G, Jonsdóttir IJ. Course of mental symptoms in patients with stress-relatede exhaustion: Does sex or age make a difference? BMC Psychiatry 2012, 12: 18. Exhaustion Disorder. New and important diagnosis Ólafur Þór Ævarsson Dr. Med. doi.org/10.17992/lbl.2016.10.98 Sjúkleg streita. Ný og mikilvæg sjúkdómsgreining Ólafur Þór Ævarsson Geðlæknir við Institutet för stressmedicin í Gautaborg og Forvarnir Reykjavík olafur@stress.is sildenafil 50 mg og 100 mg sildenafil 50 mg og 100 mg Notkunarsvið: Ristruflanir hjá karlmönnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Samhliðanotkun efna sem gefa frá sér köfnunarefnisoxíð (s.s. amýlnítrít) og hvers konar nítrata. Karlmönnum sem ráðið er frá því að stunda kynlíf skal ekki gefa lyfið. Sjúklingar sem tapað hafa sjón á öðru auga vegna framlægs sjóntaugarkvilla vegna blóðþurrðar án slagæðabólgu eiga ekki að nota lyfið. Sjúklingar með alvarlega skerta lifrarstarfsemi, lágþrýsting, sjúklingar sem nýlega hafa fengið heilablóðfall eða kransæðastíflu eða hafa þekktan arfgengan hrörnunarsjúkdóm í sjónhimnu mega ekki nota lyfið. Skammtar: Ráðlagður skammtur er 50 mg sem tekinn er eftir þörfum um það bil 1 klst. fyrir samfarir. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 100 mg eða minnka hann í 25 mg. Hámarksskammtur er 100 mg. Hámarksskammtatíðni er einu sinni á sólarhring. Skert nýrnastarfssemi: Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi er mælt með notkun 25 mg skammts. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 50 mg eða 100 mg. Skert lifrarstarfsemi: Mælt er með notkun 25 mg skammts. Með hliðsjón af verkun og þoli má auka skammtinn í 50 mg eða 100 mg. Lyfið er ekki ætlað einstaklingum yngri en 18 ára. Önnur lyf: Mælt er með að gefa sjúklingum sem eru samtímis meðhöndlaðir með CYP3A4 hemlum, öðrum en ritonaviri, 25 mg upphafsskammt. Ritonavir á ekki að nota samtímis sildenafili. Til að draga úr líkum á réttstöðuþrýstingsfalli eiga sjúklingar sem nota alfa-blokka að vera í stöðugu ástandi áður en meðferð með sildenafili hefst. Einnig ætti að hugleiða að hefja meðferð með 25 mg skammti af sildenafili. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er LYFIS ehf. Sími: 534-3500, netfang: lyfis@lyfis.is. Lyfið er lyfseðilsskylt (R) og er ekki með almenna greiðsluþátttöku. Hámarksverð: Sjá verð í lyfjaverðskrá. SmPC: Janúar 2015. 50 mg með deilistriki 9 mm 100 mg 12 mm töflur í pakka 24 NÝJUSTU FRÉTTIR Nú er hver tafla af sildenafili enn ódýrari Sildenafil LYFIS markaðssett í 24 stk. pakkningu

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.