Læknablaðið - 01.10.2016, Page 10
426 LÆKNAblaðið 2016/102
Inngangur
Vaxandi hlutfall of þungra og of feitra er alvarlegt heilsufars-
vandamál um allan heim og hlutfall of feitra hefur tvöfaldast frá
árinu 1980.1,2 Á Íslandi er nú um fimmtungur fullorðinna of feitur.3
Tengsl offitu við aukna tíðni ýmissa sjúkdóma, svo sem sykursýki
af tegund tvö (insúlínóháð sykursýki), háþrýstings, blóðfiturask-
ana og kæfisvefns eru vel þekkt.2,4-7 Fylgisjúkdómar offitu leiða
til aukinnar tíðni hjarta- og æðasjúkdóma og krabbameina ásamt
minnkuðum lífslíkum.8-10 Ýmsar leiðir til megrunar hafa verið
reyndar síðustu áratugi hjá sjúklingum með sjúklega offitu, með-
al annars mismunandi megrunarkúrar, ýmsar atferlismeðferðir,
þjálfunaraðferðir og lyf. Tímabundið þyngdartap næst iðulega og
líðan sjúklinga og ástand fylgisjúkdóma offitu batnar til skamms
tíma. Rannsóknir hafa hins vegar sýnt að engin þessara aðferða
leiðir til varanlegs árangurs hjá sjúklingum með sjúklega offitu.11-16
Sýnt hefur verið fram á að offituaðgerðir eru eina meðferðarúr-
ræðið sem stuðlar að langvarandi þyngdartapi, bættu ástandi
fylgisjúkdóma og betri lifun sjúklinga með sjúklega offitu.17-20
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna árangur maga-
hjáveituaðgerða á rannsóknartímabilinu og þá sérstaklega áhrif
Inngangur: Magahjáveituaðgerðir með kviðsjártækni hafa verið fram-
kvæmdar á Landspítala frá árinu 2001. Aðgerðirnar eru mikilvægur með-
ferðarmöguleiki fyrir sjúklinga með sjúklega offitu. Markmið þessarar
rannsóknar var að kanna langtímaárangur slíkra aðgerða hérlendis.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin tók til 772 sjúklinga sem gengust
undir magahjáveituaðgerð á Landspítala árin 2001-2015. Upplýsinga var
aflað úr framskyggnum gagnagrunni offituaðgerða sem er hluti af sjúkra-
skrárkerfi spítala. Fullnægjandi þyngdartap var skilgreint sem annaðhvort
þyngdarstuðull undir 33 kg/m2 eða meira en helmingstap af yfirþyngd
(%EBMIL skilgreint sem prósenta af tapi á yfirþyngd, umfram þyngdar-
stuðul 25 kg/m2).
Niðurstöður: Meðalaldur sjúklinga var 41 ár. 83% voru konur. Meðal-
þyngd sjúklinga var 127 kg (±20) og líkamsþyngdarstuðull (BMI, kg/m2)
var 44 (±6) að meðaltali. Meðal %EBMIL var 80% eða 57 kg (±15) eftir 1,5
ár, 70% eða 50 kg (±15) eftir 5 ár og 64% eða 48 kg (±14) eftir 10-13 ár.
85% sjúklinga náðu fullnægjandi þyngdartapi með meðaleftirfylgni 7,4 ár
eftir aðgerð. Sjúklingar voru að meðaltali með 2,8 fylgisjúkdóma offitu fyrir
aðgerð. 71% sjúklinga með sykursýki af tegund tvö fyrir aðgerð fóru í fullt
sjúkdómshlé eftir aðgerð. Rúmlega þriðjungur sjúklinga með háþrýsting
eða blóðfituraskanir urðu lyfjalausir eftir aðgerð. Snemmkomna fylgikvilla
fengu 37 (5%) sjúklingar og fór helmingur þeirra í bráðaaðgerð. Síðkomna
fylgikvilla eftir aðgerð fékk fjórðungur sjúklinga (174). Hjá flestum sjúkling-
anna (78%) þurfti að gera endurteknar breytingar á inntöku vítamína og
bætiefna í samræmi við niðurstöður blóðprufa í eftirliti.
Ályktun: Magahjáveituaðgerð hjálpar meirihluta sjúklinga að ná tilsettu
þyngdartapi. Samhliða því fékk meirihluti sjúklinga bót á fylgisjúkdómum
offitu. Snemmkomnir fylgikvillar voru fátíðir en um fjórðungur sjúklinga
fékk síðkomna fylgikvilla sem stundum kröfðust nýrrar aðgerðar. Sjúk-
lingar sem fara í magahjáveituaðgerð þurfa á ævilöngu eftirliti á næringar-
ástandi að halda.
ÁGRIP
aðgerðar á þyngdartap og fylgisjúkdóma offitu. Einnig var tíðni
fylgikvilla aðgerðar könnuð.
Efni og aðferðir
Rannsóknin var framskyggn og tók til 772 sjúklinga sem geng-
ust undir magahjáveituaðgerð með kviðsjártækni á Landspítala á
tímabilinu 2001-2015.
Aðgerðarábending fylgdi viðurkenndum evrópskum stöðlum
fyrir magahjáveituaðgerðir.21 Til þess að uppfylla skilyrði þess
að gangast undir aðgerð þurftu sjúklingar að vera greindir með
sjúklega offitu (BMI>40 kg/m2 eða BMI>35 kg/m2 ásamt alvarlegum
fylgisjúkdómi) (BMI= Body Mass Index, líkamsþyngdarstuðull) og
hafa mistekist að léttast eða viðhalda þyngdartapi til lengri tíma.
Ómeðhöndlaður alvarlegur geðsjúkdómur eða virk áfengis- eða
lyfjafíkn töldust frábending aðgerðar.21 Alvarlegir fylgikvillar sem
kröfðust virkrar meðferðar eða aðgerðar voru skráðir. Ófullnægj-
andi þyngdartap eftir aðgerð er skilgreint sem BMI yfir 33 eða að
hafa misst minna en 50% af yfirþyngdinni (BMI >25).21 Skilgrein-
ing á fullum bata af sykursýki af tegund tvö er fastandi blóðsykur
<5,6 mmól/l og langtíma blóðsykur (HbA1c) <42 mmól/mól í að
minnsta kosti eitt ár án lyfjameðferðar eftir aðgerð.22 Fullur bati af
háþrýstingi er skilgreindur sem blóðþrýstingur <130/85 mmHg, án
lyfjameðferðar í eitt ár. Fullur bati af blóðfituröskunum er fastandi
HDL>1,0 mmól/l hjá körlum og HDL>1,3 mmól/l hjá konum ásamt
tríglýseríð <1,7 mmól/l án lyfjameðferðar.
Áður en aðgerð var ákveðin tóku flestir sjúklinganna þátt í
5-8 vikna þverfaglegri atferlismeðferð á Reykjalundi,23,24 Kristnesi
Árangur magahjáveituaðgerða
á Íslandi 2001-2015
Rósamunda Þórarinsdóttir1 læknanemi, Vilhjálmur Pálmason1 læknanemi, Björn Geir Leifsson2 læknir,
Hjörtur Gíslason2 læknir
R A N N S Ó K N
Fyrirspurnir: Hjörtur Gíslason, hjorturg@landspitali.is
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2skurðsviði Landspítala.
Höfundar hafa útfyllt eyðublað um hagsmunatengsl.
Greinin barst 23. maí 2016, samþykkt til birtingar 19. september 2016.
doi.org/10.17992/lbl.2016.10.100