Læknablaðið - 01.10.2016, Blaðsíða 22
438 LÆKNAblaðið 2016/102
að 25-50 þunga% voru fínni en 63 míkron (<0,063 mm), 5-10% voru
fínni en 15 míkron og minna en 1% var fínna en 4 míkron.24
Gosinu í Lakagígum fylgdi móða úr kvikugösum. Gasið losn-
aði annars vegar úr kvikunni í gosopum (um 100 Mt SO2, 8,3 Mt
HF, 6,8 Mt HCl) og reis upp ásamt vatnsgufu sem gosmökkur yfir
eldstöðvunum og hins vegar við að kvikan storknaði sem hraun
og myndaði þá gasslæðu yfir hraunbreiðunum (um 20 Mt SO2, 6,8
Mt HF, 3,2 Mt HCl).22,23 Ef 120 megatonnum af brennisteinsdíoxíði
er dreift á 240 daga verður meðaltalslosunin um 500.000 tonn á
sólarhring en hún var meiri þegar kvikuuppstreymi var í hámarki.
Til samanburðar má nefna að í gosinu í Holuhrauni var meðal-
talslosunin um 60.000 tonn á sólarhring en var 2,5 sinnum meiri
fyrstu tvær vikur gossins.25
Af lýsingum sjónarvotta má ráða að kvikustrókar náðu 800-
1300 metra hæð og gosmökkurinn að minnsta kosti 12 km hæð
þegar kvikuuppstreymi var í hámarki.22,24 Hár gosmökkur skýrir
mikla dreifingu móðunnar en hennar varð vart um allt land, til
dæmis í Eyjafirði á 7. gosdegi. Staðbundin áhrif frá þeim hluta
móðunnar sem kom frá storknandi hrauni voru mest í eldsveitun-
um. Súrt regn féll öðru hvoru í eldsveitunum. Öskublandið regn
með lykt og bragði af saltpétri og brennisteini féll á þriðja gosdegi
og olli sviða í augum og húð. Gróður visnaði undan því og fékk
gulan lit.26
Áhrif þessa eldgoss á heilsufar Íslendinga voru mikil. 26 Talið er
að allt að 8700 einstaklingar hafi látist af afleiðingum eldgossins.
Loftmengun af völdum brennisteinsdíoxíðs hefur verið mjög mik-
il en ekki er að sjá af heimildum að fólk hafi látist beinlínis af
völdum hennar. Það segir einungis að hún varð ekki lífshættuleg
í byggð, (það er 260 milligrömm í rúmmetra). Til samanburðar má
nefna að hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs sem mældist í byggð í
gosinu í Holuhrauni var 21 milligramm í rúmmetra.25 Ekki er vit-
að hvort fólk hafið dáið úr sjúkdómum tengdum eldgosinu sjálfu,
eins og flúoreitrun.16 Samtímalýsingar eru til um að bændur í
eldsveitunum hafi haft liðbólgur með verkjum og vöðvakrampa.
Einnig voru þeir með sár í munni og á tungu og tennur og tann-
hold sem var svart losnuðu úr munni þeirra. Ekki er auðvelt að
greina hvort hér sé um að ræða lýsingu á flúoreitrun eða skyr-
bjúg.16 Hins vegar er talið að margir hafi látist vegna vannæringar
þar sem hungursneyð fylgdi í kjölfarið.27 Mikið af búfénaði (allt
að 25%) féll vegna flúoreitrunar og skorts á bithögum. Bólusótt
gekk um Ísland árin 1785-1787. Ungt fólk varð mest fyrir barðinu
á henni. Talið er að 1500 manns hafi látist af völdum hennar á
landinu öllu.28 Þannig er talið að landsmönnum hafi fækkað um
10.500 manns á tímabilinu 1783-1786 vegna gossins, farsótta og
lækkunar á fæðingartíðni. Í heild fækkaði Íslendingum úr tæpum
50 þúsundum í tæp 40 þúsund frá árslokum 1783 til ársloka 1786.
Er það um 20% Íslendinga á þeim tíma.27 Að meðaltali létust um
1500 manns á ári frá 1780 til 1783 svo dánartíðnin að minnsta kosti
tvöfaldaðist.27,29 Við góðar aðstæður hefði Íslendingum átt að fjölga
um tæplega 1000 á umræddu tímabili.
Eyjafjallajökull 2010
Gosið í Eyjafjallajökli 2010 var sprengigos að mestu og stóð í 39
daga. Það var miðlungsstórt gos og heildarrúmmál loftborinnar
gjósku var um 0,27 rúmkílómetrar. Gosið í toppgíg (eða toppöskju)
Eyjafjallajökuls hófst 14. apríl eftir alllangan aðdraganda, meðal
annars varð lítið flæðigos norðaustan í hlíðum hans á Fimmvörðu-
hálsi sem stóð frá 20. mars til 12. apríl.
Gosinu í Eyjafjallajökli má skipta í fjóra þætti.30 Fyrsti þáttur,
14.-18. apríl, var sprengigos. Kvikan var súr til ísúr. Gosið fór hægt
af stað, og gosmökkur sást fyrst um kl. 6 að morgni og lagði til
austurs. Aska byrjaði að falla í byggð í Skaftártungu um kl. 19:30.
Hlutfall ösku fínni en 10 míkron (0,01 mm, svifryk) var um 20%.
Gjóskan barst til austurs þrjá fyrstu dagana en á fjórða gosdegi
lagði öskuhlaðinn mökk til suðurs yfir byggðina undir Eyjafjöll-
um. Þennan dag varð askan þar allt að 5,5 cm þykk í byggð, sem
samsvarar um 65 kg á fermetra. Askan úr fyrsta þætti gossins
barst til Evrópu og olli miklum truflunum á farþegaflugi þar og
yfir N-Atlantshaf.7,31
Annar þáttur gossins frá 18. apríl til 4. maí var blandað gos með
lítilli sprengivirkni og hraunrennsli sem bræddi rás undir og með-
fram Gígjökli. Kvikan var ísúr. Bræðsluvatninu sem rann undan
jöklinum fylgdi stundum sterk gaslykt.
Sprengigosið náði nýju hámarki 5. maí þegar mökkurinn náði
10 km hæð og þriðji þáttur gossins hófst með öskufalli til suðaust-
urs yfir Álftaver. Kvikan var nú aftur súr til ísúr. Næstu tvær vik-
ur barst aska til skiptis yfir byggðina undir Eyjafjöllum, í Mýrdal
og Álftaveri nema 14. maí barst askan til vesturs og norðvesturs
yfir Suður- og Suðvesturland, allt til Keflavíkur. Mesta öskufall í
byggð á einum degi var tæplega 1 cm undir Eyjafjöllum, eða um
10 kg á fermetra.
Lokaþáttur gossins hófst 18. maí 2010. Síðustu 5 daga gossins
var vindur austan- og sunnanstæður og ösku úr mekkinum
kyngdi þá niður í Fljótshlíð og í Þórsmörk. Mesta öskufall í byggð
á einum sólarhring var innst í Fljótshlíð 18.-19. maí, um 13 kg á fer-
metra. Dagana 17.-19. maí varð öskufalls vart allvíða á Íslandi, frá
Skagafirði austur til Seyðisfjarðar og frá Biskupstungum austur á
Síðu, yfirleitt smávægilegt.
Gjóskan úr Eyjafjallajökli var mjög fínkorna. Gjóska úr fyrsta
þætti gossins sem féll í meira en 10 km fjarlægð var eingöngu aska,
það er korn minni en 2 mm (2000 míkron) í þvermál.31 Í ösku frá
15. apríl í um 60 km fjarlægð var rúmur helmingur af þunganum,
54 þunga%, fínni en 63 míkron.
Mælingar á kornum smærri en 15 míkron eru stundum gefn-
ar sem hlutfall af rúmmáli. Í sýni frá 15. apríl er rúmmálshlut-
fall korna minni en 15 míkron um 28%. Korn minni en 10 míkron
(svifryk) eru 20% af rúmmáli, korn minni en 4 míkron eru tæp
10% og korn minni en 1 míkron (0,001 mm) eru um 2,5%.10 Loft-
borin aska olli óþægindum sumarið 2010 og lengur og barst meðal
annars til Reykjavíkur.
Áhrif Eyjafjallajökulsgoss 2010 á heilsufar manna
Tvær vísindarannsóknir voru gerðar á áhrifum Eyjafjallajökuls-
goss á heilsufar manna. Rannsókn Hanne Krage Carlsen og félaga
sagði frá bráðum áhrifum eldgossins á heilsufar heimamanna.32
Á svæðinu sunnan og austan Eyjafjallajökuls varð mikið öskufall
og allt að 25% öskunnar var af þeirri stærð að hún gæti komist
alla leið niður í lungnablöðrur (stærð undir 10 míkron). Þau rann-
sökuðu íbúa á svæðinu, alls 207 manns, í byrjun júní 2010. Fólkið
svaraði ítarlegum spurningalistum um heilsufar, bæði andlegt
og líkamlegt, og um heilsu barna sinna og um verndandi búnað
sem notaður hafði verið við öskufalli. Framkvæmd var líkams-
Y F I R L I T S G R E I N