Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2016, Síða 27

Læknablaðið - 01.10.2016, Síða 27
LÆKNAblaðið 2016/102 443 37 ára gamall karlmaður leitaði á augndeild Landspítalans eftir að hafa fengið högg á vinstra augað þegar hann var að meitla steypu. Hann taldi að steinvala hefði skollið á auganu. Við komu var hann með væg óþægindi í auganu, fannst sjón móðukennd og sá græn- leita slikju sem kom og fór. Sjón mældist 1,0 á hægra auga og 0,7 á því vinstra. Augn- þrýstingur var eðlilegur. Við skoðun var vinstra ljósop saman- dregnara en það hægra en ljóssvörun var eðlileg. Við skoðun í slitlampa sást sár á hornhimnunni og óregla dýpra í henni. Ekki greinanlegur litarefnisleki. Forhólfið var eðlilega formað en þar sást mikið af frumum. Þegar ljósgeisla var lýst beint í gegnum ljósopið sást rauður reflex í gegnum lítið gat á lithimnunni (mynd 1). Hvaða þýðingu hefur það? Hver er líklegasta greiningin? Augnbotn vinstra auga er sýndur á mynd 2. Við uppvinnslu var fengin tölvusneiðmynd af auga og augnumgjörð (mynd 3). Hver er greiningin? Aðskotahlutur í auga – tilfelli mánaðarins Elín Björk Tryggvadóttir1 læknir, Óskar Jónsson1,2 læknir, Gunnar Már Zoega1,2 læknir Mynd 1. Skoðun í slitlampa, þar sem ljósi er lýst beint í gegnum ljósop. Mynd 2. Augnbotnaskoðun í slitlampa. Mynd 3. Tölvusneiðmynd af höfði. T I L F E L L I M Á N A Ð A R I N S Fyrirspurnir / corresponding author: Elín Björk Tryggvadóttir: elinb.86@gmail.com 1Augndeild Landspítala, 2Sjónlag augnlæknastöð. Case report: Intraocular foreign body Key words: intraocular foreign body, vitrectomy, eye, trauma. 1Department of Ophthalmology, Landspitali University Hospital, 2Sjónlag Eye Center. Höfundar fengu samþykki sjúklings fyrir þessari umfjöllun og birtingu. Höfundar hafa útfyllt eyðublað um hagsmunatengsl. Greinin barst 18. janúar 2016, samþykkt til birtingar 10. júní 2016. doi.org/10.17992//lbl.2016.10.102. Meðferð við bráðum þvagsýrugigtarköstum Fyrirbyggjandi meðferð gegn þvagsýrugigtarkasti í upphafi meðferðar með þvagsýrulosandi lyfjum Lyf gegn þvagsýrugigt Colrefuz (Colchicin) – 500 míkrógramma töflur / 100 stykkja pakkningar A ct a v is / 6 1 9 0 2 1

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.