Læknablaðið - 01.10.2016, Side 31
LÆKNAblaðið 2016/102 447
Í gegnum tíðina hafa íslenskir læknar þurft að flytja erlendis
til frekara náms í lækningum. Breyting hefur orðið á þessu í
ein staka sérgreinum og má þar nefna heimilislækningar og
geðlækningar. Hægt er að ljúka sérnámi að fullu í þessum grein-
um á Íslandi og öðlast viðurkennd sérfræðiréttindi. Í öðrum
greinum hefur verið boðið upp á hlutasérnám.
Eins og flestum er kunnugt varð hrun vegna manneklu á
lyflækningasviði Landspítala fyrir nokkrum misserum. Forsvars-
menn sviðsins réðust í kjölfarið í uppbyggingu sviðsins með þeim
hætti að fara í samstarf við Royal College of Physicians (RCP).
Markmiðið var að koma á fót vönduðu og viðurkenndu sérnámi
svo almennir læknar á Íslandi sæju hag sinn í að starfa við sviðið
og fá þennan dýrmæta tíma metinn í sitt sérnám. Þessi metn-
aðarfulla og óeigingjarna vinna, unnin með afar takmörkuðu
aukafjármagni, skilaði sér í vönduðu sérnámi sem nýverið fékk
viðurkenningu RCP. Um ræðir fullgilt sérnám til þriggja ára í
lyflækningum og hafa allar 40 sérnámsstöður sviðsins verið fyllt-
ar. Þeir sem það kysu gætu gengið inn í áframhaldandi sérnám
í Bretlandi án vandkvæða. Einnig gefur auga leið að auðsóttara
yrði að fá þennan tíma metinn til sérnáms í Skandinavíu þegar
hægt væri að sýna fram á viðkennt og virt sérnám með vandaðri
skráningu og prófatöku.
Fjöldamargar aðrar sérgreinar á Íslandi hafa nú þegar ráðist í
vinnu við að koma á fót viðurkenndu sérnámi á sínu sviði. Mark-
miðið er það sama og á lyflækningasviðinu: að bjóða upp á vand-
að og viðurkennt sérnám á Íslandi að hluta til eða að öllu leyti.
Breytingar þessar taka tíma og eru kostnaðarsamar en hefðu tölu-
verð áhrif á starfsemi og mönnun Landspítala.
Löngum hefur verið talið að einn af styrkleikum íslensks
heilbrigðiskerfis megi rekja til þess að læknar okkar hafa sótt sér
sérmenntun erlendis. Þannig komi saman þekking frá mismun-
andi stöðum og í því sé fólginn styrkleiki. Bent hefur verið á að í
þessu sé jafnframt fólginn sparnaður fyrir íslenska ríkið, þar sem
viðeigandi land greiðir fyrir sérmenntun læknisins. Hins vegar
missum við allflesta lækna úr landi til fjölda ára og stundum til
frambúðar. Spyrja má hvort breytinga sé þörf.
Lagt er upp með hlutasérnám á flestum sviðum til að byrja
með. Fyrri hluti námsins yrði tekinn á Íslandi en læknar héldu
svo utan í frekara nám til sérfræðiréttinda. Þannig myndi
fyrrnefndur ávinningur breiðrar þekkingar mögulega haldast til
haga. Benda má á að margir læknar byrja sitt sérnám á stofnun-
um sem eru minni en Landspítali og með færri svið sérgreina.
Trú margra er að Landspítali sé vel í stakk búinn til að mennta
fólk á fyrstu árum sérnámsins ef staðið yrði rétt að því.
Ef fyrrihluti náms yrði tekinn á Íslandi myndi tíminn erlendis
styttast um tvö til þrjú ár. Líkur mætti leiða að því að fólk sneri
mögulega frekar aftur til Íslands vegna þessa, bæði vegna þess
að fólk næði að festa betur rætur á Íslandi og erlendu ræturnar
yrðu ekki eins rótgrónar. Aukinheldur nyti íslenskt heilbrigð-
iskerfi starfskrafta læknisins lengur. Vonin er sú að upplifunin af
starfi Landspítala yrði jákvæðari með skipulögðu sérnámi, bættri
mönnun og þannig betra vinnuumhverfi.
Efling sérnáms í lækningum á Íslandi hefði þannig í för með
sér margþætt áhrif. Mögulega hefði hún bein áhrif á mannauðs-
mál með fjölgun lækna, eins og lyflækningasviðið hefur sýnt
fram á. Vinnuumhverfið yrði þannig meira aðlaðandi, bæði fyrir
almenna lækna og sérfræðinga. Með reyndari framlínu lækna í
sérnámi, með áframhaldandi stuðningi sérfræðinga, væri þannig
mögulega boðið upp á betri og öruggari læknisþjónustu en áður.
Létt yrði álagi af sérfræðingum með einfaldari mál og þeir gætu
varið kröftum sínum í flóknari og sérhæfðari tilfelli. Lærimeist-
arakerfi hefði í för með sér auknar kröfur um símenntun sér-
fræðinga og til viðbótar gætu sérnámslæknar tekið þátt í göngu-
deildarþjónustu spítalans í auknum mæli, framkvæmt einfaldar
aðgerðir eða svæfingar og mögulega haft áhrif á lengd biðlista.
Áhugi almennra lækna og sérfræðinga er til staðar. Áhugi
ráðamanna spítalans er til staðar. Áhugi erlendra aðila til sam-
starfs er til staðar. Áhugi fólksins í landinu á bættri heilbrigðis-
þjónustu er til staðar. Ljóst er að verkefnið krefst aukinnar fjár-
veitingar og til þess þarf áhuga ráðamanna þjóðarinnar.
Reglugerðin um vottun á sérnámi á Íslandi sem skrifað var
undir 21. maí 2015 er skýr. Eins og staðan er núna uppfylla fæst
svið Landspítala þau skilyrði sem þarf til þess að tíminn þar yrði
metinn inn í viðurkennt sérnám. Ljóst er að breytinga er þörf í
samræmi við auknar kröfur og sú vinna er þegar hafin á mörgum
sviðum.
Fyrirhugað er málþing um sérnám í lækningum á Íslandi á
komandi Læknadögum og hvet ég lækna eindregið til að fjöl-
menna á það.
Þorbjörn Jónsson formaður
Orri Þór Ormarsson varaformaður
Björn Gunnarsson gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Agnar H. Andrésson
Arna Guðmundsdóttir
Hjalti Már Þórisson
Jóhanna Ósk Jensdóttir
Þórarinn Ingólfsson
Stjórn LÍ
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Sérnám í lækningum á Íslandi
Tinna H. Arnardóttir
læknir á skurðdeild Landspítala
tinna.harper@gmail.com
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.