Læknablaðið - 01.10.2016, Qupperneq 54
470 LÆKNAblaðið 2016/102
F R Æ Ð S L U S T O F N U N L Æ K N A
Fræðslustofnun lækna (FS) og Læknadagar skipa fastan sess í lífi
íslenskra lækna. Tilurð Læknadaga og stofnun FS er rakin í góðri
grein Stefáns B. Matthíassonar sem var skrifuð í tilefni 100 ára
afmælis Læknablaðsins (Læknablaðið 2014; 1, 34). Hlutverk FS er að
sjá um rekstur fræðslustarfsemi lækna og styrkja símenntun og
fræðslustarf lækna. Læknadagar eru fyrirferðarmestir í starfsemi
Fræðslustofnunar. Þetta er glæsileg ráðstefna sem hefur verið
haldin í 13. viku vetrar og lýkur á bóndadegi. Daginn eftir hefur
Læknafélag Reykjavíkur svo haldið árshátíð sína.
Læknadagar og árshátíðin eru mikilvægur vettvangur fyrir
lækna til að fræðast og eiga góða stund saman, sem er mikil-
vægt til að styrkja samkennd innan stéttarinnar. Læknar ólíkra
sérgreina hittast og lyfta sér upp úr amstri hversdagsins. Lækna-
dagar hafa verið fjölsóttir og hafa um 1000 manns sótt ráðstefn-
una undanfarin ár. Það er, að ég held, einstakt í heiminum að jafn
stór hluti lækna í heilu þjóðfélagi safnist saman á þennan hátt og
vonandi tekst að halda þessum viðburðum áfram í sömu mynd
um ókomna tíð.
Læknar senda á vordögum inn beiðni um að fá að halda
fræðsluviðburð, annaðhvort í formi hálfs dags málþings eða há-
degisfyrirlestra og undanfarin ár hafa færri komist að en vilja.
Það er að vissu leyti leitt að þurfa að hafna oft góðum erindum
en á sama tíma sýnir þetta metnað íslenskra lækna til að gera
vel. Læknadagar og rekstur Fræðslustofnunar eru dýrir og eru
gerðir mögulegir með þokkalega digrum sjóði FS. Í reglum FS
segir að hún skuli að öllu jöfnu rekin með þeim hætti að upp-
haflegt stofnfé hennar verði ekki skert, framreiknað skv. vísitölu
neysluverðs. Talsverður hluti af tekjum sjóðs FS kemur af vaxtafé
sem eðlilega sveiflast á milli ára. Því hefur ekki ávallt tekist að
standa við þessi markmið og stundum þurft að ganga á sjóði FS.
Þetta veldur því að undanfarin ár hefur þurft að halda þétt á
spöðunum til að halda kostnaði í lágmarki en á sama tíma halda
uppi þeim gæðastaðli sem læknar hafa vanist. Því þarf til dæmis
stundum að hafna óskum lækna sem vilja bjóða hingað erlendum
gestum, sem er miður, því framlag þeirra er mjög mikilvægur
hluti af Læknadögum og býður líka upp á að úr heimsókninni
verði blómlegt millilandasamstarf.
FS hefur átt gott samstarf við fyrirtæki og hefur reglum Frum-
taka verið fylgt í því samstarfi. Það er viðbúið að tekjur úr þeirri
átt muni minnka á komandi árum sem þýðir þá að hið hóflega
aðsóknargjald mun hækka á næstu árum. Þetta ætti ekki að koma
niður á aðsókn þar sem verð fyrir Læknadaga er mun lægra en
skráningargjald á sambærilegar símenntunarráðstefnur erlendis.
Það er miður að margir læknar eru uppteknir í vinnu á meðan
Læknadagar fara fram og komast því ekki. Því höfum við reynt
að þróa okkur í þá átt að fleiri fyrirlestrar verði teknir upp á
myndband með það fyrir augum að þeir verði aðgengilegir
utan ráðstefnutíma. Þetta er dýrt ef á að gera vel og ekki einfalt
í framkvæmd eða fjármögnun. Það kemst vonandi í viðunandi
farveg á næstu árum.
Við höfum líka reynt að auka veg samfélagsmiðla á ráð-
stefnunni, enda vel þekkt erlendis að líflegar umræður skapast
þar meðan á ráðstefnum stendur. Það tekur tíma fyrir lækna
að venjast þessum miðlum og því hefur FS í samvinnu við
Læknafélag Íslands staðið fyrir nokkrum kvöldum þar sem
notkun samfélagsmiðla í þessum tilgangi er kynnt. Viðbúið er
að vegur samfélagsmiðla og annarra miðla á netinu verði fyrir-
ferðarmeiri í miðlun þekkingar á vegum FS í framtíðinni, og er
það vel, þó það muni ekki koma í stað þess að hitta mann og ann-
an á Læknadögum.
Það er skylda hvers læknis að viðhalda menntun sinni. Það er
mín skoðun að skrá eigi þann tíma sem læknar sinna símenntun
á formlegan hátt. FS er þess megnug að halda utan um þess konar
skráningu sem mætti nýta til framgangs í starfi og launum. Það
verkefni ætti að haldast í hendur við þá jákvæðu þróun sem hef-
ur orðið í sérnámi lækna á Íslandi.
Ég hef leitt FS í nokkur ár og hefur þessi tími verið mjög
skemmtilegur. Allt hefur sinn tíma og ég hef ákveðið að hætta
sem formaður FS eftir næstu Læknadaga. Ég verð áfram í stjórn
FS og í undirbúningsnefnd Læknadaga svo lengi sem ég hef tíma
og þess er óskað. Þetta hefur verið mjög gefandi starf og ég hef
lært mikið af því. Það er mál að linni og ég óska komandi for-
mönnum og stjórnarmönnum velfarnaðar í starfi.
Frá Fræðslustofnun lækna
Tíðni
munnþurrks
sambærileg við
lyfleysu1,2
Er munnþurrkur umkvörtunarefni
sjúklinga með ofvirka þvagblöðru?
Fyrsti ß3-örvinn við ofvirkri
þvagblöðru1,2
Hefur áhrif á öll aðaleinkenni
ofvirkrar þvagblöðru1,2
Tíðni munnþurrks sambærileg
við lyfleysu1,2
Opnaðu umræðu um
ofvirka þvagblöðru við
þína sjúklinga
BET-165760-IC
09.2016
Heimildir: 1. Khullar et al. European Urology 63;(2013):283–295. 2. Nitti et al. J Urol 2013;189:1388–1395
Gunnar Bjarni
Ragnarsson
Yfirlæknir lyflækninga krabbameina á Landspítala
Formaður Fræðslustofnunar lækna
gunnarbr@landspitali.is