Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 24.06.2016, Síða 52

Fréttatíminn - 24.06.2016, Síða 52
Þú leigir hjá okkur sendibíl í stærð sem hentar fyrir þig, með eða án lyftu, og keyrir sjálfur. Hafðu samband í síma 566 5030 – Cargobilar.is Ertu að flytja? Vantar þig sEndibíl? alla föstudaga og laugardaga „Ég var með hanakamb þegar ég var í Hagaskóla og gekk um með anarkistamerki um hálsinn.“ Halla Oddný Magnúsdóttir í viðtali við amk... á morgun Ben Affleck mætti fullur í sjónvarpsviðtal Stórleikarinn bölvar NFL í sand og ösku með tilþrifum Gummi Ben líkt og refur að makast Það hlaut að koma að því segja sumir. Fótboltalýsandinn Gummi Ben er stjarna netheima þessa dagana. Myndbrot af honum að lýsa 94. mínútu í leik Íslands gegn Austurríki á miðvikudaginn hefur ferðast víða á samfélagsmiðlum. Íþróttafréttamaður Telegraph sagði að næst þegar hann óttast refi að stunda kynlíf fyrir utan gluggann sinn þá geti hann sof- ið rótt, það sé einungis íslenskur lýsandi þar á ferð. Dóri DNA sagði það besta við lýsinguna vera hversu óhugnanleg hún er, líkt og verið væri að kveikja í manninum. Á vefsíðunni Reddit var mynd- skeiðið efst og „trending“, það er engin furða enda ótrúleg innlifun hjá manninum. Saga Sig leikstýrir myndbandi Glowie Ljósmyndarinn Saga Sig ein- beitir sér að leikstjórn og mynd- bandagerð um þessar mundir. Hún hóf störf hjá Sagafilm í lok síðasta árs og leikstýrði með- al annars nýju Kristals auglýs- ingunni og tónlistarmyndbandi fyrir Sylvíu Erlu við lagið Gone. Hennar nýjasta verkefni er tón- listarmyndband fyrir söngkonuna Glowie og birtu þær báðar mynd- ir á bak við tjöldin á Instagram. Sumarlegur og nostalgískur fíl- ingur. Arna Ýr, Kylie Jenner Íslands Þau sem fylgja ungfrú Íslandi, Örnu Ýri, á Snapchat (arnayr) hafa eflaust heyrt talað um Tanja lashes. Arna er dugleg að leyfa fylgjendum sínum að kíkja í snyrti- budduna. Þar dásamar hún augnhárin sem tískubloggarinn og netverslun- areigandinn Tanja Ýr framleið- ir. Augnhárin rokseljast í hverri sendingu og þegar Tanja fer með sendingu til Akureyrar standa stúlkur í röðum eftir þeim. Ekki var annað að sjá en að stórleikarinn Ben Affleck (43) hafi verið drukkinn í spjall- þáttaviðtali á dögunum. Ben var þvoglumæltur og sljór til augnanna þegar hann spjallaði við þáttastjórnanda Any Given Wednesday, sem er íþrótta- og poppmenningarþáttur á HBO sjónvarpsstöðinni. Hann hrækti út fúkyrðum um NFL, því þeir settu Tom Bady í bann fyrir að neita þeim um að láta þá fá sím- ann sinn og notaði f-orðið hvorki meira né minna en 17 sinnum í þessu fimm mínútna viðtali. Framkoma Ben varð til þess að fólk fann sig knúið til að skilja eft- ir fremur slök ummæli um hann á samfélagsmiðlum. Einn áhorf- andi sagði „Hann svitnar vodka“ og annar sagði „Fjárinn, fáðu þér aðstoð við alkóhólisma. Þessi tómu augu eru ógnvekjandi.“

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.