Fréttatíminn - 12.08.2016, Blaðsíða 1
frettatiminn.is
ritstjorn@frettatiminn.is
auglysingar@frettatiminn.is
45. tölublað
7. árgangur
Föstudagur 12.08.2016
34 1824
Óhollusta fyrir
veganista 46
44
Allt að gerast
30-60%
AFSLÁTTUR AF
VÖLDUM VÖRUM
ÚTSALAN
ER HAFIN
S. 555 7355 | www.selena.is Selena undirfataverslunBláu húsin Faxafeni
20 SÍÐNA AUKABLAÐ UM SKÓLA OG NÁMSKEIÐ
FÖSTUDAGUR
12.08.16
SNAPCHAT-STJARNA
OG FYRIRMYND
ÍSLENSKRA STÚLKNA
KATRÍN
EDDA
Mynd | Rut
KOMDU ÞÉR
Í RÚTÍNU
EFTIR FRÍIÐ
LAILA LÆTUR
DRAUMANA
RÆTAST
HEITUSTU
TRENDIN
Í HAUST
Í bókinni Á mannamáli tók Þórdís Elva saman hve oft krafist hefur verið gæsluvarðhalds
yfir grunuðum kynferðisbrotamönnum. Hún telur að beita eigi úrræðinu miklu oftar.
Mynd | Víðir Guðmundsson
2
Kynferðisbrot Þórdís Elva
Þorvaldsdóttir rithöfund-
ur gagnrýnir að pilturinn,
sem grunaður er um að
hafa nauðgað tveimur 15
ára stelpum, hafi ekki verið
settur í gæsluvarðhald
strax þegar fyrra málið
kom upp. Yfirvöld hafi ekki
beitt þeim úrræðum, sem
þó eru fyrir hendi.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
„Það lítur út fyrir að enn eitt dæm-
ið hafi bæst í íslenska réttarsögu,
þar sem konur – eða í þessu tilviki
fimmtán ára stúlkur – verða fyr-
ir ofbeldi vegna þess að yfirvöld
nýttu ekki þau úrræði sem þó eru
fyrir hendi, og komu ofbeldis-
mönnunum í gæsluvarðhald. Þetta
nýja mál gæti verið dæmi um slíkt.
Í bókinni Á mannamáli skrifaði
ég kafla um linkind yfirvalda við
að beita gæsluvarðhaldsúrræðinu
gegn grunuðum kynferðisafbrota-
mönnum. Baráttan gegn kynferð-
isofbeldi er og verður erfið og því
er svo mikilvægt að nýta þau úr-
ræði sem við þó höfum,“ segir Þór-
dís Elva Þorvaldsdóttir.
Einn þyngsti nauðgunardómur
sem fallið hefur á Íslandi var yfir
hinum svokallaða kjötaxarmanni
sem hlaut í tvígang fimm ára dóma
fyrir nauðgun, árin 2006 og 2007,
en í öðru tilvikinu misþyrmdi
hann brotaþolanum með kjötexi á
meðan á nauðguninni stóð. Þórdís
Elva fjallaði um málið í grein sem
birtist í Stundinni í haust.
„Þegar hann greip til kjötax-
arinnar var þegar búið að dæma
hann sekan í Héraðsdómi Reykja-
víkur fyrir stórfelldar líkams-
árásir á tvær konur og hrottalega
naugðun á annarri þeirra. Þriðju
konunni hefði auðveldlega mátt
bjarga ef maðurinn hefði setið í
gæsluvarðhaldi. Þjáningar henn-
ar skrifast á reikning íslenskra yf-
irvalda.“
Þórdís Elva bendir á að þar sem
maðurinn hafi ekki verið hnepptur
í gæsluvarðhald hafði hann tækifæri
til að fremja þriðja brotið.
„Og það er ástæða til að rifja upp
hið hörmulega mál frá árinu 2000,
sem kom upp í Keflavík, þar sem
sakborningur í nauðgunarmáli
myrti vitni í málinu; bestu vinkonu
brotaþola. Þótt lögregla hefði undir
höndum myndbandsupptöku, eins
haldbæra sönnun og þær gerast,
var maðurinn samt ekki hneppt-
ur í gæsluvarðhald. Því hafði hann
tækifæri til að fremja morð stuttu
síðar. Þetta eru dæmi um voðaverk
sem koma hefði mátt í veg fyrir.
Þetta mannslíf skrifast á reikning
yfirvalda sem kusu að nota ekki þau
úrræði sem þó voru fyrir hendi.“ Í
lögum segir að vista megi menn í
gæsluvarðhaldi þegar almanna-
hagsmunir eru í húfi. „Telja yfirvöld
að hagsmunir kvenna og hagsmunir
almennings sé aðskildir með ein-
hverjum hætti? Teljast konur ekki
til almennings, ef það flokkast ekki
til almannahagsmuna, að hneppa
menn sem beita konur svona gríðar-
lega alvarlegu ofbeldi, í varðhald?“
Það er auðvelt að vera vitur eft-
ir á og segja að pilturinn, sem nú
er grunaður um tvær nauðganir á
barnungum stúlkum, hafi augljós-
lega verið svo hættulegur að hann
ætti að vista í gæsluvarðhaldi á
grundvelli almannahagsmuna. En
ég vil bara sjá að gæsluvarhaldsúr-
ræðinu sé beitt á skilvirkari hátt í
kynferðisbrotamálum almennt. Ég
skora á stjórnvöld að endurskoða
þetta.“
Linkind yfirvalda illskiljanleg
Lögreglumenn hefðu
viljað piltinn í
gæsluvarðhald
Kynferðisbrot
Brúnir Íslendingar
Stöðugt spurðir hvaðan þeir séu
Kraftakonur í heimsklassa
Svekkjandi að vera of létt fyrir mót
Litríkir
leiðsögu-
menn í
Reykjavík
Elta ketti
og vísa á
drauga
Telur að krefjast hefði átt gæsluvarðhalds þegar 19 ára piltur var sakaður um
nauðgun í fyrra sinnið.
Leslie Jones óvænt
stjarna ólympíuleikanna
Lýsingar hennar slá í gegn
KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur
DJI vörurnar
fást í iStore
iStore Kringlunni er
viðurkenndur sölu- og
dreifingaraðili DJI á Íslandi
Inspire 1 v.2.0
Tilboð 309.990 kr.
Verð áður 379.990 kr.
Phantom 4
Tilboð 219.900 kr.
Verð áður 249.990 kr.
Phantom 4
+ 1 aukarafhlaða
Frá 239.990 kr.
Phantom 4
+ 2 aukarafhlöður
Frá 259.990 kr.