Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 12.08.2016, Blaðsíða 52

Fréttatíminn - 12.08.2016, Blaðsíða 52
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Katrín Edda Þorsteins-dóttir, orku- og véla-verkfræðingur hjá Bosch í Þýskalandi, hef-ur vakið mikla athygli á Snapchat síðasta árið, en hún er með um 15 þúsund fylgjendur. Hún er orðin ein helsta fyrirmynd ís- lenskra stúlkna á margan hátt, þá sérstaklega þegar kemur að heil- brigðum lífsstíl og sjálfsstyrkjandi hugsunarhætti. Hún er nú stödd í fríi á Íslandi og hvar sem hún fer kemur einhver og biður um mynd af sér með henni – sem hún leyfir með glöðu geði. En þó Katrín birtist fylgjendum sínum á snapchat sem sjálfsörugg ung kona í dag þá hefur hún svona sannarlega ekki alltaf verið í þeim sporum. Það eru ekki nema nokkur misseri síðan hún hætti að rífa sjálfa sig niður og sífellt hugsa hvað hún væri vitlaus. Hún er einmitt dugleg að miðla því hvernig henni tókst að losa sig við sjálfseyðandi hugsunar- háttinn og fór að trúa á sjálfa sig. Varð allt í einu fyrirmynd Eins undarlegt og það kann að hljóma var það þó súkkulaðiát sem átti einna stærstan þátt í að gera hana svo vinsæla á snapchat. „Ég borða oft mikið af súkkulaði en er samt alltaf í góðu formi og í fyrra heyrði ég orðróm um að ég væri með búlimíu. Ég ákvað því að taka þetta fyrir á snapchat og sagði frá því að ég hefði verið með átrösk- un frá því ég var 13 til 16 ára sem ég náði tökum á. En væri nú meðvit- uð um hvað ég borðaði. Stundum borðaði ég mikið af súkkulaði, en ég gerði það ekki á hverjum degi. Þess á milli væri ég mjög dugleg að æfa og að borða hollan og hreinan mat. Ég sagði Íslendinga alltof mik- ið í því að gera lítið úr fólki í stað þess að hrósa.“ Eftir þessa ræðu Katrínar á snapchat varð sprenging í fjölda fylgjenda hennar. Það voru svo margir sem tengdu við það sem hún var að segja og langaði að vita meira um þessa skeleggu stúlku. „Ég fékk svo mikið af skilaboð- um með allskonar lífsreynslusög- um og ég táraðist yfir þessum við- brögðum og sögurnar tóku á mig. Þetta voru stelpur frá tíu ára aldri og mömmur sem voru að hafa sam- band við mig. Þarna sá ég að ég gæti verið fyrirmynd og fór að tala meira um hvernig ég væri og hvað ég hefði gert til að komast á þann stað sem ég er í dag,“ segir Katrín en hún reynir að svara flestum sem hafa samband við hana, sérstaklega ef viðkomandi líður illa eða er óá- nægður með sjálfan sig. Gerði eins og aðrir sögðu Katrín var nefnilega þannig sjálf. Hún átti líka erfitt með að taka ákvarðanir. Fannst einfaldast að elta aðra eða fylgja leiðbeiningum Fór að trúa á sig Leiðbeinandi Katrínar í starfsnáminu hafði mjög jákvæð áhrif á líf hennar og var duglegur að benda henni á að hún hefði alla burði til að ná langt. Mynd | Rut Á framabraut hjá þýsku stórfyrirtæki Katrín Edda var dugleg að rífa sjálfa sig niður og telja sér trú um að hún væri vitlaus. Í mastersnáminu sínu öðlaðist hún hins vegar sjálfstraust sem hefur gefið henni styrk til að takast á við krefjandi verkefni. Hún heldur úti vinsælu snap- chati og er orðin ein helsta fyrirmynd ungra stúlkna á Íslandi í dag. um hvað hún þyrfti að gera til ná árangri í lífinu. „Ein vinkona mín fór í Versló og ég ákvað að fara líka. Mig langaði eiginlega mest í MH því bróðir minn var þar, en svo var enginn sem ég þekkti að fara þangað. Fyrrverandi kærastan hans mælti einmitt með því að ég færi á náttúrufræðibraut því það væri svo góður grunnur. Þannig ég ákvað að gera það. Ég komst svo fljótlega að því að áhugi minn lá í raun þar. Ég hafði engan áhuga á hugvísindum. Ég fór líka í iðnaðarverkfræði eins og hún. Því mér var sagt að það væri gott að læra verkfræði.“ Þar kynntist hún fjórum stelpum sem í dag eru henn- ar bestu vinkonur. Þær lærðu alltaf saman í BS náminu og Katrín segir það alveg hafa bjargað sér, enda var hún líka að keppa í fitness á þess- um tíma og starfaði á þremur vinnu- stöðum. „Ég fékk að oft að heyra að ég væri ofvirk og að ég hlyti að vera mjög skipulögð. Ég er vissulega mjög ofvirk en ég er alls ekki skipu- lögð. Ég geri bara það sem til þarf til að ljúka við þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur. Ég var frekar glöð á þessum tíma, þó ég væri mjög upptekin. En ég get vakað frekar mikið og samt haldið athygli,“ út- skýrir hún. Hvetjandi leiðbeinadi Sá hæfileiki kom sér einmitt líka vel síðari hluta meistaranámsins, þegar Katrín þurfti helst að vera á nokkrum stöðum í einu. „Þegar ég var hálfnuð með námið þá áttaði ég mig á því að ég þurfti að fara í starfsnám. Ég frétti að Bosch væri góður staður fyrir það og sendi umsóknir á allar deildir. Það sem ég vissi reyndar ekki var að venju- lega tæki fólk sér frí frá náminu á meðan það væri í starfsnáminu, og námið væri því í raun tvö og hálft ár. Þannig ég tók þetta með nám- inu,“ segir hún hlæjandi. Katrín komst í starfsnám í fram- leiðsludeild hjá Bosch, þrátt fyrir að það tengdist náminu hennar ekki beint. En hún fékk frábæran leið- beinanda sem átti eftir að hafa mjög jákvæð áhrif á líf hennar. Þá þurfti hún líka að fara að taka sjálfstæðar ákvarðanir, sem henni fannst mjög erfitt í fyrstu. „Ég var kannski beðin um að hækka hillu og ég hljóp til yfir- manns míns og sagðist ekki vita hversu mikið ég ætti að hækka, þó það skipti í raun ekki máli. Það voru alltaf koma upp svona ómerkilegar ákvarðanatökur sem skiptu engu máli, sem mér þóttu mjög erfiðar. Svo var ég alltaf að rífa mig niður, segja sjálfri mér að ég væri að gera þetta allt vitlaust. En yfirmaðurinn minn var mjög duglegur að „peppa“ mig, segja að ég væri mjög klár og ég gæti alveg gert þetta. Ég hefði alla burði til að ná mjög langt.“ Var hreinskilin í starfsviðtali Hún fann það á þessum tíma að hugsunin hennar var að styrkjast. „Ég vissi vel að ég væri ekki heimsk. Smám saman fór ég að geta sagt sjálfri mér að ég gæti þetta alveg.“ Leiðbeinandinn bauð henni svo að vera verknemi í Bosch og mæta einu sinni í viku á meðan hún væri að gera mastersverkefnið sitt. „Þá var ég ennþá inni í fyrirtækinu og meiri líkur á því að ég gæti fengið vinnu innan Bosch í framtíðinni,“ útskýrir Katrín sem fékk svo fram- tíðarstarf hjá fyrirtækinu skömmu áður en hún lauk náminu. Hún er mjög stolt af því hvern- ig hún tæklaði starfsviðtölin, enda fannst henni hún loksins vera til- búin að takast á við krefjandi starf. „Ég var svo vel undirbúin fyrir starfsviðtalið. Eftir að hafa talað við leiðbeinandann minn í verk- náminu þá fannst mér ég geta allt. Í viðtalinu lýsti ég því nákvæmlega hvernig ég væri og laug engu. Það er týpískt að vera spurður út í galla í atvinnuviðtali og þegar sú spurn- ing kom þá var ég bara hreinskil- in. Ég reyndi ekki að segja að væri með of mikla fullkomnunaráráttu, sem er týpískt svar. Það er alls ekki ég. Ég geri allt vel, en er aldrei að dútla við síðustu slaufuna. Ég geri hlutina hratt og vel. Ég sagði að minn helsti galli væri að ég ætti það til að vera óákveðin, en ég væri búin að vinna virkilega mikið í því. Að taka ákvarðanir og vera óhrædd við að gera mistök. Ég sagðist hafa gert mörg mistök í gegnum ævina en samt væri ég komin á þennan stað. Svona viðtal snýst svo mikið um að kynna sjálfan sig rétt og það er mikilvægt að koma hreint fram.“ Einkunnir skipta ekki öllu Katrín segist oft vera spurð að því hvort hún hafi ekki þurft að vera með rosa góðar einkunnir til að fá vinnu hjá Bosch, en hún segir það alls ekki málið. Hún hafi vissulega verið með ágætis einkunnir, en það hafi klárlega ekki haft úrslitaáhrif. „Þeir báðu um einkunnaspjaldið mitt en ég var örugglega með lægri einkunnir og verri mastersritgerð en margir aðrir umsækjendur, en samt fékk ég vinnuna. Samt er ég búin að fá stöðuhækkanir síðasta árið og endalaust hrós fyrir mín störf.“ Þegar hún var komin með starf- ið vissi hún reyndar ekkert hvað hún var að fara að gera. „Ég hélt að þau byggjust við því að ég vissi allt um bílvélar. Svo áttaði ég mig á því að þau voru að ekki að leita mann- eskju sem kynni allt sem þurfti að gera, heldur manneskju sem gæti lært það. Ég hef líka fengið mjög mikla hvatningu innan fyrirtæk- isins, sem er nýtt fyrir mér,“ segir Katrín sem er nú orðin mjög dugleg að taka af skarið í vinnunni og koma með hugmyndir. Eitthvað sem hún gat ekki fyrir nokkrum árum. Það hefur borgað sig því hún er nú far- in að stýra verkefni sem teygir anga sína til Indlands og er hún einmitt að fara þangað í vinnuferð í ágúst. Katrín á snapchat: katrinedda1 Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti. …viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016 Ég fékk svo mikið af skila- boðum með allskon- ar lífsreynslusögum og ég táraðist yfir þessum viðbrögðum og sögurnar tóku á mig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.