Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 12.08.2016, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 12.08.2016, Blaðsíða 54
RISA ÚTSALA!FJÁRFESTU Í HEILSUNNI HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 VERSLAÐU Á WWW.GÁP.IS ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR 38.950,- ÁÐUR 77.900,- MONGOOSE TYAX SPORT 29 MONGOOSE CROSSWAY SPORT REIÐHJÓLAFATNAÐUR FRÁSHIMANO, PEARL IZUMI OG ADIDAS 50% AFSLÁTTUR 130.425 ÁÐUR 173.899,- 25% AFSLÁTTUR 80.430,- ÁÐUR 114.900,- 30% AFSLÁTTUR MONGOOSE SELOUS SPORT Flest þekkjum við hvað það getur verið erfitt að koma sér aftur rútínu eftir gott sumarfrí. Í fríinu leyfir maður sér gjarnan að borða óhollari mat, hreyfa sig minna og bara heilt yfir ástunda óheilbrigðara líferni en venjan er. Þó maður viti líklega innst inni hvað er best fyrir mann að gera í þeim aðstæðum þá getur verið gott að hafa leiðarvísi við höndina. Hér er einn slíkur. Byrjaðu strax í hollustunni Sumir halda að það sé best að venja sig hægt og rólega aftur á að borða hollan og næringarrík- an mat, en ekki reyna að telja þér trú um að það sé málið. Byrjaðu fyrsta daginn eftir frí á hollum og staðgóðum morgunverði. Til dæm- is hafragraut, eggi, grískri jógúrt með múslí, eða grófu ristuðu brauði með avókadó. Ef afsökunin er sú að þú hafir ekki náð að fara í búð eftir fríið, þá er til dæmis hægt að fá gríska jógúrt til að taka með á flestum kaffihúsum. Ef þú kemst í gegnum fyrsta daginn án þess að falla fyrir freistingum þá verður annar dagurinn miklu auð- veldari og svo koll af kolli. Kauptu í matinn Farðu í búð og kauptu í matinn eins fljótt og hægt er eftir að fríinu lýkur. Fylltu ísskápinn og skápana af hollum mat. Það er fátt verra en matarlaust eldhús, því það er of gild afsökun fyrir því að panta bara pítsu. Passaðu þig bara að fara ekki svöng/svangur í búðina, það er ávísun á stórslys í matarinn- kaupum. Eigðu það sem þú þarft Gerðu matseðil nokkra daga fram í tímann þannig að þú kaupir það sem þig vantar, en engan óþarfa. Með því spararðu líka peninga. Hafðu einnig í huga að þú þarft hollt millimál til að grípa í til að koma í veg fyrir að þú dettir í óhollustu. Það er betra að eiga það til þegar þörfin hellist yfir þig. Þá er gott fjarlægja allar freistingar sem gætu leynst í skápunum eftir sumarfríið. Eldaðu og frystu Til að falla ekki í freistni þegar mikið er að gera í vinnunni og grípa skyndibita á leiðinni heim, er sniðugt að eiga alltaf frosinn mat í frystinum. Notaðu einn dag í mánuði til að elda rétti sem hægt er að geyma í frysti og grípa í. Til dæmis lasagna, pottrétti eða kjötbollur. Þetta flokkast allt sem venjulegur heimilismatur sem er bara þokkalega hollur með réttu meðlæti. Hægt er að hafa skammt- ana mismunandi stóra, þannig þeir henti bæði einstaklingum og allri fjölskyldunni. Veldu salat Ef þú ferð með vinnufélögunum út að borða í hádeginu, reyndu þá að fá þér salat. Þér mun líða miklu betur seinni part dagsins en ef þú færð þér hamborgara. Reyndu að velja salat með miklu grænmeti og passlega miklu af fitu og próteini. Kjúklingur og rækjur eru góður kostur í salatið og avókadó í hóf- legu magni. Óskaðu svo eftir því að fá salatdressinguna til hliðar þannig þú getir ráðið því hvað þú notar mikið af henni. Komdu skipulagi á hreyf- inguna Sumir eru mjög virkir í sum- arfríinu sínu og stunda ýmsar íþróttagreinar, eins og hjólreiðar, kajakróður og fjallaklifur. Svo eru hinir sem kjósa frekar að slaka á gera bara alls ekki neitt. Það skipt- ir eiginlega ekki máli í hvorn flokk- inn þú fellur, það er alltaf best að koma strax skipulagi á hreyf- inguna eftir frí. Þetta er stundum verið erfitt því vinnan getur verið yfirþyrmandi eftir fríið, en mundu bara að smá hreyfing er betri en enginn hreyfing. Takmarkaðu félagslífið Eftir fríið getur verið gott að draga sig aðeins í hlé frá félagslífinu um tíma. Þetta getur reyndar verið erfitt á sumrin þegar freistandi er að skella sér í bjór eftir vinnu eða fara í ísbúðina eftir kvöldmat. Reyndu frekar að elda heima á kvöldin og fara í ræktina. Það er að minnsta kosti gott að reyna að takmarka áfengisdrykkju við helg- arnar. Hugsaðu þér bara hvað þú sparar mikla peninga á því, sem þú getur svo lagt í ferðasjóðinn fyrir næsta frí. Komdu þér í rútínu eftir frí Ekki reyna að aðlaga þig hversdagslífinu hægt og rólega, byrjaðu strax af krafti á góðum siðum. …heilsa 6 | amk… FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.