Fréttatíminn - 12.08.2016, Blaðsíða 66
Katrín Bessadóttir
katrin@frettatiminn.is
Í gamla daga, áður en það uppgötvaðist að það væri eitthvað til sem heitir les-blinda og skrifblinda og allt þetta, fékk ég algera skóla-
fóbíu. Þetta var alltaf strögl og
ég var bara búin að ákveða að ég
gæti þetta ekki og kynni þetta
ekki,“ segir Laila sem hefur náð
að skapa sér frama á ótal sviðum
þrátt fyrir að alla skólagönguna
hafi verið henni verið talið í trú
um að hún ætti mjög erfitt með
að læra.
Prjónað í spegli
„Ég gat til dæmis alls ekki lært að
lesa í þessu venjulega skólakerfi
en var svo lánsöm að vera í sveit
alla mína æsku á Grímsstöðum á
Fjöllum. Þar lærði ég að lesa hjá
Kristjáni bónda með aðferð sem
var notuð í gamla daga – og varð
alæta á bækur. Ég las allt sem ég
komst í. Þess vegna bý ég að góð-
um orðaforða sem ég nota þegar
ég er að skrifa, ég get leikið mér
að málinu.“
En Laila lærði fleira í sveitinni
en að lesa. „Ég er síðan örvhent,
ofan á allt hitt, og handavinnu-
kennarinn minn hafði sagt mér
að hann gæti ekki kennt mér að
prjóna því ég væri örvhent og þar
við sat. Skólaganga mín gekk að
stórum hluta út á það að mér var
sagt að ég gæti ekki gert eða lært
hitt og þetta. En í sveitinni var
gömul kona sem sagði mér að allir
gætu lært að prjóna, hún myndi
bara finna einhverja lausn. Hún
kenndi mér svo að prjóna með því
að prjóna fyrir framan spegil og
ég horfði í spegilinn. Þannig sneri
þetta rétt fyrir mér og ég lærði að
prjóna.“
Skrifaði 17 þætti fyrir RÚV
Þegar fram liðu stundir ákvað
Laila að reyna aftur við nám.
Ferlið var langt og hún var lengi
að finna sína hillu – vissi ekkert
Aldrei missa
sjónar á draumnum
Lailu Margréti Arnþórsdóttur var talin trú
um það í grunnskóla að ætti erfitt með að
læra. Því trúði hún lengi vel en ákvað fullorðin
að láta á það reyna. Síðan hefur hún verið til
aðstoðar með táknmálskór, skrifað leikrit og
verðlaunahandrit og útilokar ekki frekar nám,
jafnvel í bifvélavirkjun!
Laila Margrét Arnþórsdóttir getur
ekki gefið loforð um að hún sé hætt
að mennta sig þrátt fyrir að búa nú
þegar yfir fjölbreyttri menntun og
reynslu og hefur mörg járn í eldinum.
Mynd | Rut
tekur inn nemendur hvort sem um stúlkur eða pilta er að ræða.
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík
Námið er ein önn þar sem nemendur eru í matreiðslu, ræstingum, fatasaum,
útsaum, prjóni, hekli og vefnaði auk þess eru bókleg fög sem eru
næringarfræði og vörufræði.
Dagskrá á hverri önn:
Dagsferð á Þingvelli og um suðurland.
Tvö foreldraboð eru þar sem nemendur bjóða sínum nánustu í kvöldverðarboð.
Opið hús er þar sem nemendur sýna handavinnu sína og selja kaffi og kökur.
Á haustönn er farin berjaferð og kennt svo hvernig vinna á úr berjunum
þ.e búa til sultu, hlaup og saft.
Boðið er upp á heimavist fyrir þá sem það vilja og ganga nemendur fyrir sem eru utan
af landi. Nemendur fá öll kennslugögn og efni sem notuð eru í handmenntagreinum í
skólanum og er það innifalið í skólagjöldum ásamt fullu fæði.
Eina sem nemendur þurfa að kaupa sjálfi r er lopi í lopapeysu og efni í kjól eða síðbuxur.
Í skólanum er lögð áhersla á hollan mat og að allir réttir séu eldaðir frá grunni.
Skólinn er staðsettur í gömlu og virðulegu húsi þar sem afar góður andi er og
samstarf nemenda og kennara hefur ávalt verið gott og ánægjulegt.
Nemendum hefur þótt mikið að gera í skólanum, enn önnin er stutt og fl jót að líða.
Markmið skólans:
Veita nemendum menntun sem mun nýtast þeim í daglegu lífi .
Veita nemendum upplýsingar um framhaldsnám.
Að námið undirbúi nemendur undir störf í greinum tengdu námi þeirra.
Markmið skólans er að nemendur og kennarar séu glaðir og sáttir við starf sitt og nám.
Nemendur læri vandvirkni, sjálfstraust þeirra og frumkvæði aukist, og að nemendur læri
að vera glaðir og sáttir við lífi ð og tilveruna.
Að markmið náist bæði hvað varðar 85% skólasókn og verkefnaskil.
Umsóknir skal sendast á husrvik@centrum.is.
Umsóknarfrestur er til 24. ágúst, einungis 4 pláss eftir.
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík - Sólvallagata 12 - 105 Reykjavík - sími 551 1578
…skólar og námskeið 6 | amk… FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
Mig langar að læra hjólavið-
gerðir, mér finnst svo gaman
að hjóla. Mig langar svo rosalega
mikið að læra bifvélavirkjun, það er
nauðsynlegt að geta talað af viti við
jeppakallana mína - en hver er að
segja að ég það ekki eftir?