Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 12.08.2016, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 12.08.2016, Blaðsíða 40
40 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 12. ágúst 2016 Ég elska fólkið hérna og fólkið elskar mig. Mér finnst ég hafa fundið nýtt heimili með Njarðvíkur- liðinu, segir körfuknattleiks- konan Carmen Thyson-Thomas. Mynd | Rut Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Það eina sem Ameríkanar vita um Ísland er að Ísland er grænt og að Grænland er hvítt. Það er það eina sem við heyrum í skóla og fyrir utan það þá vissi ég ekk- ert um landið þegar ég kom,“ segir körfuknattleikskonan Carmen Thy- son-Thomas sem flutti til Íslands árið 2014. Carmen er frá Philadelfiu en spilaði með Syracuse-liðinu á sínum háskólaárum en fór svo á samning í Chile og síðar í Slóveníu. Hún leiddi bæði liðin til sigurs sem fyrirliði. „Mér leist vel á að koma hingað þrátt fyrir að vita ekkert um landið svo ég skrifaði undir samning við Keflavík haustið 2014. Við unnum hvorki bikarkeppnina né Dominos- deildina það árið, en það munaði litlu, segir Carmen sem nú er komin í Njarðvíkurliðið og hefur þegar sýnt svakalega takta. „Við tökum þessa titla á næsta tímabili,“ segir hún og hlær. „Borgin mín er mun stærri en allt Ísland svo ég vissi ekkert við hverju ég ætti að búast. En ég elska að vera hérna, algjörlega elska það. Ég elska fólkið hérna og fólkið elskar mig. Mér finnst ég hafa fundið nýtt heim- ili með Njarðvíkurliðinu. Ég hlakka svo mikið til að takast á við næsta keppnistímabil en líka til að hjálpa til við uppbygginguna hér og að vera góð fyrirmynd fyrir ungu stelpurn- ar. Svo þekkjumst við amerísku stelpurnar líka allar, höngum mikið saman og erum mjög nánar.“ „Ég bý í Njarðvík sem er stórkost- legt, í dag. Ég man fyrsta daginn sem ég kom hingað í tíu stiga hita og rigningu í september og hugsaði með mér hvernig í ósköpunum væri hægt að búa hér! En ég kann svo vel að meta þetta núna. Ég fer í göngu- túra í öllum veðrum og nýt þess í botn,“ segir Carmen sem hefur þar að auki fundið ástina. „Kærastan mín er einkaþjálfari í Keflavík og þar sem Keflavík er lítill bær þá vita flest allir að við erum saman. Og mér finnst það fínt, ég fíla vel þessa bæjarstemningu og ég verð bara að segja að þetta er vinalegasta samfé- lag sem ég hef kynnst.“ „Það eina sem ég sakna frá Banda- ríkjunum er McDonald’s! Ég er Am- eríkani og alin upp á skyndibita, ég get ekki að því gert. En þegar ég er að deyja þá fer ég út að grilla, í hvaða veðri sem er.“ McDonald’s það eina sem ég sakna „Borgin mín er mun stærri en allt Ísland svo ég vissi ekkert við hverju ég ætti að búast. En ég elska að vera hérna, algjörlega elska það.“ ORKA NÁTTÚRUNNAR · Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn um allt land og sér höfuðborgarbúum fyrir heitu vatni. Við nýtum auðlindir af ábyrgð til að bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð. E N N E M M / S ÍA / N M 6 9 4 0 2 Enn meira rafmagn í umferð í sumar Orka náttúrunnar hefur opnað tvær hraðhleðslustöðvar á Akureyri. Stöðvarnar eru orðnar 13 talsins og er meðal annars að finna á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarnesi, á Selfossi og í Reykjanesbæ. Straumurinn liggur svo sannarlega í vistvænni ferðamáta og ON er stolt af því að leggja sitt af mörkum í þessu hljóðláta samgönguátaki. ON selur hreina og endurnýjanlega íslenska orku til heimila og fyrirtækja um allt land og nú ganga sífellt fleiri rafbílar fyrir orku náttúrunnar. Fylltu á rafbílinn með Orku náttúrunnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.