Fréttatíminn - 12.08.2016, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 12. ágúst 2016
Þær Sunna, Arnhildur, Fanney og Þuríður eiga það allar
sameiginlegt að vera ungar og sterkar. Þær eru sammála
um að hér á landi sé konum velkomið að vera jafn sterkar
og þær vilja og ekki sé litið niður á slíkt eins og erlendis þar
sem konur eiga frekar að vera léttar og grannar. Það sé ein-
faldlega niðurbrjótandi að æfa íþróttir þegar markmiðið er
að skera niður frekar en að byggja sig upp.
Konur á Íslandi þurfa
ekki leyfi til að vera sterkar
Birna Guðmundsdóttir
birna@frettatiminn.is
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
„Ég byrjaði að lyfta í kjölfarið á því
að mamma byrjaði í kraftlyfting-
um fyrir sex árum. Hún er formað-
ur Kraftlyftingasambands Íslands
í dag. Þó það séu bara sex ár síðan
voru konur í kraftlyftingum miklu
meira tabú þá, það mátti enginn
sjá hana keppa og svona. Þegar
mamma byrjaði í þessu fór hún út
fyrir þægindarammann með því
að keppa í keppnisgallanum sem
er svolítið eins og sundbolur. Í dag
myndi ég segja að allir vilji vera í
þeim galla,“ segir Arnhildur.
Fanney: Við Arnhildur erum
búnar að vera bestu vinkonur síð-
an við vorum tveggja ára og það er
hundrað prósent mömmu hennar
að þakka að við byrjuðum í þessu.
Við vorum báðar í fimleikum en ég
fór sjálf illa í bakinu og byrjaði því
á endanum bekkpressu.
Dóttirin byrjuð að æfa
Sunna er atvinnumaður í MMA
bardagaíþróttinni og hóf ferilinn
fyrir aðeins þremur árum í Mjölni.
„Maður var alltaf í íþróttum sem
barn en þegar ég byrjaði í Mjölni
varð ég strax „húkt“. Ég var samt
alltaf í frekar hörðum íþróttum
eins og fótbolta og íshokkíi.“
„Já, það var sama hjá mér,“ segir
Þuríður. „Ég var lengi í fimleikum
og síðan bara alls konar. Það er
kannski ekkert skrítið því í Cross-
Fit eru íþróttirnar svo blandaðar.
Maður þarf að geta synt, hlaup-
ið, lyft og veit aldrei fyrirfram í
hverju verður keppt á CrossFit
móti. Þetta snýst um að vera góður
í öllu en ekki eitthvað geggjað góð-
ur í einu.“
Eru íslenskar konur óvenju sterkar?
„Maður æfir náttúrulega stíft, eins
og fyrir CrossFit leikana. Ég er
búin að æfa í fimm til sex tíma á
dag síðan í febrúar.“
Fanney: „Ja, ég æfi fjórum sinn-
um í viku.“
Sunna: „Mér sýnist konur bara
vera svaka sterkar á Íslandi og það
er mikill áhugi fyrir til dæmis bar-
dagalistum hér á landi. Mjölnir er
með prógram fyrir börn alveg nið-
ur í fimm ára. Dóttir mín er byrjuð
að æfa á fullu, gerði það strax og
hún mátti, en hún er tólf ára.“
Hvers vegna eru þær svona sterkar?
Sunna: Við höfum frelsi til að
vera sterkar.
„Já. Í útlöndum er litið niður á
konur sem eru sterkar – að ég sé
sterk – en það er hreinlega ekki
neitt svoleiðis í gangi hér,“ segir
Þuríður.
„Ég held það sé því við eigum
sterkar fyrirmyndir. Sterkar konur
drífa sterkar stelpur áfram. Það
var til dæmis alveg magnað að sjá
Fanneyju vinna á heimsmeistara-
mótinu tvisvar í bekkpressu. Svo
merkilegt hvað þetta er eitthvað
nálægt manni,“ segir Arnhildur.
Þuríður: Ég held að flest all-
ir CrossFittarar geti verið sam-
mála mér um að Katrín Tanja og
Annie Mist séu fyrirmyndir í þeim
geira. Við erum að tala um að
tvær íslenskar konur hafi sigrað á
heimsmeistaraleikunum í Cross
Fit, fjórum sinnum af níu skiptum.
Fanney: Borghildur Erlingsdótt-
ir, mamma Arnhildar er mín fyrir-
mynd. Hún kom mér náttúrulega
í þetta. Ég keppti við hana einu
sinni og hún vann mig.
Sunna: Gunnar Nelson er og
hefur alltaf verið mín fyrirmynd.
Hann er svo rólegur og með góða
nærveru. Það er bara þannig. Kon-
ur þurfa ekki alltaf að eiga kven-
kynsfyrirmyndir. Það sama á við
um karla.
Oft betra að vera þungur en léttur
„Það má líka bæta því við, með
að vera sterk kona, að það er svo
miklu skemmtilegra að æfa eitt-
hvað til að verða betri, byggja sig
upp og lyfta þyngra. Það er allt
annað en að æfa eitthvað til að
verða grennri og léttari. Það er
bara niðurbrjótandi og í þversögn
við að æfa eitthvað þar sem mað-
ur vill byggja eitthvað upp,“ segir
Þuríður.
„Já, einmitt. Eins og fyrir okkur
í lyftingum. Það er bara venjulegt
að vera spurður: Hvað ertu þung
í dag? Það eru ekki allir sem fíla
það,“ segir Fanney og hlær.
„Sama hér,“ segir Þuríður.
„Stundum hringjumst við Arn-
hildur á og önnur spyr: Hvað ertu
þung? Já, ókei! „You are getting
there!“ Rétt fyrir mót get ég orðið
stressuð og þá verður mér óglatt
„Það er svo miklu
skemmtilegra að æfa
eitthvað til að verða betri,
byggja sig upp og lyfta
þyngra en að æfa til að
verða grennri og léttari.“
Þuríður Erla
Myndir | Rut Arnhildur, Þuríður, Sunna Rannveig og Fanney, eru meðal sterkustu kvenna á Íslandi.
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SELESTE
UMGJÖRÐ Á:
1 kr.
við kaup á glerjum