Fréttatíminn - 12.08.2016, Síða 54
RISA ÚTSALA!FJÁRFESTU Í HEILSUNNI
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR
38.950,-
ÁÐUR 77.900,-
MONGOOSE
TYAX SPORT 29
MONGOOSE
CROSSWAY SPORT
REIÐHJÓLAFATNAÐUR FRÁSHIMANO, PEARL IZUMI
OG ADIDAS
50%
AFSLÁTTUR
130.425
ÁÐUR 173.899,-
25%
AFSLÁTTUR
80.430,-
ÁÐUR 114.900,-
30%
AFSLÁTTUR MONGOOSE
SELOUS SPORT
Flest þekkjum við hvað það getur verið erfitt að koma sér aftur rútínu eftir gott sumarfrí. Í fríinu leyfir maður sér
gjarnan að borða óhollari mat,
hreyfa sig minna og bara heilt yfir
ástunda óheilbrigðara líferni en
venjan er.
Þó maður viti líklega innst inni
hvað er best fyrir mann að gera í
þeim aðstæðum þá getur verið gott
að hafa leiðarvísi við höndina. Hér
er einn slíkur.
Byrjaðu strax í hollustunni
Sumir halda að það sé best að
venja sig hægt og rólega aftur á
að borða hollan og næringarrík-
an mat, en ekki reyna að telja þér
trú um að það sé málið. Byrjaðu
fyrsta daginn eftir frí á hollum og
staðgóðum morgunverði. Til dæm-
is hafragraut, eggi, grískri jógúrt
með múslí, eða grófu ristuðu
brauði með avókadó. Ef afsökunin
er sú að þú hafir ekki náð að fara
í búð eftir fríið, þá er til dæmis
hægt að fá gríska jógúrt til að taka
með á flestum kaffihúsum. Ef þú
kemst í gegnum fyrsta daginn án
þess að falla fyrir freistingum þá
verður annar dagurinn miklu auð-
veldari og svo koll af kolli.
Kauptu í matinn
Farðu í búð og kauptu í matinn
eins fljótt og hægt er eftir að fríinu
lýkur. Fylltu ísskápinn og skápana
af hollum mat. Það er fátt verra
en matarlaust eldhús, því það er
of gild afsökun fyrir því að panta
bara pítsu. Passaðu þig bara að
fara ekki svöng/svangur í búðina,
það er ávísun á stórslys í matarinn-
kaupum.
Eigðu það sem þú þarft
Gerðu matseðil nokkra daga fram
í tímann þannig að þú kaupir það
sem þig vantar, en engan óþarfa.
Með því spararðu líka peninga.
Hafðu einnig í huga að þú þarft
hollt millimál til að grípa í til að
koma í veg fyrir að þú dettir í
óhollustu. Það er betra að eiga það
til þegar þörfin hellist yfir þig. Þá
er gott fjarlægja allar freistingar
sem gætu leynst í skápunum eftir
sumarfríið.
Eldaðu og frystu
Til að falla ekki í freistni þegar
mikið er að gera í vinnunni og
grípa skyndibita á leiðinni heim,
er sniðugt að eiga alltaf frosinn
mat í frystinum. Notaðu einn dag
í mánuði til að elda rétti sem hægt
er að geyma í frysti og grípa í.
Til dæmis lasagna, pottrétti eða
kjötbollur. Þetta flokkast allt sem
venjulegur heimilismatur sem er
bara þokkalega hollur með réttu
meðlæti. Hægt er að hafa skammt-
ana mismunandi stóra, þannig
þeir henti bæði einstaklingum og
allri fjölskyldunni.
Veldu salat
Ef þú ferð með vinnufélögunum
út að borða í hádeginu, reyndu þá
að fá þér salat. Þér mun líða miklu
betur seinni part dagsins en ef þú
færð þér hamborgara. Reyndu að
velja salat með miklu grænmeti og
passlega miklu af fitu og próteini.
Kjúklingur og rækjur eru góður
kostur í salatið og avókadó í hóf-
legu magni. Óskaðu svo eftir því
að fá salatdressinguna til hliðar
þannig þú getir ráðið því hvað þú
notar mikið af henni.
Komdu skipulagi á hreyf-
inguna
Sumir eru mjög virkir í sum-
arfríinu sínu og stunda ýmsar
íþróttagreinar, eins og hjólreiðar,
kajakróður og fjallaklifur. Svo eru
hinir sem kjósa frekar að slaka á
gera bara alls ekki neitt. Það skipt-
ir eiginlega ekki máli í hvorn flokk-
inn þú fellur, það er alltaf best
að koma strax skipulagi á hreyf-
inguna eftir frí. Þetta er stundum
verið erfitt því vinnan getur verið
yfirþyrmandi eftir fríið, en mundu
bara að smá hreyfing er betri en
enginn hreyfing.
Takmarkaðu félagslífið
Eftir fríið getur verið gott að draga
sig aðeins í hlé frá félagslífinu um
tíma. Þetta getur reyndar verið
erfitt á sumrin þegar freistandi
er að skella sér í bjór eftir vinnu
eða fara í ísbúðina eftir kvöldmat.
Reyndu frekar að elda heima á
kvöldin og fara í ræktina. Það er
að minnsta kosti gott að reyna að
takmarka áfengisdrykkju við helg-
arnar. Hugsaðu þér bara hvað þú
sparar mikla peninga á því, sem
þú getur svo lagt í ferðasjóðinn
fyrir næsta frí.
Komdu þér í rútínu eftir frí
Ekki reyna að aðlaga þig hversdagslífinu hægt og rólega, byrjaðu strax af krafti á góðum siðum.
…heilsa 6 | amk… FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016