Fréttatíminn - 12.08.2016, Page 52
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Katrín Edda Þorsteins-dóttir, orku- og véla-verkfræðingur hjá Bosch í Þýskalandi, hef-ur vakið mikla athygli
á Snapchat síðasta árið, en hún er
með um 15 þúsund fylgjendur. Hún
er orðin ein helsta fyrirmynd ís-
lenskra stúlkna á margan hátt, þá
sérstaklega þegar kemur að heil-
brigðum lífsstíl og sjálfsstyrkjandi
hugsunarhætti. Hún er nú stödd í
fríi á Íslandi og hvar sem hún fer
kemur einhver og biður um mynd
af sér með henni – sem hún leyfir
með glöðu geði.
En þó Katrín birtist fylgjendum
sínum á snapchat sem sjálfsörugg
ung kona í dag þá hefur hún svona
sannarlega ekki alltaf verið í þeim
sporum. Það eru ekki nema nokkur
misseri síðan hún hætti að rífa sjálfa
sig niður og sífellt hugsa hvað hún
væri vitlaus. Hún er einmitt dugleg
að miðla því hvernig henni tókst að
losa sig við sjálfseyðandi hugsunar-
háttinn og fór að trúa á sjálfa sig.
Varð allt í einu fyrirmynd
Eins undarlegt og það kann að
hljóma var það þó súkkulaðiát sem
átti einna stærstan þátt í að gera
hana svo vinsæla á snapchat. „Ég
borða oft mikið af súkkulaði en er
samt alltaf í góðu formi og í fyrra
heyrði ég orðróm um að ég væri
með búlimíu. Ég ákvað því að taka
þetta fyrir á snapchat og sagði frá
því að ég hefði verið með átrösk-
un frá því ég var 13 til 16 ára sem ég
náði tökum á. En væri nú meðvit-
uð um hvað ég borðaði. Stundum
borðaði ég mikið af súkkulaði, en
ég gerði það ekki á hverjum degi.
Þess á milli væri ég mjög dugleg að
æfa og að borða hollan og hreinan
mat. Ég sagði Íslendinga alltof mik-
ið í því að gera lítið úr fólki í stað
þess að hrósa.“ Eftir þessa ræðu
Katrínar á snapchat varð sprenging
í fjölda fylgjenda hennar. Það voru
svo margir sem tengdu við það sem
hún var að segja og langaði að vita
meira um þessa skeleggu stúlku.
„Ég fékk svo mikið af skilaboð-
um með allskonar lífsreynslusög-
um og ég táraðist yfir þessum við-
brögðum og sögurnar tóku á mig.
Þetta voru stelpur frá tíu ára aldri
og mömmur sem voru að hafa sam-
band við mig. Þarna sá ég að ég
gæti verið fyrirmynd og fór að tala
meira um hvernig ég væri og hvað
ég hefði gert til að komast á þann
stað sem ég er í dag,“ segir Katrín
en hún reynir að svara flestum sem
hafa samband við hana, sérstaklega
ef viðkomandi líður illa eða er óá-
nægður með sjálfan sig.
Gerði eins og aðrir sögðu
Katrín var nefnilega þannig sjálf.
Hún átti líka erfitt með að taka
ákvarðanir. Fannst einfaldast að
elta aðra eða fylgja leiðbeiningum
Fór að trúa á sig Leiðbeinandi Katrínar í starfsnáminu hafði mjög jákvæð áhrif á líf hennar og var duglegur að benda henni á að hún hefði alla burði til að ná langt. Mynd | Rut
Á framabraut hjá þýsku stórfyrirtæki
Katrín Edda var dugleg að rífa sjálfa sig niður og telja sér trú um að hún væri vitlaus. Í mastersnáminu sínu öðlaðist hún
hins vegar sjálfstraust sem hefur gefið henni styrk til að takast á við krefjandi verkefni. Hún heldur úti vinsælu snap-
chati og er orðin ein helsta fyrirmynd ungra stúlkna á Íslandi í dag.
um hvað hún þyrfti að gera til ná
árangri í lífinu.
„Ein vinkona mín fór í Versló og
ég ákvað að fara líka. Mig langaði
eiginlega mest í MH því bróðir minn
var þar, en svo var enginn sem ég
þekkti að fara þangað. Fyrrverandi
kærastan hans mælti einmitt með
því að ég færi á náttúrufræðibraut
því það væri svo góður grunnur.
Þannig ég ákvað að gera það. Ég
komst svo fljótlega að því að áhugi
minn lá í raun þar. Ég hafði engan
áhuga á hugvísindum. Ég fór líka í
iðnaðarverkfræði eins og hún. Því
mér var sagt að það væri gott að
læra verkfræði.“ Þar kynntist hún
fjórum stelpum sem í dag eru henn-
ar bestu vinkonur. Þær lærðu alltaf
saman í BS náminu og Katrín segir
það alveg hafa bjargað sér, enda var
hún líka að keppa í fitness á þess-
um tíma og starfaði á þremur vinnu-
stöðum.
„Ég fékk að oft að heyra að ég
væri ofvirk og að ég hlyti að vera
mjög skipulögð. Ég er vissulega
mjög ofvirk en ég er alls ekki skipu-
lögð. Ég geri bara það sem til þarf
til að ljúka við þau verkefni sem ég
tek mér fyrir hendur. Ég var frekar
glöð á þessum tíma, þó ég væri mjög
upptekin. En ég get vakað frekar
mikið og samt haldið athygli,“ út-
skýrir hún.
Hvetjandi leiðbeinadi
Sá hæfileiki kom sér einmitt líka
vel síðari hluta meistaranámsins,
þegar Katrín þurfti helst að vera á
nokkrum stöðum í einu.
„Þegar ég var hálfnuð með námið
þá áttaði ég mig á því að ég þurfti að
fara í starfsnám. Ég frétti að Bosch
væri góður staður fyrir það og sendi
umsóknir á allar deildir. Það sem
ég vissi reyndar ekki var að venju-
lega tæki fólk sér frí frá náminu á
meðan það væri í starfsnáminu, og
námið væri því í raun tvö og hálft
ár. Þannig ég tók þetta með nám-
inu,“ segir hún hlæjandi.
Katrín komst í starfsnám í fram-
leiðsludeild hjá Bosch, þrátt fyrir að
það tengdist náminu hennar ekki
beint. En hún fékk frábæran leið-
beinanda sem átti eftir að hafa mjög
jákvæð áhrif á líf hennar. Þá þurfti
hún líka að fara að taka sjálfstæðar
ákvarðanir, sem henni fannst mjög
erfitt í fyrstu.
„Ég var kannski beðin um að
hækka hillu og ég hljóp til yfir-
manns míns og sagðist ekki vita
hversu mikið ég ætti að hækka, þó
það skipti í raun ekki máli. Það voru
alltaf koma upp svona ómerkilegar
ákvarðanatökur sem skiptu engu
máli, sem mér þóttu mjög erfiðar.
Svo var ég alltaf að rífa mig niður,
segja sjálfri mér að ég væri að gera
þetta allt vitlaust. En yfirmaðurinn
minn var mjög duglegur að „peppa“
mig, segja að ég væri mjög klár og
ég gæti alveg gert þetta. Ég hefði
alla burði til að ná mjög langt.“
Var hreinskilin í starfsviðtali
Hún fann það á þessum tíma að
hugsunin hennar var að styrkjast.
„Ég vissi vel að ég væri ekki heimsk.
Smám saman fór ég að geta sagt
sjálfri mér að ég gæti þetta alveg.“
Leiðbeinandinn bauð henni svo
að vera verknemi í Bosch og mæta
einu sinni í viku á meðan hún væri
að gera mastersverkefnið sitt. „Þá
var ég ennþá inni í fyrirtækinu og
meiri líkur á því að ég gæti fengið
vinnu innan Bosch í framtíðinni,“
útskýrir Katrín sem fékk svo fram-
tíðarstarf hjá fyrirtækinu skömmu
áður en hún lauk náminu.
Hún er mjög stolt af því hvern-
ig hún tæklaði starfsviðtölin, enda
fannst henni hún loksins vera til-
búin að takast á við krefjandi starf.
„Ég var svo vel undirbúin fyrir
starfsviðtalið. Eftir að hafa talað
við leiðbeinandann minn í verk-
náminu þá fannst mér ég geta allt.
Í viðtalinu lýsti ég því nákvæmlega
hvernig ég væri og laug engu. Það
er týpískt að vera spurður út í galla
í atvinnuviðtali og þegar sú spurn-
ing kom þá var ég bara hreinskil-
in. Ég reyndi ekki að segja að væri
með of mikla fullkomnunaráráttu,
sem er týpískt svar. Það er alls ekki
ég. Ég geri allt vel, en er aldrei að
dútla við síðustu slaufuna. Ég geri
hlutina hratt og vel. Ég sagði að
minn helsti galli væri að ég ætti
það til að vera óákveðin, en ég væri
búin að vinna virkilega mikið í því.
Að taka ákvarðanir og vera óhrædd
við að gera mistök. Ég sagðist hafa
gert mörg mistök í gegnum ævina
en samt væri ég komin á þennan
stað. Svona viðtal snýst svo mikið
um að kynna sjálfan sig rétt og það
er mikilvægt að koma hreint fram.“
Einkunnir skipta ekki öllu
Katrín segist oft vera spurð að því
hvort hún hafi ekki þurft að vera
með rosa góðar einkunnir til að fá
vinnu hjá Bosch, en hún segir það
alls ekki málið. Hún hafi vissulega
verið með ágætis einkunnir, en það
hafi klárlega ekki haft úrslitaáhrif.
„Þeir báðu um einkunnaspjaldið
mitt en ég var örugglega með lægri
einkunnir og verri mastersritgerð en
margir aðrir umsækjendur, en samt
fékk ég vinnuna. Samt er ég búin
að fá stöðuhækkanir síðasta árið og
endalaust hrós fyrir mín störf.“
Þegar hún var komin með starf-
ið vissi hún reyndar ekkert hvað
hún var að fara að gera. „Ég hélt að
þau byggjust við því að ég vissi allt
um bílvélar. Svo áttaði ég mig á því
að þau voru að ekki að leita mann-
eskju sem kynni allt sem þurfti að
gera, heldur manneskju sem gæti
lært það. Ég hef líka fengið mjög
mikla hvatningu innan fyrirtæk-
isins, sem er nýtt fyrir mér,“ segir
Katrín sem er nú orðin mjög dugleg
að taka af skarið í vinnunni og koma
með hugmyndir. Eitthvað sem hún
gat ekki fyrir nokkrum árum. Það
hefur borgað sig því hún er nú far-
in að stýra verkefni sem teygir anga
sína til Indlands og er hún einmitt
að fara þangað í vinnuferð í ágúst.
Katrín á snapchat: katrinedda1
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
…viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
Ég fékk svo
mikið af skila-
boðum með allskon-
ar lífsreynslusögum
og ég táraðist yfir
þessum viðbrögðum
og sögurnar tóku á
mig.