Fréttatíminn - 12.08.2016, Síða 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 12. ágúst 2016
Sakamál Skotárásina, sem
átti sér stað í Iðufelli um
síðustu helgi, má rekja til
innbrots fyrr í mánuðinum.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Bræðurnir Marcin og Rafal
Nabakowski eru í gæsluvarðhaldi
grunaðir um að hafa skotið á bifreið
í Iðufelli um síðustu helgi með af-
sagaðri haglabyssu. Mennirnir eru
Íslendingar af pólskum uppruna
og hafa báðir hlotið refsidóma fyrir
afbrot. Annar þeirra, Rafal, hefur
áður verið dæmdur fyrir hrotta-
lega líkamsárás þar sem hann svipti
mann frelsi sínu og neyddi meðal
annars foreldra hans til þess að af-
henda sér muni í eigu mannsins.
Skotárásina síðustu helgi má
rekja til innbrots í byrjun mánað-
arins og tengist íslenskum karl-
manni sem vinnur við sælgætisgerð
og er um fertugt. Sá er sagður vel
tengdur þegar kemur að undirheim-
um Reykjavíkur og er sagður hafa
stundað okurlánastarfsemi.
Í stað þess að kæra innbrotið á
hann að hafa stefnt hópi smáglæpa-
manna á hinn meinta innbrotsþjóf.
Sá féllst á að hitta hópinn fyrir utan
sjoppuna í Iðufelli í Breiðholti síð-
asta föstudagskvöld. Þar biðu hans
tugir íslenskra smáglæpamanna.
Vitni lýstu hópnum þannig að
þeir hefðu verið með hvíta klúta
um hálsinn, eða taubleyjur, líkt og
einn sjónarvottur orðaði það í við-
tali við mbl.is. Það hafa þeir líklega
gert til þess að aðgreina sig frá þeim
sem til stóð að ráðast á.
Hinn meinti innbrotsþjófur kom
á vettvang snemma á föstudags-
kvöldinu en leist ekki á blikuna
þegar hann sá taubleyjugengið sem
beið eftir honum. Úr varð að annar
bræðranna á að hafa tekið upp af-
sagaða haglabyssu og skotið á bíl-
inn með þeim afleiðingum að rúður
brotnuðu. Hinn meinti innbrots-
þjófur forðaði sér þá hið snarasta.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um var sérsveit ríkislögreglustjóra
kölluð út í kjölfarið. Hinir grunuðu
fundust þó ekki fyrr en nokkrum
dögum síðar. Hafa bræðurnir nú
verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald
til 12. ágúst. Ekki liggur fyrir hver
það var sem hleypti af.
Friðrik Smári Björgvinsson, yf-
irmaður rannsóknardeildar lög-
reglunnar, sagðist ekki geta gefið
upplýsingar um það hvort aðild Ís-
lendings, sem vinnur við sælgætis-
gerð hér á landi, væri könnuð sér-
staklega. Þá sagði hann fórnarlamb
árásarinnar vera með stöðu vitn-
is, ekki væri kannað hvort hann
hefði brotið af sér sjálfur í tengsl-
um við málið. Þá staðfestir Friðrik
að vopnið hafi fundist.
Bræðurnir tveir eru nokkuð
þekktir í Breiðholti og hafa oft kom-
ið við sögu lögreglu. Þeir eru um
þrítugt og eru sagðir nánir. Báð-
ir eiga langan sakaferil að baki en
Marcin, ólíkt bróður sínum, hefur
ekki verið dæmdur fyrir ofbeldis-
brot.
Skotárásin átti sér stað við sjoppuna í Iðufelli. Mynd | Rut
Bræður í gæsluvarðhaldi
vegna skotárásar
Bræðurnir Marcin (t.v.) og Rafal Nabakowski.
Óskað eftir aðstoð
Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu
óskaði í gær eftir
aðstoð almenn-
ings vegna máls-
ins þar sem nokk-
ur atriði eru enn
óljós. Þess vegna biður
lögreglan alla þá sem telja
sig hafa vitneskju um atvikið,
eiga myndir af vettvangi eða
myndbandsupptökur, að setja
sig í samband við lögreglu.
Hægt er að hringja í 4441000
eða senda tölvupóst á
abending@lrh.is. Þá er einnig
hægt að senda einkaskilaboð
í gegnum Facebook-síðu emb-
ættisins.
Kynlífsánauð eða dauði í Afganistan
Flóttafólk Magnea Marínós
dóttir, alþjóðastjórnmála
fræðingur og sérfræðing
ur í málefnum kvenna í
Afganistan, segir það ganga
þvert á öll verndar og
mannúðarsjónarmið að
senda mæðgurnar Maryam
Raísi og Torpikey Farrash
aftur til Afganistan.
Úr sk u rðu r k æ r u ne f nd a r
útlendingamála í máli afgönsku
mæðgnanna Maryam Raísi og
Torpikey Farrash hefur enn ekki
verið birtur. Þær bíða því enn í
óvissu um framtíð sína, samkvæmt
upplýsingum frá Arndísi Gunnars-
dóttur, lögfræðingi hjá Rauða krossi
Íslands.
Fréttatíminn fjallaði um málið
þann 8. júlí síðastliðinn. Þar kom
fram að mæðgurnar hafa verið
á flótta síðastliðin fimmtán ár en
komu hingað til lands fyrir ellefu
mánuðum eftir að hafa verið synj-
að um hæli í Svíþjóð. Eftir þriggja
mánaða dvöl á Íslandi var um-
sókn þeirra um hæli hafnað, sem
kom lögfræðingi þeirra, Arndísi
Gunnarsdóttur, mjög á óvart, sér-
staklega í ljósi þess að móðirin er
mjög heilsuveil og minnislaus af
áfallastreituröskun. Arndís kærði
niðurstöðu Útlendingastofnun-
ar. Verði úrskurður kærunefndar
sá að mæðgunum verði ekki veitt
hæli af mannúðarástæðum verða
þær sendar aftur til Afganistan.
Magnea Marínósdótttir og Lilja
Hjartardóttir, alþjóðastjórnmála-
fræðingar með sérþekkingu á
málefnum kvenna í Afganistan,
sendu kærunefnd útlendinga-
mála áskorun um að taka málið til
endurskoðunar þann 14. júlí síð-
astliðinn í ljósi sérstakra aðstæðna
kvennanna, sem tilheyra ofsóttum
minnihlutahópi Hazara, og mjög
slæmrar heilsu Torpkey.
„Ofsóknum í garð Hazara hef-
ur ekki linnt og þann 23. júlí síð-
astliðinn gerðu ISIS liðar, sem eru
sunni múslímar, sjálfsmorðsárás á
friðsæmleg mótmæli þeirra í Kab-
úl, 80 manns létust og 230 særðust.
Hlutskipi kvenna, sem tilheyra hóp-
um sem eru ofsóttir af ISIS og lenda
í klóm þeirra, er kynlífsánauð og
dauði. Það að senda þær mæðgur
til baka til Afganistan undir þessum
kringumstæðum getur jafngilt því
að senda þær út í opinn dauðann,
í óeiginlegum og eiginlegum skiln-
ingi, og gengur þvert á öll vernd-
ar- og mannúðarsjónarmið,“ segir
Magnea Marínósdóttir. | hh
Mæðgurnar Maryam og Torpikey bíða
milli vonar og ótta eftir niðurstöðu
kærunefndar útlendingamála.
Mynd | Hari
Fjölbreytt úrval
heilsukodda
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
EINA DÝNAN OG KODDINN SEM VIÐURKENND ERU AF
NASA OG VOTTUÐ AF GEIMFERÐASTOFNUNINNI
Upplifðu tilfinninguna
að svífa í þyngdarleysi
Stillanleg heilsurúm í sérflokki
T E M P U R ® H Y B R I D H E I L S U DÝ N A N
Frumlegasta hönnun TEMPUR til þessa!