Fréttatíminn - 12.08.2016, Side 50
Ég er alin upp á mjög pólitísku heimili. For-eldrar mínir voru báðir í Alþýðubandalaginu þannig ég hef ekki langt
að sækja pólitískan áhuga. Ég held
að það hafi blundað í mér þing-
maður um langt skeið,“ segir Eva
Baldursdóttir lögfræðingur sem
hefur ákveðið að gefa kost á sér
í 2. til 3. sæti í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar sem fer fram 8. til 10.
september næstkomandi.
Hún hefur verið varaborgarfull-
trúi í sex ár og hefur starfað lengi
innan flokksins, sem og starfaði
með stjórnlagaráði, en vill nú
ganga skrefi lengra. Hún vill kom-
ast á þing og hafa áhrif. Dræmt
fylgi Samfylkingarinnar dregur
ekki úr henni kraftinn, þvert á
móti. Hún hefur trú á hugmynda-
fræði jafnaðarmennskunnar.
Mikilvægt að endurnýja liðið
„Við sjáum það að samfélög sem
eru byggð upp á hugsjónum
jafnaðarmanna eru velmegunar-
samfélög, bæði í efnahagslegu
og félagslegu tilliti. Módelið um
sterkt velferðarsamfélag á ekki síst
við á núverandi tímum í íslensku
samfélagi. Þess vegna ég er mjög
uggandi yfir stöðu Samfylkingar-
innar,“ segir Eva en flokkurinn
hefur verið að mælast með undir
tíu prósent fylgi í síðustu skoðana-
könnunum. „Ég vil leggja fram
mína krafta til að hægt sé að vinna
áfram að þessum hugsjónum og
held að það sé tækifæri til að sækja
fram. Kannski einmitt með því að
endurnýja aðeins í liðinu. Það er
mjög mikilvægt að okkar kynslóð
fái málsvara á þingi og ég vil vera
þessi málsvari,“ segir Eva sem er
34 ára. Hún vill sjá fleira ungt fólk
á þingi, þó vissulega sé líka gott að
hafa reynslubolta sér við hlið.
Málefni barnafjölskyldna eru
Evu hugleikin og ekki að ástæðu-
lausu. „Ég er einstæð, vinnandi
móðir þannig ég þekki vel þá
útgjaldaliði sem fylgja því að eiga
börn og að vera með marga bolti
á lofti í einu. Það er strembið að
vinna 100 prósent vinnu og reka
heimili einn, þannig ég tengi vel
við það,“ segir Eva sem efast ekki
um að sú reynsla komist til með
að nýtast henni, komist hún inn
á þing. „Ég er fyrst og fremst að
bjóða mig fram til að bæta kjör
venjulegs fólks í landinu,“ bætir
hún við.
Eva gerir sér þó vel grein fyrir
því að þingið er ekki fjölskyldu-
vænn vinnustaður en hún er vön
því að vinna mikið, svo það yrði
ekki mikil breyting.
Var eflaust til vandræða
Eva segist vera mikil réttsýnis-
manneskja og það blundar í henni
uppreisnarseggur, sem lék laus-
um hala á menntaskólaárunum.
„Ég gerði víðreist á
þessum tíma og
var í þremur
menntaskól-
um. Gerði
hálfgert
rann-
sóknar-
verkefni á
menntakerf-
inu,“ segir
hún kímin.
„Það var tölu-
verður mótþrói í
mér, ég djammaði svolítið
og hafði gaman af lífinu. Ég var
eflaust eitthvað til vandræða og
gerði foreldra mína gráhærða. Svo
róaðist ég bara niður og ég held að
foreldrar mínir séu mjög ánægðir
með mig í dag. Ég reyni samt enn-
þá að hafa gaman af lífinu og póli-
tík er mjög skemmtileg,“ segir Eva
en henni þykir ólíklegt að hægt
verði að grafa eitthvað upp úr for-
tíð hennar sem ekki má líta dags-
ins ljós. „Ég er annars mjög lítið
upptekin af því hvað fólki finnst
um mig. Maður verður að standa
með sjálfum sér og sínum hugsjón-
um. Ég er róttæk í eðli mínu og
umbótasinni og mun eflaust halda
áfram að vera þannig ef ég kemst
inn á þing.“
Eva hefur í seinni tíð orðið
meira og meira andlega þenkjandi
og er ánægð með að Besti flokk-
urinn hafi komið með þá fersku
vinda inn á þing að það væri í
lagi að vera venjuleg manneskja í
pólitík. „Maður þarf ekki lengur
að vera þessi staðalímynd af karli
í jakkafötum sem var kannski
frekar ópersónulegur og yfirborðs-
kenndur. Núna leyfist okkur að
tala meira frá hjartanu og vera ein-
lægari. Það var mjög góð þróun í
pólitík.“
Voru með samstæð
armbönd
Orlando Bloom og
Katy Perry hafa
gert samband
sitt opinbert en
þau hafa verið
að hittast síðan
í janúar og eyða nú
öllum stundum saman. Það vakti
mikla athygli í seinustu viku þegar
Orlando var nakinn í sólinni í sumar-
fríi þeirra á Ítalíu. Nú seinast sást til
þeirra saman í Los Angeles þar sem
þau virtust mjög ástfangin. Orlando
var hamingjusamur með fimm ára
gamlan son sinn í fanginu. Það vakti
sérstaka athygli að parið var með
samstæð armbönd sem er krúttlegt
og rómantískt. Orlando var áður
giftur fyrirsætunni Miranda Kerr og
á soninn með henni. Katy Perry var
gift söngvaranum John Mayer í 14
mánuði en þau skildu árið 2012.
Vill ekki að Miley
daðri við Blake
Miley Cyrus er nýjasti þjálfarinn
í þáttunum The Voice og er þar
við hlið Blake Shelton og félaga.
Kærasta Blake, Gwen
Stefani, er ekki
hress með að Miley
sé farin að starfa
við hlið hans.
Heimildarmað-
ur HollywoodLife
sagði: „Blake er vina-
legur við alla og Gwen
vill vera viss um að Miley misskilji
vinahót hans ekki. Hún vill vera viss
um að Miley haldi sig frá Blake og
sé ekki að daðra við hann.“ Miley
er þekkt fyrir að vera mikill daðr-
ari en svo virðist sem hún sé yfir
sig ástfangin af Liam Hemsworth
þessa dagana, svo kannski eru
þessar áhyggjur Gwen óþarfar.
Átti að slíta
öllu sambandi
Eftir skilnaðinn við Tom Cruise fékk
Katie Holmes forræði
yfir dóttur þeirra,
Suri Cruise, sem
nú er orðin 10 ára
gömul. Samkvæmt
heimildarmanni
OK magazine tók
Tom því, að Katie væri
með forræði, sem hann ætti bara
að hætta að hitta Suri alfarið. Hann
hefur því ekki séð dóttur sína í þrjú
ár. Það var ekkert sem sagði að Tom
mætti ekki hitta hana en talið er
að Vísindakirkjan hafi farið fram á
að hann myndi slíta öllu sambandi
við Katie og Surie eftir skilnaðinn.
Vísindakirkjan dæmir sumt fólk sem
„hamlandi manneskjur“ og voru þær
mæðgur taldar vera hamlandi öfl
í lífi Tom svo hann hætti alveg að
hafa samband við þær.
Það hefur blundað í mér
þingmaður um langt skeið
Eva Baldursdóttir ætlar að taka slaginn og bjóða sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar.
Hún vill sjá endurnýjun í hópnum.
Uppreisnarseggur Eva segist vera
róttækur umbótasinni í eðli sínu og
ætlar að halda því áfram, komist
hún á þing. Mynd | Rut
…fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
Það
er mjög
mikilvægt að
okkar kynslóð
fái
málsvara á þin
gi og
ég vil vera þes
si
málsvari.