Fréttatíminn - 12.08.2016, Síða 62
Það er mikilvægt að huga strax að
bakinu hjá yngstu kynslóðinni svo
ekki komi upp stoðkerfisvandamál
í framtíðinni.
Það er mikilvægt fyrir börn og
unglinga að vera með skólatöskur
sem henta þeirra stærð og þær mega
alls ekki vera of þungar. Það býður
upp á bak- og stoðkerfisvandamál.
Þá er mikilvægt að axlarólarnar á
töskunni séu rétt stilltar og stuðn-
ingur sé góður. Sem betur fer þurfa
yngstu börnin ekki að bera mikið af
bókum og ritföngum í töskum sín-
um, en þyngdin í töskunum eykst
gjarnan eftir því sem barnið eldist.
Hér eru 10 góð ráð til að létta
byrðina:
Nú fer allt að falla í ljúfa löð eftir
sumarið og hin dásamlega rútína
handan við hornið. Fyrir suma er
þetta tilhlökkunarefni meðan öðr-
um hrýs hugur yfir því að þurfa að
detta í skutl, nesti, heimavinnu og
annað sem fylgir vetrinum. Hér
eru nokkur ráð sem hjálpa við að
skipuleggja veturinn og halda vel
á spilunum í amstri dagsins.
-Farðu skipulega yfir það hvað
börnin vantar og skrifaðu það nið-
ur, jafnvel í röð þannig að það sem
ríður mest á sé efst og það sem
liggur minna á neðar á listann. Á
barnið útiföt? Vantar það skóla-
tösku? Hver staðan á vettlingum,
sokkum, húfum og gammósíum?
Eru kannski bara til fjórir vinstri
handar vettlingar og einn hægri
sokkur?
-Farðu í gegnum fataskáp barnanna
og taktu frá það sem er of lítið eða
er ekki notað. Þannig færðu yfir-
sýn yfir það hvort barnið sé tilbú-
ið eða hvort það eigi kannski bara
einar heilar buxur og þrenn götótt
sokkapör.
-Gerðu það að venju að taka alltaf
til föt fyrir börnin á kvöldin eða
láttu barnið gera það sjálft. Taktu
líka til föt á þig sjálfa/n, það er góð
tilfinning að þurfa ekki að eyða
tíma að morgni í að grafa eftir
buxum og skyrtum heldur ganga
að fötunum vísum. Sumir segja að
þessi ávani kaupi þeim meira að
segja örlitla hamingju.
-Hafðu fyrir reglu að skólatöskur
barnanna eigi að vera tilbúnar á
kvöldin. Allt sem á að fara með í
skólann sé komið í töskuna og task-
an tilbúin við útidyrnar.
-Reynið að vera útsjónarsöm með
nesti. Smyrjið slatta af samlokum
til þess að eiga í frystinum, verið
búin að skera niður ávexti daginn
áður og geymið í boxi í ísskápnum
og hafið tilbúna upp í skáp poka
með rúsínum og hnetum. Þá geta
börnin gripið sér nesti á leiðinni út
án þess að eldhúsið fari í rúst eða
þið komist í tímahrak.
-Gerið matseðil fyrir vikuna þannig
að þið séuð ekki að ráfa um mat-
vörubúðina korter í sex á hverjum
degi. Hugmyndin um eina búðar-
ferð á viku og matseðil fyrir hvern
dag er útópísk en heyrst hefur
af fólki sem nær að framkvæma
þetta nokkuð snurðulaust viku eft-
ir viku. Það er allt hægt! Svo má
heldur ekki gleyma því að það þarf
ekki að vera heitur matur á hverju
kvöldi, snarl er bara gott og gildur
kvöldmatur.
-Gakktu frá skráningum í tóm-
stundir sem allra fyrst. Kaupið eða
búið til fjölskyldudagatal þannig að
allir fjölskyldumeðlimir hafi yfir-
sýn yfir dagskrá hvers annars. Eft-
ir því sem verður meira að gera er
erfiðara að hendur reiður á kraðak-
inu. En munið að það þarf að fylla
inn í dagatalið, það gerir ekkert
gagn hangandi upp á vegg galtómt.
-Munið svo bara að týna ykkur ekki
í stressi og ama yfir hinum asafulla
hversdagsleika. Hann er nefnilega
svo fallegur með öllu því sem hon-
um fylgir.
10 ráð
til að létta byrðina á bakinu
Veljið rétta tösku Mikilvægt er að barnið
sé með tösku sem hentar stær þess.
1 Látið barnið aldrei bera meira en 15% af eigin líkamsþyngd. Þetta þýðir að barn sem er 50
kg ætti ekki að bera þyngri tösku
en 7,5 kg.
2Setjið þyngstu hlutina sem næst baki barnsins og raðið vel í töskuna þannig að
bækurnar séu síður á ferðinni.
3Nota alltaf báðar axlaról-arnar. Ef aðeins önnur axl-arólin er notuð getur barnið
hallað til hliðar og þannig skekkt
hrygginn og valdið verkjum eða
óþægindum.
4Veljið bakpoka með vel fóðruðum axlarólum. Of mikill þrýstingur á axlir og
háls getur valdið óþægindum og
dofa.
5Veljið rétta stærð af tösku fyrir barnið jafnhliða hversu mikið pláss skóladótið þarf.
6Stillið axlarólarnar þannig að taskan passi vel að baki barnsins. Taskan ætti aldrei
að ná lengra en 10 cm fyrir neðan
mitti.
7Muna að nota mittisólina, ef hún er á skólatöskunni, en hún hjálpar við að dreifa
þyngd töskunnar.
8Skoðið hvað barnið er að bera í töskunni á milli skóla og heimilis. Verið viss um að
það sé einungis það sem það þarf
að nota þann daginn.
9Ef skólataskan er of þung, íhugið að nota tösku á hjól-um, ef barnið samþykkir.
10Þá daga sem skólatask-an er yfirhlaðin getur barnið borið bækur eða
hluti í fanginu – það minnkar álag-
ið á bakið.
Fengið af doktor.is
Undirbúið veturinn og
fagnið hversdagsleikanum
…skólar og námskeið 2 | amk… FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
- hvar sem þú ert og hvert sem þú stefnir
Viltu efla þig í eigin atvinnurekstri?
Háskólinn á Bifröst hefur í tvo áratugi boðið upp á
rekstrarnámið Máttur kvenna fyrir konur sem vilja
öðlast þekkingu og færni í rekstri fyrirtækja. Kennsla
fer fram í fjarnámi þar sem þátttakendur geta sjálfir
stjórnað því hvenær horft er á fyrirlestra og verkefni
unnin, allt eftir hentugsemi hvers fyrir sig. Á
tímabilinu verður boðið upp á tvær vinnuhelgar á
Bifröst með kennara og samnemendum þar sem
lögð er áhersla á hagnýtingu náms og hópavinnu
nemenda.
• Upplýsingatækni
• Fjármál og bókhald
• Stofunun fyrirtækja og rekstrarform
• Markaðs- og sölumál
Á vinnuhelgum verður
ennfremur lögð áhersla á
• Námstækni
• Nýsköpun og frumkvöðla
• Skapandi stjórnun
• Framsækni og tjáningu
Máttur kvenna er 13 vikna nám sem hefst með vinnuhelgi 3. september og lýkur
með útskrift á Bifröst þann 29. nóvember 2016. Verð fyrir námið er 149.000 kr.
og innifalið er kennsla í fjarnámi og tvær vinnuhelgar með gistingu og mat.
Vinnuhelgar verða 3.-4. september og 1.-2. október 2016.
Nánari upplýsingar á bifrost.is
Námið byggir á fjórum
kjarnanámskeiðum