Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Síða 22

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Síða 22
Guðrún Marteinsson. ENDURHÆFING LANGLEGU- SJÚKLINGA Á SJÚKRAHÚSUM Guðrún Marteinsson, aðstoðar- forstöðukona Borgarspítalans. Mig hefur lengi langað til að segja lítillega frá þeirri reynslu, sem ég fékk í hjúkrun langlegu- sjúklinga, þegar ég vann við Veterans Administrat Hospital, Tucson, Arizona. Eitt okkar miklu vandamála í sjúkrahúsmálum er vöntun á endurhæfingardeildum fyrir sjúklinga með langvarandi sjúk- dóma. Þetta getur verið fólk á öllum aldri, en flestir eru þó komnir á efri ár. Nú mun taka langan tíma, sennilega mörg ár, að fá fullnægjandi húsakynni, nægilegt hjúkrunarlið og næga sjúkraþjálfara. En þangað til hjúkrunarheimili koma til sög- unnar með sjúkraþjálfun, iðju- þjálfun og fleira, sem nauðsyn- legt er, þá er ótalmargt hægt að gera fyrir þessa sjúklinga, ef við leggjum okkur fram. Fyrst vil ég nefna vandamál, sem ætíð hefur verið eitt hið erfiðasta, sem við höfum átt við að stríða í hjúkrun langlegu- sjúklinga, en það er ósjálfrátt saur- og þvaglát. í fyrsta lagi er þetta ástand mjög tilfinnanlegt áfall fyrir sjúklinginn. Hann missir allt í einu getu til að stjórna hægð- um og þvagláti. Það getur jafn- vel orðið svo mikið andlegt áfall, að sjúklingar eldist ,,um 10 ár“ og gefist bókstaflega upp. Þeir hugsa sem svo: „Til hvers er að reyna? Ég er hjálparvana, alltaf blautur — alltaf ólykt af mér“. Margir sjúklingar, sem eiga við þetta að stríða, hafa e. t. v. líka misst mál, virðast mjög veikir, en hafa enn skýra hugsun og mjög næmar tilfinn- ingar. 1 öðru lagi er þetta geysilega erfitt vegna legusárahættu. Þó að við séum allar af vilja gerð- ar að skipta jafnóðum, þá vit- um við líka, að sumir sjúkling- anna verða eitthvað að bíða, ef um marga slíka hjálparvana sjúklinga er að ræða á sömu deild. Og þá er auðvitað voð- inn vís. Húðin brennur undan sterkum þvagefnum og kann þá að tærast upp smátt og smátt. Allar vitum við, hve erfitt er að græða slíkt aftur og hve geysi- legur tími fer í að búa um þessi sár og hreinsa þau, fyrir utan þær kvalir, sem sjúklingurinn verður að þola við þetta. I þriðja lagi er óstjórnlega mikil vinna við að skipta dag og nótt á þessum sjúklingum, setja pípu, ef um hægðatregðu (ob- stipation) er að ræða, en oft- ast er lítt mögulegt að fá reglu á hægðir með lyfjum eingöngu. Er þá ýmist um að ræða harð- lífi eða niðurgang. Og svo er það línið, kostnaður og vinna við allan þann aukaþvott, sem af þessu hlýzt. Þá er einnig hin þekkta lykt, sem vill verða á þeim deildum, þar sem margir slíkir sjúkling- ar liggja. Þrátt fyrir mikið hreinlæti og mikla umönnun við þessa sjúklinga vill stundum verða erfitt að losna alveg við þessa lykt. Þetta gerir það að verkum, að deildin fær á sig óorð. Aðstandendur eiga bágt með að skilja þetta — öllum er þetta til ama. Er ég starfaði á lyflæknisdeild (50 sjúklingar — karladeild), fékk ég tækifæri til að hlusta á fyrirlestraflokk (4 daga), sem haldinn var fyrir deildarhjúkr- unarkonur: „Seminar on stroke and its rehabilitation". Var þá m. a. sagt frá endurhæfingu á þörmum (bowel rehabilitation). Við hlustuðum með athygli og fórum strax að prófa þetta á sjúkradeildum okkar í samráði við og með fullu samþykki lækn- anna á deildinni. Já, hvað get- um við svo gert? Við byrjuðum á því að fá fyrir deildina 4 bekjustóla til viðbótar við tvo, sem við áttum fyrir. Við breyttum einni vakt og fengum einn sjúkraliða til að koma inn kl. 6 á morgnana til að aðstoða sjúkraliðann og hjúkrunarkonuna, sem voru á næturvakt. Það var haldinn fundur með öllu starfsfólki deildarinnar, og var þá sagt frá þjálfunaráætluninni, svo að all- ir gætu skilið þetta og skilið hvers vegna þetta væri nauð- synlegt. Morgunaðhlynning byrjaði kl. 6, og var þá næturvaktarhjúkr- unarkonan með lista yfir þá sjúklinga, sem höfðu ekki vald á hægðum. Þeim gaf hún nú, kl. 6, Dulcolax-staut. Það var 56 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.