Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Síða 27
Athugasemdir við skattalagafrumvarpið
Athugascmd við framkomið skattalaga-
frumvarp á Alþingi, frá stjórn
Hjúkrunarfélags Islands.
1 Tilefni af framkomnu frumvarpi um breyt-
ingar á skattalögum, þar sem meðal annars er
gert ráð fyrir breytingum á núgildandi reglum
um skattlagningu á tekjum giftra kvenna, leyfir
stjórn Hjúkrunarfélags íslands sér að benda
háttvirtum alþingismönnum á eftirgreind atriði:
Með fyrirhuguðum breytingum, þar sem gert
er ráð fyrir að í stað núgildandi reglna, sem
heimila það, að helmingur af tekjum giftra
kvenna sé frádráttarbær frá skatti, komi ákveð-
in upphæð sem nemi hálfum persónufrádrætti
hjóna, nú 188.000 kr., er bersýnilega verið að
breyta skattalögum giftum konum mjög í óhag,
einkum þeim er sinna föstum störfum, svo sem
hj úkrunarkonum. Verður ekki séð hvaða mark-
niiðum slíkt getur þjónað meðan ekki hafa verið
lögfestar reglur um sérsköttun hjóna, þar sem
eðlilegt tillit væri tekið til þess kostnaðar sem
óhjákvæimlega er samfara því að gift kona vinni
utan heimilis.
Stjórn Hjúkrunarfélagsins telur fráleitan rök-
stuðning fjrrir þessari breytingu, að hún muni
hvetja giftar konur, meira en nú er, til vinnu
utan heimilis, en vill benda á hið gagnstæða,
að giftar konur telji sér ekki hag í að afla sér
meiri tekna en sem nemi 188.000 kr., og þar sem
hjúkrunarstéttin er nær eingöngu kvennastétt,
gæti slíkt leitt til enn meiri vandræða en nú
eru í starfrækslu sjúkrahúsa.
Stjórn Hjúkrunarfélagsins væntir þess ein-
dregið, að alþingismenn hafi þessi atriði í huga
við meðferð þessa frumvarps á Alþingi.
Virðingarfyllst,
f. h. Hjúkrunarfélags Islands,
María Pétursdóttir
formaður.
Ofanritað bréf var sent flutningsmönnum
frumvarpsins, 7 aðilum í Fjárhagsnefnd neðri
deildar Alþingis, ásamt undirskriftum 219
h júkrunarkvenna.
Skattalagafrumvarpi á Alþingi mótmælt
Að undanförnu hafa orðið miklar umræður í
blöðum og á Alþingi um það neyðarástand, sem
er ‘hér á landi, að vegna skorts á hjúkrunar-
konum er ekki hægt að nýta öll þau sjúkrarúm,
sem til eru í sjúkrahúsum, og nýjar deildir geta
ekki tekið til starfa af sömu ástæðum.
Leyfum við okkur að mótmæla því stjórnar-
frumvarpi, sem nú liggur fyrir Alþingi, um
breytingar á lögum um tekjuskatt, en í því er
a. ákvæði, sem felur í sér verulega skerðingu
á því, að 50% af tekjum giftra kvenna, sem
vinna utan heimilis, séu undanþegin skatti, eins
°g er í gildandi skattalögum.
Við undirritaðar hjúkrunarkonur vörum við
þeim alvarlegu afleiðingum, sem samþykkt þessa
frumvarps hefði óhjákvæmilega í för með sér,
því að með slíkri breytingu á skattalögum má
telja fullvíst, að mikill fjöldi giftra hjúkrunar-
kvenna, sem nú eru í starfi á sjúkrahúsunum,
hætti alveg eða minnki vinnu sína verulega.
Skorum við á alþingismenn að íhuga alvar-
lega þá ábyrgð, sem þeir taka á sig með sam-
þykkt þessa frumvarps — að það neyðarástand,
sem nú er á sjúkrahúsunum, verði enn alvar-
legra og óviðráðanlegra en áður.
Undirritað af 219 hjúkrunarkonum.
UM SUMARFRI
Ur Lög og reglur er varöa ríkisstarfsmenn.
1. kafli — um orlof.
1- gr. Starfsmenn ríkisins skulu árlega fá
°i’lof í 21 virkan dag og einskis í missa af föst-
urn launum. Þeir starfsmenn, sem hafa 10 ára
starfsaldur, skulu fá orlof í 24 virka daga.
Starfsmönnum, sem eiga að baki lengri starfs-
Mdur en 15 ár, skal veita orlof allt að 27 dögum.
Starfsmenn, sem hafa skemmri starfsaldur
en eitt ár, skulu fá orlof í 1 og % virkan dag
fyrir hvern mánuð, sem þeir hafa starfað hjá
ríkinu.
Orlofsárið telst frá 1. júní til 31. maí næsta
ár á eftir.
Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðu-
neytinu lítur ríkið svo á, að samningsákvæði um
12 daga frí vaktavinnufólks vegna vinnu á stór-
hátíðum gildi til síðustu áramóta.
Af því leiðir, að vaktavinnufólk á 5 daga frí
á þessu ári og greiðslu fyrir 2 og i/o dag á dag-
vinnukaupi.
Þar sem samningur Reykjavíkurborgar við
H.F.l. gekk í gildi 1. febrúar 1971, eiga hjúkr-
unarkonur starfandi samkvæmt þeim samningi
6 daga frí.
Þessir frídagar eru: 17. júní, 1. mánudagur
í ágúst, 1/2 aðfangadagur, jóladagur, 2. jóladag-
ur, 1/2 gamlársdagur, og hjá Reykjavíkurborg
nýársdagur 1971.