Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Page 34

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Page 34
Ritnefnd: Margrét Gústafsdóttir, Elín Einarsdóttir, Ólöf Guðmundsdóttir, Katrín Þórlindsdóttir. Tæplega % hlutar náms hjúkrunarnema í Hjúkrunarskóla Is- lands eru fólgnir í verklegu námi á sjúkradeildum. ör skipti eru milli deilda, sem hver er með sínum starfsháttum og skipulagi. Markmið þessarar stöðugu hreyfingar hjúkrunarnema á milli deilda er að uppfræða þá í hjúkrun sjúklinga með mismunandi sjúkdóma og veita þeim tækifæri til að fylgjast með gangi sjúk- dóma ásamt hjúkrunar- og læknismeðferð. Hver uppskera verklega námsins verður, er víst jafnmismun- andi og deildirnar eru margar og nemarnir margir, sem staldra við á þeim. Víst er, að það er undir hverjum og einum hjúkrunar- nema komið, hversu mikið hann sér og lærir á hverri deild og ber úr býtum að námi loknu. Sú er þó raunin, þegar síga tekur á seinni hluta náms og deildunum fjölgar, sem hjúkrunarneminn skilur að baki, að hann sér, æ skýrar, hversu mismunandi deildir búa í haginn fyrir verklegt nám hans. Að sjálfsögðu er aðstaða deilda til aðhalds í náminu mjög misgóð og veldur helzt um mis- mikill starfsfólksskortur. En hjúkrunarnemi rekur sig fljótt á, að það er ekki aðstaðan, heldur viðhorf og velvilji sjúkrahúsanna og hverrar einstakrar deildar þeirra til verklegs náms hjúkrunarnema, sem mestu ræður, hversu drjúgan hluta hjúkrunarþekkingar hjúkrunarnemi öðlast á hverjum stað. Aðstöðu hjúkrunarnema á deildum ber oft á góma meðal þeirra, og vill þá oft bera hæst það sem miður fer og verður seint upp- talið, að okkar áliti, og margir ásteytingarsteinarnir, þó til séu ófáar undantekningar. Það er töluvert álag, sem fylgir þeirri tilhögun námsins að skipta stöðugt um vinnustaði, vinnuaðstæður og andrúmsloft, ekki sízt vegna þess, að deildin tekur ekki sem skyldi tillit til eða skilur aðstöðu nýs hjúkrunarnema. Það vill gleymast, að nýr hjúkrun- arnemi er einstaklingur með ákveðin sérkenni og persónuleg eig- indi, misvel viðbúinn þeim áhrifum, sem hann kann að verða fyrir á deild. Hjúkrunarnemi er nýr starfskraftur og það heldur óöruggur og skammvinnur starfskraftur. Hann á að hafa til að bera meiri aðlögunarhæfni en nokkur annar starfskraftur deildarinnar. Þarf- ir hjúkrunarnemans koma deildinni ekki við og eru hans einka- mál. Æskilegt er að hjúkrunarnemi fari í tannlæknavitjanir eða gangi í hjónaband meðan á bóklegum námstíma stendur. Ef hjúkr- unarnemi veikist, er það tillitsleysi gagnvart deildinni — Hjúkr- unarnemi getur komið til vinnu sjúkur á sál og líkama R A D D I R H J U K R U N A R N E M A 64 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.