Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Page 42

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1971, Page 42
ORLOFSHEIMILI HFÍ AÐ = != MDNAÐARNESI STAFHOLTSTUIMGNAHREPPI. MÝRASÝSLU Húsið er leigt með húsgögnum og eftirtöldum lausamunum: S djúpir og 8 grunnir diskar, 8 hnífapör, 8 bollapör, 8 vatnsglös, 12 teskeiðar, rjómakanna og syk- urkar, 2 matarföt, kartöfluskál, sósuskál, glerskál, ausa, 2 sleifar, fiskspaði, 2 búrhnífar, dósahnífur, buffhamar, upptakari, pottaskafa, rifjárn, eggjaskeri, ostaskeri, þeytari, mjólkurkanna, kaffikanna, steikarpanna með loki, pönnukökupanna, 3 matarpottar, suðuhella, ísskápur, 10 herðatré, gólfskrúbbur og sópkústur á sköftum, gólfklútur, borðklútur, afþurrkunarklútur, skúringarfata, W.-C. bursti, sjúkra- kassi, 3 öskubakkar, skurðbretti, gólfmotta, sorppokagrind með fægiski'iffu, 8 ullarteppi, 8 yfirsængur og 8 koddar. Leigjendur þurfa að hafa með sér handklæði og sápur. Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón, sem verða kann af hans völdum, eða þeirra, sem dveljast á hans vegum í húsinu á leigutíma. Við brottför fer fram úttekt á lausamunum hússins. Leigjandi skal ganga vel um hús og umhverfi, ræsta húsið daglega og við brottför, taka lin af rúm- um, brjóta það saman og skila því til umsjónarmanns, og sjá um að hver hlutur sé á sinum stað. Húsið skal rýmt eigi síðar en kl. 12,00 brottfarardag, og nýir leigutakar geta reiknað með að taka við leiguhúsi sínu eftir kl. 15,00. Notkun sérbílastæða við orlofshúsin er eingöngu heimil dvalargestum, og eru þeir beðnir að draga úr bílaumferð eins og kostur er. Lesið vel leiðbeiningar þær, sem festar eru upp í húsunum, og skylt er að halda þær. Snúið ykkur til umsjónarmanns við komuna. Upplýsingar um verzlunaraðstöðu og mötuneyti BSRB fást hjá bandalagsfélögunum. Sumarbústáðurinn er þegar að mestu leig'Öur fyrir sumariÖ 1971. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa H.F.Í. TILKYNNING FRÁ , Frá 1. júní n.k. verður sumarhúsið Kvennabrekka til SUMARHUSNEFND leigu að nýju. Upplýsingar á skrifstofu H.F.Í. eða hjá nefndarkonum. 72 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.