Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Page 4
Fulltrúafundur SSN 1974
Laun og starfsaðstaða
Samvinna hjúkrunarkvenna á Norðurlöndum
hélt árlegan fulltrúafund sinn á Hótel Kollekolle
í Danmörku dagana 17.—20. september sl. Höf-
uðviðfangsefni fundarins var „Laun og öll að-
staða“, svo sem starfsaðstaða, stöðuveitingar
o. m. fl. Samtökin hafa innan vébanda sinna
yfir 130 þús. félaga.
Kjörnir fulltrúar voru 37, en þátttakendur
í heild 73, frá öllum aðildarfélögunum. Fulltrú-
ar frá Islandi voru: María Pétursdóttir, sem
er fulltrúi Islands í stjórn SSN. Ingibjörg
Helgadóttir, formaður HFl. Nanna Jónasdóttir
og Kristín Óladóttir, en þær hafa báðar verið
í launamálanefnd HFÍ. Guðrún Sveinsdóttir,
en hún var á sl. ári skipuð af Islands hálfu í
nefnd þá er vann að undirbúningi þessa full-
trúafundar varðandi launamál og starfsaðstöðu.
Nefndin var skipuð einum aðila frá hverju
landi og skilaði ítarlegri greinargerð um laun
og starfsaðstöðu í dag. Hjúkrunarnemarnir Vig-
dís Steinþórsdóttir og Sigurður Jónsson, ásamt
Ingibjörgu Árnadóttur frá Tímariti HFl.
Kirsten Stallknecht, formaður Dansk Syge-
plejerád, bauð þátttakendur velkomna til Dan-
merkur, og formaður SSN, Gerd Zetterström
Lagervall, setti fundinn og flutti skýrslu um
starfsemi SSN sl. ár. Gerd minntist látinna
framákvenna í SSN, þær voru: Aagot Lind-
ström, Maria Madsen, Gerda Höyer, Elisabeth
With og Karin Elfverson. Kjell Henrik Henrik-
sen var tilnefndur fundarstjóri og Gunnvor
Instebö til aðstoðar.
Á fulltrúafundinum 1973 var ákveðið að skipa
nefnd til að endurskoða lög SSN og semja drög
að breytingum, ef þurfa þætti. Nefnd þessi var
skipuð einum aðila frá hverju landi, ásamt ein-
um fyrir hönd hjúkrunarnema. Lágu tillögur
nefndarinnar fyrir, og voru þær teknar til af-
greiðslu.
Nokkrar umræður spunnust um einstakar
lagagreinar, m. a. um rétt hjúkrunarnema til
þátttöku í fulltrúafundunum og um það hvort
nemar ættu að njóta atkvæðisréttar eða tján-
ingar- og tillöguréttar, eins og hingað til hefur
gilt. Ákveðið var með öllum greiddum atkvæð-
um, að hvert aðildarfélag hefði rétt á að senda
1—2 nema til fulltrúafunda. Nemafélögin
ákveða fulltrúa sína/sinn eftir þeim reglum,
er gilda í viðkomandi landi. Nemendur skulu
hafa fullan rétt til þátttöku í umræðum og til-
lögurétt, en ekki atkvæðisrétt. Tillögur frá þeim
þátttakendum, er hafa ekki atkvæðisrétt, þurfa
að fá stuðning tveggja atkvæðabærra fulltrúa
til þess að verða teknar til afgreiðslu. Sama
gildir um aðra þátttakendur frá aðildarfélög-
unum, svo sem ritstjóra tímaritanna og starfs-
menn félaganna. Rætt var um, hvort og á hvern
hátt SSN mundi snúa sér til Norðurlandaráðs
varðandi starfssvið hjúkrunarkonunnar. Það
þótti ekki tímabært, og var því ákveðið að gera
engar sameiginlegar ákvarðanir þess eðlis að
svo stöddu.
Xvj nslu fréUir frá aAildarfálttgunuiii.
Fulltrúar aðildarfélaganna gerðu grein fyrir
því helsta er skeð hafði á heimavelli, síðan síð-
asti fundur var haldinn.
Kirsten Stallknecht, Danmörku, skýrði frá
kjarabaráttu dönsku hjúkrunarstéttarinnar, er
síðan leiddi til verkfalls vissra hópa. Verkfallið
stóð yfir í u. þ. b. 2 mánuði og var skýrt frá
því í Tímariti HFl, 1. tölubl. 1974.
Á aðalfundi danska félagsins í sumar voru
sett ný lög fyrir Dansk sygeplejerád, og fagn-
aði formaður félagsins því. Fram kom. einnig,
að Dansk Sygeplejerád verður 75 ára 27. októ-
ber 1974. Verður því fagnað með fundum víðs-
vegar um landið, ásamt sérstökum hátíðafundi
í Kaupmannahöfn. Kirsten gat þess, að fyrsti
formaður félagsins hefði starfað í 27 ár.
Toini Nousianen, Finnlandi, skýrði m. a. frá
þróuninni innan félagsins og skorti á hjúkrun-
arkonum, er væri mjög tilfinnanlegur. Toini
fjallaði einnig um tillögu finnskra stjórnvalda
um að færa hjúkrunarmenntunina í heild inn
í háskólann, en félagið sjálft óskaði eftir nýju
106 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS