Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Page 7
Yfirlýsing.
Fundurinn samþykkti eftirfarandi yfirlýsingu:
1. Hin fimm aðildarlönd eru sammála um aukið
samstarf í launa- og stöðuveitingarmálum og
um samningsmál, sem geta náð til allra Norð-
urlanda.
2. Hjúkrunarkonur Norðurlanda eru sammála
um, að unnið skuli saman að þróun skipu-
lagsmála félaganna.
3. Hjúkrunarkonur Norðurlanda skulu einnig
starfa saman að því að efla hjúkrun sem
sjálfstæða starfsgrein innan heilbrigðisþjón-
ustunnar, jafnframt því að vinna að auknu
lýðræði og áhrifum samstarfsmannanna við
töku ákvarðana á sviði heilbrigðis- og hjúkr-
unarmála.
Um 1: Fulltrúarnir mæla með því, að í lönd-
unum sé íhugað, hvort unnt sé að gera gagn-
kvæmt samkomulag um stuðningsaðgerðir, þeg-
ar árekstrar verða í þessum málum. Laun hjúkr-
unarkvenna skulu vera í samræmi við vægi og
innihald starfsins — þ. e. ábyrgð, menntun og
sérhæfni. Fulltrúarnir voru ásáttir um, að stytt-
ingu vinnutíma á Norðurlöndum verði að bæta
upp með stöðufjölgunum og að með sífelldum
endurbótum á atvinnuaðstöðu sé unnt að halda
hjúkrunarkonum í starfi og auka fjölda starfs-
krafta.
Um 2: Með virku trúnaðarmannakerfi er unnt
að auka áhrif hjúkrunarkvenna á töku ákvarð-
ana á öllum stigum samfélagsins.
Um 3: Hjúkrunarkonur Norðurlanda geta
ekki fallist á, að aðrir starfsliðshópar taki við
störfum í sérgrein þeirra á vettvangi heilbrigð-
ismála og sjúkrahúsa. Hjúkrunarkonurnar
verða því að standa fast á sérfræðisviði sínu.
Hjúkrunarkonur krefjast aukins lýðræðis og
hlutdeildar í áhrifum við skipulagningu heilsu-
gæslu og hjúkrunar. Krafist er áhrifa á eigin
starfsaðstöðu með því að fá fulltrúa og atkvæð-
isrétt í stjórnarnefndum á sviði heilsugæslu og
hjúkrunar. Álítum við, að með því móti geti
sérþekking okkar sparað þjóðfélaginu kostnað
vegna mistaka við skipulag og fjárfestingu.
Sljirnark«!>niiif< o. II.
Nýr formaður SSN var kjörinn Toini Nousi-
anen, formaður finnska hjúkrunarfélagsins.
Fráfarandi formaður, Gerd Zetterström Lager-
vall frá Svíþjóð, gaf ekki kost á sér til end-
urkjörs, en hún hefur gegnt formannsstörfum
í 6 ár. Voru henni færðar þakkir og hún hyllt
með lófataki.
Gerd þakkaði Kjell-Henrik Henriksen og
Gunnvor Instebö góða stjórn, sem leiddi m. a.
til þess að fundarstörf gengu mjög fljótt og
skipulega. Hún færði danska félaginu einnig
þakkir fyrir að bjóða fundinum mjög ánægju-
legt umhverfi, boð í Konunglega leikhúsið og
yfirleitt alla fyrirgreiðslu, er var danska félag-
inu til sóma í hvívetna.
Næsti fulltrúafundur verður haldinn í
Reykjavík í septemberbyrjun 1975, og vonumst
við til að geta gert dvöl okkar norrænu starfs-
félaga ánægjulega og árangursríka.
Ingibjörg Ámadóttir.
r>
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 109