Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Side 25

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Side 25
er sogið upp úr því og það fær skell á bossann. I rauninni er ekki undarlegt þótt barnið beri hönd fyrir höfuð sér og orgi eins og kraftar leyfa. Þar næst er klippt á nafla- strenginn og barnið er lagt á fatabunka — eða beint á stál- vigtina. Það er baðið, látið í plastöskj u og þvínæst er því ekið inn í annað herbergi, langt frá móðurinni sem það svo misk- unnarlaust var skilið frá. Jæja, segjum við, og hvað svo? Já, tökum nú eftir. Lebouyer telur, að það megi raunar koma börnum í heiminn án slíks of- beldis. Með ofurlítið meiri um- hugsun, með því að hugsa einn- ig um barnið. Um það fjallar bókin. Bókin í heild speglar lotningu fyrir þessu óskiljan- lega, þessu mikla og merkilega, að ný manneskja er fædd, nýtt líf er byrjað. Hvernig á svo að hjálpa barni í heiminn án valdbeitingar? Það er í rauninni einfalt. — í staðinn fyrir björtu ljósin ætti að vera hálfdimmt í herberginu. Aðeins nógu bjart til að fylgj- ast með að allt sé í lagi með móðurina, að hún ekki rifni og að hægt sé að sjá hvað gera þurfi. Það er ekki nauðsynlegt að nota Ijósvarpa. 1 stað þess að hrópa og skipa fyrir, skyldu menn vera þögulir. Þurfi eitthvað að segja, sé því hvíslað. Menn ganga hægt, hreyfa sig gætilega, eru tillits- samir. Lögð er á það áhersla að mynda þægilegt andrúmsloft, lotningarfullan hugblæ í von um hið mikilvæga sem koma skal. Móðirin þarf að vera vel undirbúin og allan tímann skal höfð við hana samvinna, en orð eru ekki nauðsynleg til að slíkt takist vel og síst af öllu í há- værum og hörðum tón. Svo fæðist barnið — inn í hálfdimman heim, þar sem kyrrð ríkir. Ekkert bjart ljós, sem nær nethimnunni eða veld- ur heilanum óþægindum. Eng- inn hávaði, sem truflar litlu hljóðhimnurnar. Fæðingin er breyting fyrir barnið, en menn hafa gert hana svo væga sem mögulegt var. Því næst er barnið tekið, án þess að Jclippa sundur nafla- strenginn, og lagt á maga móð- urinnar. Einhvers staðar þarf að láta hvítvoðunginn og hvaða staður er eðlilegri en magi móð- urinnar? Hann er volgur og í hann er laut, sem er mátuleg fyrir barnið. Og kannske heyrir barnið hin kunnu hjartaslög móðurinnar. Og nú líður að erfiðasta augnablikinu fyrir alla viðstadda. Barnið verður sem sé að læra að anda. Þetta er óþægilegt. Lungun þurfa að þenjast út, barnið, sem aldrei hefur haft loft í hreinu lung- unum sínum, á að fylla þau með einhverju sem vafalaust brenn- ir sem eldur fyrst í stað. Gefi menn sér aðeins tíma til að bíða í þrjár, fjórar, sex mínútur, fer barnið að anda af sjálfu sér. Hægt en öruggt byrjar það að anda, þótt það e. t. v. orgi tvisv- ar—þrisvar sinnum. Allan tím- ann nuddar móðirin, eða einhver annar, barnið með jöfnum, stöð- ugum hreyfingum, alveg eins og uterus gerði áður. Súrefni í blóðið fær barnið framvegis gegnum fylgjuna, svo framar- lega sem allt fer fram í róleg- heitum og naflastrengurinn er ekki undireins klipptur sundur. Hringrás blóðsins heldur þar áfram eins og áður. Þegar barn- ið er farið að anda reglubundið og eðlilega, þá má klippa á nafla- strenginn, því þá er hann ekki nauðsynlegur lengur. En það má ekki gerast fyrr en barnið ákveður sjálft — ef svo má að orði komast. Birta, hljóð og lík- amsáhrif: allt er svipað og barn- ið hefur átt að venjast, kannske heldur hörkulegra, en af sömu tegund. Að lokum er barnið baðað. Gætilega er það tekið og látið í jafnvolgt vatn og það var vant við. Og barnið á að vera lengi í baðinu. Ekki eingöngu til að húðin hreinsist, heldur til þess að barnið „endurlifi“ þá „til- finningu“ sem það áður hafði, sem sé að fljóta í vatni, að vera þyngdarlaust í vökva. Og svo getur það skeð að barnið opni augun og sjái. Ekki svo að skilja, að það sjái myndir eins og við, heldur, eins og Lebouyer segir, barnið kynnir sig. Þetta fyrsta augnatillit er ógleyman- legt. „Þau segja, þessi einstöku augu, þessi alvarlegu, mögnuðu, djúpu augu: Hvar er ég? Hvað hefur komið fyrir mig?“ Le- bouyer segir, að viðkomandi finni þvílíka nálægð og slíka athygli, að hann verði djúpt snortinn. Bók Lebouyers er auðvitað fullkomnari en hér hefur verið lýst. Hefur svo allt þetta einhverja þýðingu? Já, svo framarlega sem borin er virðing fyrir líf- inu og sköpunarverkinu. Já, ef menn álíta að það sé mikilsvirði að barn komi í heiminn undir öruggum aðstæðum, aðstæðum sem einnig taka tillit til hinna mismunandi þarfa barnsins. Þá er þessi bók merkileg. Sjálfsagt mætti eitthvað að henni finna. Ýmsir sérfræðingar munu sjálf- sagt geta fundið villur og ann- að sem er efasamt. En hún vís- ar okkur veg, sýnir okkur kost, sem gæti verið ómaksins vert að reyna, ef einhver gæti losað sig við áhrif af vestlægum hugsun- arhætti, sem þrengir sér inn á öll umráðasvið. Bókin endar á mynd af fal- legu barni sem brosir, og brosir gleitt. Barnið er tæplega sólar- hrings gamalt, en brosir þó út að eyrum. Skyldi það merkja að barnið sé ánægt? Að það hafi líka fengið góða fæðingu, svo að það geti hlegið með mömmu, pabba, ljósmóðurinni eða lækn- inum? Þá fyrst er fæðingin vel heppnuð þegar allir hlæja. □ TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 127

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.