Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Síða 37

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.12.1974, Síða 37
í þær, og sérhæfðu hvítu blóð- kornin hjálpa til við að eyða þeim frumum, sem hafa skemmst og breyst við sýkinguna. Ef mót- efnamyndun kemst vel af stað, er hún varanleg vörn gegn end- ursýkingum, því að frumurnar, sem mynda mótefnin, taka fljótt og vel við sér, ef þær komast aftur í snertingu við sömu veiru eða sum þau efni, sem hún er gerð úr. Lyf gagna yfirleitt ekkert við veirusýkingum. Fúkalyf eru gagnslaus gegn veirunum sjálf- um, þó að oft geti þau komið í veg fyrir að bakteríur sigli í kjölfarið og valdi enn frekari vefjaskemmdum. Fáein vel þekkt efni grípa inn í fjölgun veira á vissum stigum og hafa verið notuð með góðum árangri til að hindra fjölgun veira í til- raunum. Flest þessi efni eru of eitruð til að óhætt sé að nota þau við meðferð sjúklinga. Þó eru þekktar einstaka undantekn- ingar, þar sem veirufjölgun á sér stað á aðgengilegu afmörk- uðu svæði vefjar, t. d. áblástur á auga. Okkar eina varanlega vörn í baráttunni við veirusjúkdóma er því fólgin í svokölluðum ónæmisaðgerðum. Við höfum nú yfir að ráða virkum ónæmis- aðgerðum í baráttunni við mænusótt, bólusótt og mislinga. Allar þessar ónæmisaðgerðir hafa gefið góða raun. Hæpnari er árangur af ónæmisaðgerðum gegn inflúensu. Ónæmisaðgerð- ir gegn hitabeltisgulu (yellow fever), hundaæði og hettusótt má gera með góðum árangri ef þörf gerist. Miklar tilraunir eru nú gerðar til að framleiða bólu- efni gegn rauðum hundum, þó að enn sé ekki komið á markað verulega gott bóluefni, sem veitt geti varanlega vörn. Virk ónæmisaðgerð er fólgin í því að vekja sérhæfða mót- efnamyndun gegn viðkomandi veiru áður en hætta verður á smitun. Ef smitun heíur orðið, er hægt að dæla í þann smitaða mótefnum, sem annar einstakl- ingur hefur myndað. f slíku er þó ekki talin örugg vörn nema skamman tíma, kannske 4—6 vikur og í hæsta lagi 2—3 mán- uði. Ekki þýðir að grípa til slíkr- ar aðgerðar eftir að veirurnar hafa náð að valda sjúkdóms- einkennum, þó að slíkt beri ár- angur, ef um bakteríusýkingar eins og barnaveiki og stíf- krampa er að ræða. Þegar sjúk- dómur af völdum veira kemur fram, eru veirurnar búnar að hreiðra um sig í nokkurn tíma í frumum næmra vefja og hafa þegar skemmt of mikið til að nokkurt gagn verði haft af inn- dælingu mótefna frá öðrum ein- staklingi. Ónæmiskerfi líkamans er vissan tíma að mynda sérhæfð mótefni þegar verið er að vekja það til mótefnamyndunar. Við fyrstu snertingu ónæmiskerfis- ins við ákveðinn mótefnavaka eða bóluefni líða alltaf tvær vik- ur þar til mælanlegt magn til- svarandi mótefna finnst í blóð- vatni þess bólusetta. Á þessum tíma er ónæmiskerfið þó alls ekki iðjulaust, því að fram fer mikil og sérhæfð frumufjölgun víða í eitlum, sem næst liggja því svæði, sem varð fyrir inn- dælingunni. Þessar frumur framleiða þau mótefni, sem ber- ast út í blóðvatnið, og á öðrum svæðum í eitlunum getur jafn- framt oi’ðið mikil fjölgun hvítra blóðkorna (lymfocyta), sem eru ekki síður sérhæfðir og háðir mótefnavakanum. Ef tekst að fá nokkuð langvarandi áhrif bóluefnis á ónæmiskerfið mynd- ast langlífar minnisfrumur, sem viðkomandi gengur æ síðan með. Þessar minnisfrumur hefja fljótt og vel mótefnaframleiðslu við snertingu við samsvarandi veiru, eða við endui'bólusetn- ingu, og það er þetta minni, sem við viljum vekja hjá ónæmis- kerfinu, þegar við erum að gera ónæmisaðgerðir. Ef ekki tekst að vekja þetta minni, annað- hvort vegna lélegs bóluefnis eða illa gerðrar ónæmisaðgerðar, er hætt við að árangur bólusetn- ingar verði skammvinnur. Sú hefur oft verið raunin með in- flúensubóluefni og er raunin með þau bóluefni, sem farið hef- ur verið af stað með gegn rauð- um hundum. Er þetta sérlega tilfinnanlegt við rauðu hundana, þar sem ætlunin er að verja væntanlegt afkvæmi hins bólu- setta fyrir sköddun í fósturlífi, en ekki hinn bólusetta sjálfan. Verulega gott bóluefni gegn rauðum hundum, hæft til notk- unar við almennar ónæmisað- gerðir á börnum, verður að geta vakið varanlega mótefnamynd- un, sem endist fram á fullorð- insár, eða vera hæft til inndæl- inga í fuilorðið kvenfólk, án þess að hætta sé á fósturskemmd- um, ef konan verður ófrísk skömmu eftir bólusetninguna. Þau bóluefni, sem reynd hafa verið gegn rauðum hundum ti! þessa, uppfylla hvorugt þessara skilyrða. Margir veiklaðir veiru- stofnar hafa verið reyndir, sum- ir í allstórum stíl, en þeir hafa allir reynst töluvert linari mót- efnavakar en eðlileg sýking, og hafi þeim verið dælt í konur, sem eyða á fóstri hjá, hafa bólu- efnisveirurnar fundist í fóstur- vefjunum, og ekkert virðist benda til þess að þær séu minna skaðlegar fósturvefjum en sjálf veiran, sem veldur rauðum hundum. Menn forðast því að gefa þessi bóluefni kynþroska kvenfólki, en eldri stúlkubörn hafa allvíða verið valin sem ákjósanlegur tilraunahópur, þegar meta á endingu mótefn- anna. 1 sumum löndum hafa konur verið bólusettar strax eftir fyrstu fæðingu og ráðlagt að reyna að verða ekki ófrískar í 3—4 mánuði á eftir. Mikið kapp er lagt á að endurbæta þessi tilraunabóluefni gegn rauðum hundum og vonandi tekst það fljótlega. TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 135

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.