Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 5

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 5
* fræðslumál / tilefni 60 ára afmœlis Landspítalans á dögunum var efnt til sýningar á búningum og hjúkrunar- gögnum og var þessi mynd tekin á sýningunni. nefnd árið 1986 til þess að gera til- lögur um framhalds- og endur- menntun hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra. Nefndin skilaði áliti í mars 1987. Nefndarálitið hefur verið samþykkt af Menntamála- ráðuneytinu og Háskóla íslands sem grundvöllur fyrir áframhald- andi uppbyggingu framhalds- og endurmenntunar hjúkrunarfræð- inga (3). Við stöndum nú á tímamótum - með fulla viðurkenningu á námi fortíðar - en horfum fram á við til náms í Háskóla íslands. Ýmsar leiðir verða þar í boði sem hægt er að velja um. Stefnt er að því að sérgreinanám fyrir alla hjúkrunar- fræðinga hefjist haustið 1991, einnig sérskipulagt nám fyrir hjúkrunar- fræðinga til BS prófs. Mat á hjúkr- unarnáminu frá Hjúkrunarskóla Is- lands er nú aflagt. Fög, sem ekki voru kennd í Hjúkrunarskólanum, verða tekin til BS prófs. Fyrstu nemendurnir í sérskipulögðu BS námi verða með í að móta það. Einnig verður sem fyrr möguleiki á að taka einstök námskeið án þess að stefnt sé að því að ljúka náminu. Meistaranám (master) er einnig áfram á dagskrá þótt einhver ár verði í það ennþá. Það er víðar en á íslandi sem hjúkrunarfræðingar standa frammi fyrir vandamáli varðandi fram- halds- og endurmenntun. í kana- díska hjúkrunarblaðinu „The Canadian Nurse“ var grein á síðast- liðnu ári með fyrirsögninni „Crises in graduate Nursing EDUCA- TION“ skrifuð af Janet Beaton sem er aðstoðarframkvæmdastjóri við framhaldsdeild hjúkrunarskól- ans við Háskólann í Manitoba í Kanada. Þar eru vandamálin ekki ólík okkareigin. Þarskortir mikið á að samstaða sé um skilgreiningar á framhaldsmenntun; of fáir mennt- aðir kennarar til þess að kenna við framhaldsnámið, of lítið fjármagn ætlað til menntunarinnar og því mikið vinnuálag kennara. Einnig verða árekstrar milli þeirra sem líta á hjúkrun sem hagnýtt starf (practic discipline) og þeirra sem líta á hjúkrun sem vísindi. Velt er vöng- um yfir því hvað leggja skuli mikla áherslu á meistaranám og bent er á að í því sé oft verið að gefa lítið eitt af klínískri sérfræðimenntun og lít- ið eitt er lúti að rannsóknum. Spurningin er hvort ekki þurfi öðruvísi nám fyrir klíníska hjúkrun en fyrir rannsóknarstörf. Þannig er togstreita milli heilbrigðisstofnana og menntastofnana. Beaton kastar að lokum fram þrem spurningum. Eiga háskólarnir einir að gefa til- skipun um umfang og eðli námsins? Á þörfin á starfsvettvangi að ákveða uppbyggingu og innihald námsefnis í framhaldsnámi? Hvernig er hægt að samræma sjón- armið heilbrigðisþjónustunnar í dag og þarfir hjúkrunarfræðinga í framtíðinni? (1). Við höfum engin einhlít svör við þessum spurningum frekar en Jan- et Beaton. Hér hjá okkur eru þessi mál nú í brennidepli. Umræður fara fram milli námsbrautar í hjúkr- unarfræði við Háskóla íslands, full- trúa hjúkrunarfélaganna og heil- brigðisstofnana. Samræma þarf hin ólíku viðhorf og hagsmuni þessara aðila, heilbrigðisþjónustunni og hjúkrunarfræðingum til heilla. Við horfum björtum augum á framtíð- ina varðandi uppbyggingu hjúkrun- arfræðináms í háskólum okkar sunnan og norðan heiða. 1. Beaton, J. Crises itt Graduate Nursing EDUCATION. The Canadian Nurse. Janúar 1990. 2. Hamric, A.B. og Spross, J.A. ritstýrðu. The Clinical Nurse Specialist in Theori and Practice. Bla. 6 W. B. Saunders Company 1989. 3. Nefndarálit mars 1987. Tillögur um nýskipan framhalds- og endurmenntunar hjúkrunarfrœðinga og Ijósmæðra. Unnið af starfshópi á vegum menntamálaráðuneytisins. Höfundur er fræðslustjóri Hjúkrunarfélags íslands. HJÚKRUN '/„-67. árgangur 5

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.