Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 7

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 7
* fræðslumál Heilbrigðisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að hjúkrunarráð hefði á undanförnum árum veitt 649 sérfræðileyfi. Nú eru íslenskir hjúkrunarfræð- ingar með M.S. gráðu 45 og nokkr- ireru í námi erlendis. Einn íslensk- ur hjúkrunarfræðingur hefur lokið doktorsnámi í næringarfræði og a.m.k. fimm stefna að doktors- gráðu í hjúkrun. Hópurinn er því margskiptur og þarfirnar fyrir nám ólíkar. Samstcirf við hjúkrunarfrœðinga 1. Ýmsir samstarfsaðilar. Til þess að tryggja að þeir, er tengjast menntun hjúkrunarfræðinga með einhverjum hætti, hafi tækifæri til að láta álit sitt í ljós hefur verið haft samráð við fjölda aðila, einstakl- inga og hópa. Skal þar fyrst nefna gott samstarf við formenn hjúkrun- arfélaganna og formenn mennta- nefnda þeirra, sem hafa verið ötul- ar að miðla upplýsingum og hug- myndum. Setnir hafa verið fundir með menntanefndum eftir þörfum og hafa þeir verið boðaðir bæði að frumkvæði greinarhöfundar og nefndarmanna. Mætt hefur verið á fulltrúafund HFÍ og félagsfund FHH til að ræða menntunarmál og „staðan“ kynnt. Boðað var til fundar allra ís- lenskra hjúkrunarfræðinga, er lok- ið hafa meistaragráðu erlendis, og var fundarefnið viðbótar- og end- urmenntun. Þessi liópur vinnur nú að skilgreiningu sérfræðiþekkingar með tilliti til breyttra aðstæðna. Fyrrverandi kennarar Nýja hjúkrunarskólans voru kallaðir saman til að fjalla um val á við- fangsefnum og uppbyggingu við- bótarnáms. Þá liafa þættir. er tengjast við- bótar- og endurmenntun, verið teknir til umræðu á fundum Hjúkr- unarráðs og tók undirrituð þar þátt 1 fundi um sérfræðileyfi. Samstarfs- hópur um hjúkrunarmál, sem hitt- ist í heilbrigðisráðuneytinu, boðaði til fundar um menntunarmál og sér- fræðileyfi og var þar gerð grein fyrir undirbúningsvinnu vegna stefnu- mótunar. Fundað hefur verið með for- mönnum og/eða stjórn allmargra sérgreinafélaga í HFÍ og er ætlunin að tala við sem flesta þeirra. Á þessum fundum hefur verið leitað eftir hugmyndum um skipulag á námi til klínískrar sérhæfingar og óskað eftir tillögum þar að lútandi. Rætt hefur verið formlega eða óf- ormlega við flesta kennara við námsbraut í hjúkrunarfræði um skoðanir þeirra á viðbótarmenntun og ýmsir þættir málsins teknir upp á kennarafundum og á námsbrautar- stjórnarfundum. Fundað hefur verið með forstöðumanni heil- brigðisdeildar Háskólans á Akur- eyri, en náin samvinna er að sjálf- sögðu við formann stjórnar náms- brautar í hjúkrunarfræði. Þá hefur verið leitað samstarfs við ýmsa er vinna að þróun framhaldsmennt- unar á háskólastigi hérlendis bæði í Háskóla íslands og í öðrum skól- um. Fjöldi einstaklinga hefur kom- ið skoðunum sínum á framfæri með símtölum og heimsóknum. Þessi upptalning á helstu sam- starfsaðilum er sett fram til að gefa vísbendingu um hve víðtæks sam- starfs hefur verið leitað en við gerð tillögu til stefnumótunar eru við- horf fjölmargra lögð til grundvall- ar. Formlegt samstarf.Lagðar voru fram tillögur í námsbrautarstjórn um stofnun ráðgjafanefndar fyrir viðbótar- og endurmenntun hjúkr- unarfræðinga. Kveðið var á um starfssvið og skipun nefndarmanna í tillögunum og voru þær samþykkt- ar í námsbrautarstjórn. Ráðgjafar- nefndin á sér ekki hliðstæðu í Há- skóla íslands, en henni er ætlað að tryggja að hjúkrunarfræðingar í báðum félögunum hafi tækifæri til að fylgjast með og hafa áhrif á þró- un menntunarmála. í nefndinni eiga sæti formenn hjúkrunarfélaganna, formenn menntanefnda þeirra og fulltrúar hjúkrunarstjórnenda, fulltrúi hjúkrunarfræðslustjóra og tveir kennarar við námsbraut í hjúkrun- arfræði. Er annar þeirra, Hildur Sigurðardóttir, formaður nefndar- innar. Nefndin hefur tekið til starfa og verður væntanlega góður vett- vangur umræðu. Tengsl við hjúkrunarfrœðinga erlendis Samvinnu hefur verið leitað við hjúkrunarfræðinga erlendis í þrennum tilgangi: 1. Upplýsingar. Skrifað var til stjórna hjúkrunarfélaga á Norður- löndum og í Bretlandi og lagðar fyrir þær spurningar um viðhorf og stefnu félaganna í menntunarmál- um. Svör hafa borist frá Noregi, Dan- mörku og Svíþjóð, en svara er enn vænst frá hinum. Þá var yfirmanni hjúkrunar hjá Evrópudeild WHO í Kaupmannahöfn, Dr. Stussi skrif- að og óskað upplýsinga um þróun viðbótar- og endurmenntunar hjúkrunarfræðinga í Evrópu. Nú hefur borist ítarleg úttekt frá WHO fyrir fjölmörg lönd og er þar um gagnlegar upplýsingar að ræða fyrir íslenska hjúkrunarfræðinga. Mikil- vægt er að fylgjast með þróuninni í Evrópu nú á tímurn aukinnar sam- vinnu og opnari vinnumarkaðar. Upplýsingaskrifstofa Háskóla Is- lands fyrir nám erlendis hefur að beiðni undirritaðar aflað mikilla upplýsinga um hjúkrunarnám á Norðurlöndum og liggja því þar fyrir margvíslegar upplýsingar um nám sem fram fer á vegum hefð- bundinna menntastofnana. 2. Ráðgjöf. Dr. Joanne Comi McCloskey, forstöðumaður dokt- orsnáms við University of Iowa í Iowa City verður hér á ferð í mars. Hún mun funda með kennurum námsbrautarinnar vegna viðbótar- ogendurmenntunar. Dr. McClosk- ey hefur fjallað mikið um menntun- armál hjúkrunarfræðinga í skrifum HJÚKRUN '/„-67. árgangur 7

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.