Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 41

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 41
* fréttir Jóhanna Björnsdóttir og Aðalheiður Árnadóttir. Varamenn: Árnína Guðmundsdóttir, Ástríður Sigurmundardóttir og Guðbjörg Einarsdóttir. Meginhlutverk deildarinnar yrstu árin var að hafa samband við ífeyrisþega félagsins í því skyni að canna stöðu þeirra innan Lífeyris- ;jóðs hjúkrunarkvenna. Það kom Ijótt í ljós að töluverður fjöldi líf- iyrisþega fékk ekki laun sam- icvæmt þeim launaflokki sem við- komandi bar. Var mikil vinna lögð í að fá leiðréttingu þeirra mála og átti formaður deildarinnar, Sigríð- ur Bjarnadóttir, ásamt formanni HFI, Sigþrúði Ingimundardóttur, stóran þátt í því hve fljótt og vel þær leiðréttingar gengu fyrir sig. Stofnfundur Sambands lífeyris- þega innan BSRB var haldinn 22. nóvember 1980. Guðjón B. Bald- , vinsson var kosinn formaður sam- takanna. 32 fulltrúar frá 8 deildum voru á stofnfundinum og var deild lífeyrisþega innan HFÍ ein af þeim. Tilgangur samtakanna er m.a. að sameina lífeyrisþega innan BSRB í því skyni að skapa gagnkvæman skilning og samstöðu og styrkja stöðu opinberra starfsmanna hvað varðar bætt kjör lífeyrisþega. Sam- bandið heldur landsþing annað hvert ár og þar fara kjörnir fulltrúar deilda með atkvæðisrétt hverju sinni. Núverandi formaður er Guð- mundur Jóhannsson. Hvað hefur svo áunnist á þessum 10 árum? Það, sem hæst ber, er leiðrétting- in á launagreiðslum til margra líf- eyrisþega ásamt leiðbeiningum og upplýsingum sem varðaði þau mál. Samstarf við Samband lífeyris- þega innan BSRB hefur verið gagn- legt og skýrt ýmis mál lífeyrisþega. Auk þess hefur það stuðlað að auknum kynnum meðal lífeyris- þega í öðrum lífeyrissjóðum. Nefna má einnig að hugmyndin að söfnun heimilda um nám, störf og kjör íslenskra hjúkrunarfræð- inga kviknaði í samræðum félaga deildarinnar og formanns HFI. Ýmis fróðleikur hefur jafnan verið á fundum deildarinnar, tengsl hafa skapast og vinátta hefur verið endurnýjuð og hún eflst sem er ekki hvað síst mikilvægt. Núverandi stjórn skipa: Sigurlín Gunnarsdóttir, formað- ur. Dagbjört Þórðardóttir, gjald- keri. Ásdís Einarsdóttir Frímann, rit- ari. Jónína Bjarnadóttir og Jóhanna Björnsdóttir, meðstjórnendur. Varamenn eru: María Ásgeirsdóttir, Anna Helgadóttir og Árnína Guðmunds- dóttir. Stjórnin sendir öllum félögum deildarinnar bestu kveðjur á þess- um tímamótum, þakkar öllum þeim, sem lagt hafa deildinni lið á liðnum árum, og vonast til að sjá sem flestar á fundum deildarinnar í framtíðinni. Reynt verður að hafa áhugaverð efni á fundunum og fundarboð verður sent til allra fé- laganna, hvar sem þeir búa á land- inu, svo að allir geti fengið tækifæri til að fylgjast með og hafa áhrif á starfsemi deildarinnar. Sigurlín Gunnarsdóttir formaður Heimildir: Fundargerðabók HFI. Fundargerðabók deildar lífeyrisþega inn- an HFÍ. Evrópusamtök hjúkrunarfræð- inga í alnæmishjúkrun stofnuð Þann 24. nóvember sl. voru stofn- uð Evrópusamtök hjúkrunar- fræðinga í alnæmishjúkrun (Eur- opean Association of Nurses in AIDS Care, EANAC). Stofn- fundurinn var haldinn í Amster- dam og hann sóttu 20 hjúkrunar- fræðingar frá 14 Evrópulöndum. Tildrög stofnunar þessara sam- taka má rekja til ráðstefnu um al- næmishjúkrun sem var haldin í Kaupmannahöfn í rnars 1990. Hana sóttu 8 íslenskir hjúkrunar- fræðingar og voru þær Ásdís Þorbjarnardóttir og Hildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðing- ar á Borgarspítalanum, tilnefnd- ar í undirbúningsnefnd til að vinna að stofnun Evrópusam- taka. Á fundinum var kosin stjórn samtakanna, forseti er Ian Hicken frá Bretlandi, varaforseti Nicoline Graaf frá Hollandi, rit- ari Hal Sattertuwatte, Bretlandi og gjaldkeri er Arnold Coors frá Hollandi. Auk þess eru þrír stjórnarmenn og aukameðlimur frá Skotlandi en Skotar munu halda ráðstefnu um alnæmis- hjúkrun 1992. Næsta ráðstefna verður hins vegar í Hollandi 19,- 22. nóv. 1991. Meðal helstu verkefna hinna ný- stofnuðu samtaka verður árlegt ráðstefnuhald, virkt upplýsinga- flæði milli hinna ýmsu aðilda- landa, aðstoð við þau lönd sem skemmst eru komin á veg í mál- efnum, sem lúta að hjúkrun HIV Framh. á bls. 47 HJÚKRUN '/„-67. árgangur 41

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.