Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 49

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 49
* fréttir SAGA HJUKRUNARSKOLA ISLANDS 1931-1986 Saga Hjúkrunarskóla íslands 1931- 1986 kom nýlega út. Lýbur Björns- son sagnfrœðingur skráði en Por- björg Jónsdóttir skólastjóri annað- ist heimildaöflun. Á bókarkápu segir: „Saga Hjúkrunarskóla íslands mun án efa vekja ljúfar minningar fyrrverandi nemenda og þeirra sem skólanum tengdust, ásamt því að vera merkt framlag í sögu heilbrigðis- og skóla- mála á íslandi.“ Formaður Hjúkrunarfélags ís- Hnds, Sigþrúður Ingimundardótt- *r, afhenti forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, fyrsta eintak bók- arinnar. Afhendingin fór fram bann 21. desember sl. á skrifstofu forsetans að viðstöddum Þorbjörgu Jónsdóttur, Sigríði Jóhannsdóttur, Svanlaugu Árnadóttur, Sigurlín Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir tek- ur við fyrsta eintaki bókarinnar. Með henni á myndinni eru Porbjörg Jónsdóttir og Sigþrúð- ur Ingimundardóttir. Gunnarsdóttur og Stefáni Ólafi Jónssyni. I tilefni af útkomu bókarinnar boðaði Ólafur Ólafsson, landlækn- ir og formaður skólanefndar, til síðasta skólanefndarfundar Hjúkr- unarskóla íslands. Menntamála- ráðherra og heilbrigðisráðherra, var boðið á fundinn, einnig Þor- björgu Jónsdóttur, fyrrverandi skólastjóra, og Lýði Björnssyni. Heilbrigðisráðherra gat ekki komið á fundinn en í hans stað kom Ingibjörg R. Magnúsdóttir, skrif- stofustjóri í Heilbrigðisráðuneyt- inu. Formaður félagsins afhenti menntamálaráðherra, Svavari Gestssyni, bókina að gjöf og Ingi- björg tók við bókinni fyrir hönd heilbrigðisráðherra, Guðmundar Bjarnasonar. Skólanefndarmenn fengu sitt eintakið hver. Vel hefur tekist til með bókina og eru hjúkrunarfræðingar ánægðir með hana. Væntanlega veitir bókin þeim ánægju við upprifjun minn- inga. L.Ó. ogS.S. ó'á vinstri: Sigríður Jóhannsdóttir fyrrverandi skólastjóri, Sigþrúður Ingimundardóttir formaður Ótí, Þorbjörg Jónsdóttir fyrrverandi skólastjóri, Ólafur Ólafsson landlœkitir og Svavar Gestsson ^nntamálaráðherra. HJÚKRUN V91—67. árgangur 49

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.