Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 46
* fréttir
Frá vinstri Ása St. Atladóttir, Sigþrúdur Ingimundardóttir, Rannveig Sigurbjörnsdóttir. Ljósm.
Ingibjörg Árnadóttir.
Mannaskipti í
ritstjórn
í lok ársins 1990 urðu breytingar
á ritstjórn HJÚKRUNAR. Ása St.
Atladóttir og Rannveig Sigur-
björnsdóttir gengu úr ritstjórn að
eigin ósk. Þær hafa lagt tímaritinu
lið í fjölmörg ár. Ása átti sæti í rit-
stjórn frá árinu 1984 og Rannveig
frá árinu 1985.
Ritstjórn er bakhjarl ritstjóra.
Þessir tveir fulltrúar sýndu það með
störfum sínum og er okkur eftirsjá í
þeim og þökkum þeim samstarfið.
Þær Ása og Rannveig voru
kvaddar á fundi með ritstjórn og
fyrrverandi ritstjóra Hjúkrunar,
Ingibjörgu Árnadóttur. Ritstjórn
skipa nú: Hjördís Guðbjörnsdóttir,
Sigríður Skúladóttir og Þóra
Björnsdóttir. Varamaður er Ása
St. Atladóttir. Ritstjórar bjóða þær
velkomnar til starfa.
5.5.
HJÚKRUNARFRÆÐI
HJÚKRUN MED FOLKI -
FYRIR FÖLK
Samstarfshópur um hjúkrunarmál
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Laugavegi 116, 150 Rcykjavik.
Myndband
um hjúkrun-
armál
Til sölu eru myndbönd á skrif-
stofu HFÍ. Samstarfshópur um
hjúkrunarmál lét gera þessi mynd-
bönd. Myndbandið er um hjúkrun-
arfræði og er ætlaö til sýningar í
heilbrigðisstofnunum og skóluni
landsins. Það kostar kr. 1.500,00.
Staða
fræðslu-
stjóra HFÍ
Staða fræðslustjóra Hjúkrunar-
félags íslands er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Staðan veitist frá 1. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veita
fræðslustjóri og formaður félags-
ins.
SKJÓLGARÐUR, HÖFN HORNAFIRÐI
Okkur vantar hjúkrunarfræðing til starfa hið fyrsta. Einnig vantar okkur
hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga.
I Skjólgarði er 31 hjúkrunarsjúklingur auk vistdeildar með 14 plássum.
Alls eru fjórir hjúkrunarfræðingar starfandi á heimilinu.
Allar nánari upplýsingar gefur Ásmundur Gíslason forstöðumaður í síma
97-81118 og Þóra Ingimarsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 97-81221.
46 HJÚKRUN ^91—67. árgangur